-
Gleðilegt ár kæru vinir:)
Posted on January 1st, 2010 3 commentsEnn eitt árið er gengið í garð, ekki að það komi neinum á óvart en ég verð alltaf voðalega meir á áramótum og fæ kökk í hálsin af skrítnustu tilefnum. Ég er búin að hugsa mikið um að skrifa einhvern annál fyrir hönd okkar í litlu fjölskyldunni en ég held að ég láti það vera.
Sannleikurinn er sá að við lögðum af stað í ævintýri í upphafi árs og biðum spennt eftir því að reyna okkur á nýjum stað í nýju landi. Hlutirnir hafa æxlast þannig að þegar ég lít til baka þá er þetta eitt af mínum erfiðustu árum en á sömu stundu eitt af lærdómsríkustu tímabilum sem ég hef upplifað. Við trúum því að þetta sé ennþá ævintýri, núna erum við að upplifa erfiða og harða tíma. Svo munum við rísa upp og sigra “vonda kallinn” og lifa hamingjusöm til æviloka.
En færum okkur að jólunum okkar með Hauki Sindra, dögunum til áramóta og alls þess skemmtilega sem við höfum brallað undanfarna daga…..grunar að þetta verði langt blogg:)
Haukur Sindri lenti um kvöldmatarleitið þann 28. desember. Fjölskyldufaðirinn er búinn að blogga um hvernig matseldin gekk fyrir sig og því óþarfi að lýsa því í smáatriðum og láta duga að segja hversu ótrúlega góður maturinn var. Við sameinuðum hefðirnar á besta hátt sem hægt er. Hjá mér hefur verið hefð fyrir að hafa graflax í forrétt á jólum, hjá okkur báðum hefur verið svínasteik með puru í aðalrétt og hjá Jónatani hefur svo verið möndlugrautur í eftirrétt. Þannig að við tókum forréttinn frá minni hefð, aðalréttinn frá okkur báðum og eftirréttinn frá Jónatani, sannkölluð 50/50 skipti. En allavegana, á meðan ég og Einar sóttum Hauk þá undirbjó Jónatan ratleik til að stytta drengjunum stundirnar á meðan við myndum klára matarstússið. Þegar við vorum klár með matinn þá ákváðum við að koma drengjunum á óvart, sendum þá inní herbergi og merktum diskana okkar á soldið sérstakan hátt sem gladdi þá einstaklega mikið.
Einar var eiginlega einum of töff þetta kvöld, fyrir utan hvað hann var spenntur og glaður yfir því að hafa bróðir sinn og fór gjörsamlega á kostum. Stóð upp á stólnum í miðjum matnum og sagði “mig langar að skála þar sem Haukur er kominn til okkar” alveg eins og hann væri alvarlegur fullorðinn maður:) Spennan var slík að hann fann sér svo alla pakka sem voru merktir honum og reif þá upp og við náðum engan vegin að stöðva hann, þannig að við verðum að viðurkenna að við vitum ekki alveg 100% hvað er frá hverjum og þá sérstaklega hvaða bók hann fékk frá hverjum sem er virkilega leiðinlegt þar sem við erum vön að merkja allar bækur með nafni þess sem á bókina, af hvaða tilefni hún kom til okkar og frá hverjum ef það á við.
Þegar við vorum búin að opna pakkana þá lögðumst við í sófann, sóttum möndlugrautinn og horfðum á DVD sem Haukur fékk frá Högna, Írisi og kó um atvinnumennina okkar. Einar endaði með möndluna en er svo sætur að hann sagði að hann hefði fengið hana fyrir okkur öll af því að við værum fjölskylda og heimtaði að það yrði tekin mynd af öllum með möndluna annað væri bara ekki sanngjarnt.Þar sem allir fjölskyldumeðlimir eru handhafar árskorts í Tívolí var ákveðið að eyða næsta degi í Tívolí, við skelltum okkur snemma af stað enda viðbúið að það yrði traffík í Tívolíinu. Jólatívolí er alveg ótrúlega flott og mikið skreytt, það var alveg ótrúlega kalt en við vorum vel búin til að fjárfesta í túrpassa á línuna og eyða öllum deginum þarna. Einar verður hugrakkari og hugrakkari með hverri tívolíferð sem við förum í en Haukur er alltaf jafn tívolíglaður og rússíbanasjúkur og því var farið í alla rússíbanana.
