blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Splunkuný frænka

    Posted on February 2nd, 2010 tinna 1 comment

    Í nótt eignuðumst við frænku, prinsessan hjá Kristni og Salóme lét ekki bíða eftir sér og var mætt á svæðið 1:57 í nótt um 3600 gr og 51 cm fullkomin í alla staði. Hún er búin að láta hafa eðeins fyrir sér þessi prinsessa og því ríkir mikil tilhlökkun að kynnast þessum einstakling og sjá hvaða karakter hún hefur að geyma.

    Ég spjallaði við stolta nýbakaða foreldra í morgun og heyrði litlu dúlluna “mala” í fangi pabba síns, ekki laust við að maður sé klökkur og okkur langar óendalega mikið að stökkva upp í næstu flugvél og knúsa þau og kyssa.

    Núna eru þau orðin fjögur frændsystkinin hjá sonum Einars og Gunnu. Þrír drengir og svo litla daman:)

    Núna bíðum við bara spennt eftir myndum af prinsessunni:)

    knús og koss frá okkur til ykkar

     

    One response to “Splunkuný frænka”

    1. Til hamingju með hana.

    Leave a reply