blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Að eiga ljúfa stráka og góða fjölskyldu

    Posted on February 3rd, 2010 tinna No comments

    Hef verið vakin tvo morgna í röð með yndislegum orðum frá litla manninum mínum. Í gær kom hann í fangið mitt, knústi mig fast og sagði “þú ert besta mamman í öllum heiminum”, ekki leiðinlegt það. Í morgun vöknuðum við frekar snemma við sms frá leikskólanum með skilaboðum um að það yrði ekki farið með rútunni upp í sveit sökum veðurs og við lágum í myrkrinu og vorum að spjalla. Hann vindur sér upp á mig, tekur um andlitið á mér og segir “mamma, eigum við að giftast?” Ég sagði honum að foreldrar og börnin mættu ekki giftast bara mamman og pabbinn. Þá sagði hann að ef hann væri á milli þá væri það allt í lagi og þá gætum við bara öll gift okkur. Báðir drengirnir mínir hafa reyndar viljað giftast mér á ákveðnum tímapunkti í þeirra lífi, þeir eru svo miklar rúsínur.

    Ég og Jónatan erum svo ótrúlega heppin að eiga frábærar fjölskyldur á Íslandi og við erum kannski ekki nógu og dugleg að segja takk. En það er alveg ómetanlegt hvað þeim finnst öllum sjálfsagt að skjótast fram og til baka í allskonar erindum fyrir okkur. Skutlast með Haukinn okkar fram og til baka á flugvöllinn þó að það sé mið nótt, dunda með honum heila helgi og senda okkur pakka með skrítnum óskum. Við kunnum svo sannarlega að meta fjölskylduna okkar og erum þeim óendalega þakklát fyrir allt sem þau gera fyrir okkur:) Í þessum mánuði ætla þau að knúsa Einarinn okkar og það var sko ekki vesen að láta þessa heimsókn ganga upp. Þannig að, takk fyrir skutlin, takk fyrir fjölskylduhelgarnar með Hauksanum, takk fyrir piparostinn, pítusósuna, nammið og lýsis sportþrennuna:)

    knús í ykkar hús

    Leave a reply