Þegar okkur var orðið kalt þá skelltum við okkur inn á kaffihús, strákarnir fengu sér heitt kakó og mamman og pabbinn fengu sér heitt glögg. Það var rosalega gott að hlýja sér aðeins, pissa og hlaða batterýin fyrir fleiri ferðir í tækin. Við biðum líka spennt eftir flugeldasýningunni sem er alltaf á milli jóla og nýárs klukkan sex. Það er virkilega gaman að rölta um þegar það byrjar að rökkva og ljósin verða einhvernvegin miklu flottari og stemmingin verður alveg ótrúleg.
Við enduðum daginn á að fá okkur pizzu á nálægum veitingastað og fórum svo heim og kláruðum að horfa á atvinnumennina okkar. Við vorum soldið lúin eftir daginn í Tívolíinu og því ótrúlega gott að fara í kósýföt og kúra bara í sófanum heima og hlaða batterýin fyrir næstu daga.
Haukur vaknaði svo daginn eftir með gullfoss og geysi og leið ekki vel. Pabbinn sá um áramótainnkaupin á meðan við kúrðum okkur yfir misgáfulegu sjónvarpsefni og tölvuleikjum. Þetta gekk nú fljótt yfir hjá Hauksanum okkar og um kvöldmatarleitið var hann orðinn nokkuð hress. Þennan dag var afgangadagur enda alveg ótrúlegt magn af mat sem safnast upp á svona hátíðardögum. Eftir matinn þá ákváðum við að spila Pictionary og komumst að því að Einar og Haukur hafa svo sannarlega keppnisskapið frá mömmu sinni. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til þá hef ég skánað mikið, þegar Haukur var lítill þá gat ég ekki einusinni leift honum að vinna mig í einföldum spilum þar sem ég er svo svakalega tapsár. Ég hef aðeins unnið í þessu gagnvart drengjunum mínum og get núna spilað við þá með aðeins meiri ólympíuhugsjón s.s. að vera með en ekki vinna. Reglurnar voru aðeins sveigðar til þar sem Einar hefur ekki alveg skilning á spilinu. Einar og pabbi voru saman í liði og svo Haukur og mamma. Einar var alveg ótrúlega klár að geta upp á réttu teikningunum hjá pabba sínum og Haukur var alveg að trompast yfir reglunum þar sem pabbi mátti tala aðeins með teikningunum til að hjálpa Einari á sporið. Einar og pabbi höfðu forskotið framan af þangað til að Haukur fékk alveg nóg og við tókum okkur á og komumst framúr Einari og pabba. Þá varð allt vitlaust hjá Einari, grátur og læti sem ætlaði engan endi að taka. Einar heimtaði að kasta teningnum án þess að geta rétt til að komast aftur framúr mömmu og Hauki en var sagt að það væri að svindla. Hann sættist á að prufa hvort þeir gætu ekki rétt og það tókst, Einar kastaði þá teningnum og fékk fjóra. Fjórir dugði ekki til að komast framúr mömmu og Hauki og þá varð allt brjálað aftur, hann ætlaði nefninlega að fá sex. Hann tók þá bara teninginn fann sex og lagði hann á borðið, við gátum að sjálfsögðu ekki látið barnið komast upp með þessa spilamennsku og það endaði með því að þeir færðu sig fjóra og gerðu aftur. Við skiptumst á að halda forystunni það sem eftirlifði spils með gráti hjá Einari og mótmælum hjá Hauki. Pabbi og Einar voru gulir og ég og Haukur vorum blá. Til að halda öllum góðum þá endaði þetta spil með jafntefli þar sem Haukur og Einar gátu akkúrat á sama tíma upp á síðustu spurningunni, alveg ótrúlegt:)

Við sváfum út á gamlársdag og byrjuðum daginn á alvöru brunch, strákunum mínum þykir ekkert betra en að fá amerískar pönnukökur með sýrópi. Næst á eftir mátuðum við lopapeysurnar frá ömmu Gunnhildi og co og spókuðum okkur svo um í bænum. Keyptum áramótaskraut, hatta og flugelda. Pabbi og Einar fóru svo heim og mamma og Haukur fóru og tóku smá snúning á körfuboltavellinum.
