-
Vika 4 – pabbi minn, foreldraviðtal og fl.
Posted on January 31st, 2010 4 commentsÍ viku fjögur þá var pabbi minn í heimsókn, það sem er svo gaman við að hafa hann pabba minn í heimsókn er að það er svo mikið “fyrst” hjá okkur. Við nefninlega höfum ekki búið undir sama þaki nema þegar ég var lítil stelpa og ekki byrjuð að muna og því er eins og ég segi voðalega mikið fyrst hjá okkur:) Vakna og rölta fram og kúra hjá pabba er eitthvað sem ég man ekkert rosalega mikið eftir, kyssa góða nótt, fara út í búð, horfa á friends og hlæja og allt svona rosalega venjulegt var alveg æðislegt. Vikan einkenndist af túristaleik um Köben bakarísferðum hjá karli föður mínum, en hann er alveg ótrúlegur bakarískall (flestir vilja fara í H & M, borða Sushi og eitthvað svona en pabbi vildi bakarí) kaffihúsastoppum fyrir lúnar fætur og kósýheitum fyrir framan sjónvarpið þegar það var komið inn úr kuldanum. Handboltinn er náttúrulega búinn að vera á fullu og sjónvarpsdagskráin í takt við það, pabbi var svo feginn að hafa valið þessa viku til að koma þar sem Hera er alveg drulluhrædd þegar pabbi horfir á íþróttaviðburði heima hjá sér. Það var ótrúlega gott að hafa pabba minn og soldið erfitt að kveðja kallinn á flugvellinum í morgun.

Annað sem gerðist í viku númer fjögur, hér er jú allt talið í vikum og því eðlilegast að nota vikurnar. Á miðvikudaginn fórum við í foreldraviðtal á leikskólanum, við vorum sem fyrr þegar komið er út af svona fundum klökk af stolti enda drengurinn algjört æði. Ég ætla að setja upp nokkra punkta og gera viðtalinu góð skil þar sem ég er ekki þekkt fyrir neitt annað en að monnta mig vel af mér og mínum.
Þau á leikskólanum eru með ákveðið skema til að fylgjast með þroska barnanna á leikskólanum. Þetta er hringur og er hringndum skipt upp í ákveðin svið t.d. er 1/4 af hringnum málið, 1/5 samskipti og svo framvegis. Í hverjum hluta eru svo reytir með tölum sem samsvara spurninga/prófunar/matsblaði leiðbeinandana. Þegar barnið hefur “uppfyllt” eitthvað af þessu blaði þá er litað í samsvarandi reit í hringnum, vona að þið sjáið þetta fyrir ykkur núna. Það sem þau voru svo ótrúlega monntin af og þótti ótrúlegt er að drengurinn okkar var með allan málapartinn litaðann. Við fengum að heyra:
- ótrúlegt hvað hann hefur aðlagast hratt og vel
- hann er með stóran orðaforða og í sumum tilfellum stærri en jafnaldrarnir
- hann er með alla málfræði á hreinu
- vanalega þegar við erum með tvítyngd börn þá eigum við að taka þau afsíðis til að örva þau enn frekar með málið, en þess höfum við ekki þurft með Einar.
Á þessum tímapunkti var mamman byrjuð að roðna og pabbinn farinn að setja bringuna fram af stollti – eða var það öfugt…. ég man það ekki…:)
Við fengum líka að heyra að.
- Hann væri hrókur alls fagnaðar í söng og leik.
- Krökkunum þætti hann ótrúlega skemmtilegur enda alltaf með fýflalæti og grín, en þessi fýflalæti og grín vekja ekki alveg sömu gleði hjá föstrunum.
- Hann væri skarpur og færi fremstur í flokki að þekkja stafi, tölur, liti og þess háttar dót
- Að hann þyrfti bara að heyra rímur og lög einusinni og þá væri hann með þær á hreinu
Við fengum svo líka að heyra að
- Einar borðar ekki rúgbrauð
- Einar heyrir bara það sem hann vill heyra
- Einar er ákveðinn og gerir bara allsekki það sem honum finnst leiðinlegt
- Einar gerir bara það sem honum finnst skemmtilegt, t.d. það að klæða sig. Það þykir honum leiðinlegt og þess vegna gerir hann það ekki.
