Jónatan, Tinna, Haukur og Einar
blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
-
stutt blogg úr kuldanum
Posted on January 8th, 2010 1 commentÞetta er í fréttum í vikunni- Það er alveg ótrúlega kalt og við notum lopapeysurnar, ullarfötin og annan hlýjan fatnað óspart. Við hjólum samt um allt, það er ekki málið. Förum samt virkilega varlega svo við rennum ekki í snjónum og hálkunni. Held að ég hafi ekki hjólað í snjó síðan 1990 þegar ég fékk fjallahjól í jólagjöf og varð að prufa það samstundis.
- Einar er byrjaður að fá mat í leikskólanum þannig að vi er slut med madpakken. Jedúdda hvað ég elska það, miklu meiri ró hérna á morgnana og Einar er virkilega ánægður með matinn. Í þessari viku er hann búinn að fá. Pasta með kjötsósu sem smakkaðist gott (takið eftir SMAKKAÐIST gott) Einar er byrjaður að vera með soldið dönskuskotna íslensku. Svo er hann búinn að fá kartöflusúpu sem var ekki góð en maður verður alveg ótrúlega sterkur ef maður borðar hana þannig að hann kláraði hana alla. Svo fékk hann rúgbrauð með steiktum lauk sem smakkaðist eins og súkkulaði, en það var víst leyndó sem ég mátti engum segja.
- Harmleikur um daginn þar sem við gleymdum litla og stóra á leikskólanum og urðum að snúa við og sækja þá. Þá kom í ljós að litli var bara á nærbuxunum en stóri hjólaði sjálfur alla leið heim. Eins gott að þetta reddaðist allt… fjúff;)
- Einar hefur stækkað alveg svakalega enda að verða 5 ára gamall síðar í mánuðinum og borðar í samræmi við að það sé vaxtakippur í gangi. Er samt farinn að fatta að foreldrarnir eru að leggja áherslu á að hann borði vel og í hvert sinn sem við segjum “jæja nú er kominn tími til að pissa og bursta” þá kemur strax “ég er alveg ótrúlega svangur, ég bara verð að borða eitthvað”. Og við að sjálfsögðu grípum þetta á lofti og fyllum hann af einhverju góðu fyrir nóttina svo hann geti haldið áfram að stækka:)
- Æfingarnar byrjuðu aftur eftir jólafrí í vikunni, harðsperrur og þreyta er orð vikunar hjá mér. En vá hvað ég elska það að vera komin af stað aftur;)
- Við söknum Hauksins okkar óendanlega mikið enda leið tíminn ótrúlega hratt yfir áramótin með honum, við getum ekki beðið eftir að hann komi aftur í febrúar. Hérna að neðan má sjá hann alveg í stuðinu á gamlárskvöld;)

Annars er mest lítið að frétta…..
knús og koss
One response to “stutt blogg úr kuldanum”
-
Mamma þín January 8th, 2010 at 19:59
Alveg elska ég það að koma hér inn ( sem gerist daglega ) og sjá nýtt blogg.
Mín fagra þú ert frábær penni,
þó að skrifa þú segir ég ekki nenni.Botn óskast:-)
kv mamma.p.s. býð eftir öðru matarbloggi a,la Jónatan..
Knús í þitt hús..
Leave a reply