Það var fjórréttaður matseðill hjá litlu fjölskyldunni og ótrúlegt en satt þá tók ég meiri þátt í matseldinni en oft áður og klúðraði ekki neinu en matseðillinn leit svona út. Ég treysti því að Jónatan matarbloggi áður en árið er liðið…. engin pressa;)
- Humarsúpan hans Ella sem við fáum alltaf í Bolungarvík og heimabakað brauð ala Tinna
- Grafið naut
- Hjartardýr (http://www.dk-kogebogen.dk/opskrift2/visopskrift.php?id=8741)
- Ísinn hennar Höllu ömmu
Það þarf varla að segja frá því en maturinn var perfect og þá sérstaklega súpan sem færði okkur nær fólkinu okkar heima í Víkinni. Fjórréttað var kannski fullmikið fyrir maga drengjanna okkar og voru alveg sprungnir þegar það var komið að Hjartardýrinu. Þeir fengu því að borða bara kjötið þar og voru ekki pressaðir í meðlætið.
Við skreyttum borðið alveg ótrúlega mikið, við áttum einhverjar innibombur sem þeyttu skrauti út um alla íbúð þannig að litla stofan okkar er mjög skreytt í dag og þá sérstaklega gólfið, alveg ótrúlega flott og gott fyrir taugarnar….
Við vorum soldið efins um hversu mikið danir myndu skjóta upp og hvort það væri eitthvað fútt í áramótum í útlandinu. Það var skotið stanslaust frá því að það byrjaði að rökkva og þangað til að klukkan var orðin eitt. en þá fórum við að sofa og því eru ekki staðfestar heimildir af frekari uppskotum danana. En við skemmtum okkur vel með flugeldana okkar, það var helling skotið upp og það bergmálaði í blokkunum hérna í kring og það var soldil svona stemming eins og á Ísafirði þar sem það bergmálar í fjöllunum. Það var ótrúlega kalt veður, það lagði áramótareyk yfir allt og áramótalyktin var alveg eins og heima þannig að við vorum sátt.
Við komum inn eftir að hafa skotið upp og horfðum á áramótaskaupið sem okkur þótti ekkert spes enda löngu komin með gubbuna af þessu ástandi, við hlógum þá á stöku stað á meðan við gæddum okkur á ís með heitri súkkulaðisósu.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs árs og vonum að það taki á móti ykkur sem okkur fullt af ævintýrum, ást og hamingju:)
Koss og knús
p.s. barnalandið fyllir inn í eyðurnar
3 responses to “Gleðilegt ár kæru vinir:)”
-
Gunnar MJ January 1st, 2010 at 13:53
Heil og sæl !
En hvað það var gaman að lesa þessa frábæru bloggfærslu frá ykkur. Þið hafið greinilega átt yndislegar stundir í Danaríki. Hafið það áfram sem allra best á nýju ári.
Gleðilegt ár.Kær kv. úr Keflavík
Gunnar Magnús og fj.sk. -
Mamma þín January 1st, 2010 at 14:16
Gleðilegt ár litla fallega fjölskylda, var að vakna, komin með kaffi og opna tölvuna og mér til mikillar gleði var komin færsla þar sm ég skoða flesta daga;-). Ég var í mat hjá Jökli og Bjargey ásamt hennar fólki, frábær matur og góður félagsskapur.Þar var grafin HALA bleikja sem ég hafði fært Jökli í sumar, hreindýr, önd og nautalund,la Jökull, og tobleronemousse a,la Bjargey, frábært allt saman. Var komin heim um 1 leitið og það var svo mikill reikur yfir öllu að ekki sást til næstu húsa:-( Núna er sól og stilla og frábært út að líta. Er auðvitað búin að renna í gegnum myndirnar á BL og er glöð að sjá hvað það var flottur matur og gaman hjá ykkur:-). Veit að árið kenndi okkur öllum eitthvað stórt og sýndi okkur hvers megnuð þið/við erum. Óska þess öllum til handa að þetta ár færi okkur gæfu og gleði, farsæld og fé:-) nýjar áskoranir og tækifæri. Knúskveðja á línuna, mamma, amma, tengdó.
-
Gunna og co January 2nd, 2010 at 00:49
Alltaf gaman að lesa bloggið ykkar og það hefur heldur betur ekki væst um ykkur fjölskylduna í DK.
Eitthvað kannast ég við þetta keppnisskap þarna enda erum við búin að vera í stökustu vandræðum með 5 ára stúlku sem neitar að tapa á móti foreldrum sínum í slönguspili eða Lúdó. Einar og Haukur hafa svo sem ekki langt að sækja kappið í móðurlegg, enda átti mamma þeirra ófá íslands- og heimsmet í sendiferðatímatöku, svo dæmi sé tekið
Hafið það nú gott og vonandi eigum við eftir að lesa langan og ótrúlega jákvæðan áramótapistil að ári, gerum 2010 að árinu
kv Gunna og co
Leave a reply
