- Þrátt fyrir að Einar sé tekinn afsíðis til að vera fjarri krökkunum sem hlæja þegar hann segir brandarana, er alveg aleinn með fóstrunni og á að klæða sig sjálfur þá fer hann í peysuna, lætur ermarnar vera vængi og leikur fugl… af því að svona er Einar
- Einar á erfitt með að sitja kjurr og í matmálstímum er hann að klöngrast á stólnum, liggur á bakinu á stólnum, dettur í gólfið, hellir niður og eitthvað fleira sem ég skammaðist mín of mikið fyrir til að heyra…
- Ef að Einari þykir ekki eitthvað skemmtilegt, þá getur hann ekki einbeytt sér. Þau töldu lengi að það væri tungumálið og að hann væri að einbeyta sér að skilja, en eftir að hafa metið hann á þann hátt sem hann var metin þá segja þær stopp nú, Einar þú verður að taka þér tak…
Niðurstaða fundarin var s.s. sú að barnið er mjög gáfað og ótrúlega gott í dönsku og er með allt litað í topp í þeim pörtum í skemanu. En það sem snýr að einbeytingu og hlýðni er bara ekki að skora svo feitt. Pabbinn bennti á mömmuna og mamman horfði á borðplötuna og mumlaði eitthvað. Þetta þarf að laga í samstilltu átaki heimilis og leikskóla. Ég þarf að hætta að vekja hann með því að taka hann ofurblítt í fangið, klæða hann á meðan hann vaknar í fanginu mínu, bera hann svo inn í stofu þar sem pabbi hans bíður með morgunmat og uppáhalds barnaefnið. Ég þarf að hætta að sitja með hann í fanginu fyrir framan barnaefnið og mata hann. Ég þarf að hætta að klæða hann í útfatamúnderinguna og leiða hann að útidyrahurðinni. Og þetta er bara einn partur af góðri þjónustu móðurinnar á heimilinu sem þarf að skera niður, ætla nú ekki að fara út í fleiri ósiði sem ég er búin að venja barnið á….. úps…..
En að öðru, þá hefur verið ótrúlega kalt og til að gefa ykkur einhverja hugmynd um hversu kalt þá byggðum við Einar snjókall í upphafi viku 2 sem stendur ennþá flotur og fínn í enda viku 4. Í dag afrekuðum við Einar að byggja við snjókallinn, við skunduðum út á tún og hrúguðum snjó fyrir aftan snjókallinn. Úr því varð fyrst snjóhrúga, svo brekka sem við renndum okkur niður á snjóþotunni, á tímabili var þetta hestur, en svo endaði þetta í snjógöngum með þremur opum. Einar skríkti og hló og sagði reglulega, mamma þetta er svo skemmtilegt. Ég sagði reglulega, ekki skemma neitt, passaðu þig að reka þig ekki í, passaðu snjóhúsið mitt, er mamma ekki dugleg….. svo mættumst við Einar í göngunum, ég sveitt og móð og másandi af kappseminni við að byggja snjóhúsið horfðum í augun á hvort öðru og brostum. Þá sagði Einar við mömmu sína “mamma, þú ert með kanínutennur”. Já mamman er með kanínutennur, það var bara svo fyndið að heyra Einar segja þetta á þessu mómenti að ég hló mig máttlausa og hann sömuleiðis. Að sjálfsögðu ræstum við pabbann út til að taka myndir svo við (ég) gætum monntað okkur af afreki dagsins. (N.B pabbinn hjálpaði ekki, en hann vaskaði upp seinna um daginn þannig að hann sleppur á pari)
Talandi meira um kuldan þá er þetta kaldasti vetur í rúmlega 20 ár, við hjólum samt um allt og það getur verið ansi skrautlegt. Sérstaklega þegar maður lendir í snjóbyl og ófærð og í staðin fyrir að renna niður brekkurnar þá þarf maður að hjóla niður brekkurnar. Ég hugsa svo oft til þess þegar ég er að hjóla á æfingu eða heim. Ég spilaði með ÍS/Val í næstum 3 tímabil og bjó ekki lengra en 1 km frá og ég held að ég telji það undir 10 skiptum sem ég labbaði á æfingu. Hér að neðan er ég að koma af æfingu eftir að hafa cykeled hjem i snestorm.
Einar ætlar að kíkja í heimsókn til íslands í febrúar, fer heim með stóra bróður 21. feb og verður til 10. mars. Hann ætlar að vera eitthvað hjá ömmu og afa í sveitinni eins og hann orðaði það um daginn og svo eitthvað hjá Högna og Írisi í Stykkishólmi, mamman og pabbinn ætla að njóta þess að vera barnlaus í fyrsta skiptið í heilt ár og rækta hvort annað á allan þann hátt sem þau geta.
Ég er alltaf á fullu í körfunni, Nú er grunnspilinu að verða lokið og mellemspilið fer að hefjast. Við höfum ekki náð að vinna marga leiki þrátt fyrir að vera að spila feiki vel á köflum, þess bar að geta að flest liðin eru með 1-2 erlenda leikmenn og við ekki neinn. Ég held áfram að vera í byrjunarliðinu og skila ágætlega til liðsins og þykir þetta skemmtilegra en nokkru sinni fyrr. Framundan er svo hörkuhelgi hjá kellu, en leikur í Lemvig a.k.a lengstíburtu á laugardaginn sem krefst þess að við keyrum af stað á föstudagskvöldi, spilum svo um hádegi á laugardeginum. Á sunnudeginum er svo komið að stjörnuleik þeirra dana Denmark vs.The World og ég hef verið valiln í The World liðið, þetta verður örugglega þrælskemmtilegt:)
Haukur kemur til okkar 17. febrúar og fer heim samferða bróður sínum þann 21. febrúar. Haukurinn okkar býsnast yfir því að hafa mikið að gera, kennararnir alveg rosalegir að setja á próf og hann er bara alveg hættur að eiga helgarfrí. Drengurinn er náttúrulega að verða 11 ára gamall eftir slétta 10 daga og kröfurnar verða jú meiri eftir því sem maður eldist, þannig að það er nú ekki alltaf tekið út með sældinni að eiga afmæli. Óskalistinn er froskur, körfuboltaskór, NBA dót, bækur og fleira í þeim dúr, hann er reyndar í bölvuðu basli með að segja hvað honum langar í þar sem hann virðist hafa klárað allar óskirnar sínar um jólin og þau eru bara nýbúin:)
Barnið hjá Kristni og Salóme á svo að koma í heiminn á morgunn, við bíðum spennt við símann þessa dagana enda mikil tilhlökkun í fjölskyldunni að fá litlu prinsessuna í heiminn:)
Að lokum óskum við afmælisbörnum vikunnar til hamingju með daginn sem þeir áttu.
Elsku pabbi, afi, tengdó…. til hamingju með 27. janúar:)
Og elsku Högni, Pétur, besti vinur og allt það, til hamingju með stórafmælið 28. janúar. 40 ár er ekkert smá fyrir svona gaur eins og þig mwa*
knús og koss
Tinna Björk
p.s hérna er mynd af Jónatani í eldhúsinu:)
4 responses to “Vika 4 – pabbi minn, foreldraviðtal og fl.”
-
Gunna og co January 31st, 2010 at 23:12
Hæ hæ, skemmtilegur pistill Tinna, gaman að þið feðginin hafið átt góða stund saman í bakaríunum í Köben, hann er greinilega smekkmaður hann Simmi

Gauragangurinn í Einari kemur ekki á óvart enda skemmtilegur strákur og ekki séns að ég trúi uppá hann mikla óþekkt….Kv Gunna og co
P.S. Ert þú ekki erlendur leikmaður??
-
Gunnhildur February 1st, 2010 at 11:18
já skemmtilegt p.s ið ERLENDUR LEIKMAÐUR.
Tinna þú er svo einlæg og ljúf, það er gott að þú skulir hafa fengið að uppgötva pabba þinn. Einar er náttúrulega allveg einstakur, ekki spurning og hlakkar okkur ótrúlega til að hitta hann í febr. það eiga örugglega eftir að hrynja gullmolarnir frá honum þá. Já Tinna mín Haukurinn að verða fullorðin og þú ennþá bara barn;o) svona er lífið.
Alltaf jafn gaman að lesa pistlana þína, kossar og knús frá okkur
Skipagötugengið. -
Pabbi þinn February 2nd, 2010 at 08:16
Elskan mín alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt, takk fyrir ógleymanlega viku
pabbi
-
Mamma þín February 3rd, 2010 at 13:36
Ég er svo glöð að þú og pabbi þinn hafið fundið svona margt nýtt saman sem er ykkar, og að ná saman sem vinir og fullorðið fólk.
Ánægð með hvað vikan ykkar saman gerði þér gott. kv mamma.
Leave a reply














