-
Kokkur eða mús?
Posted on December 31st, 2009 2 commentsJæja gott fólk. Þá er komið að því. Eftir miklar og oft á tíðum erfiðar rökræður er tíminn loksins kominn. Ég ætla að leggja putta á takka og tjá mig. Í fyrsta sinn í langan tíma byrja ég ekki minn innslátt á eihverju svona: class is.einarsson.jonatan.someGeekProgrammingStuff {.
Ég þarf actually að koma einhverju vitrænu í 0rð. Tjá mig. Segja eitthvað.
Það fyrsta sem mér dettur í hug er að tala um þessi kvöld sem að á undan eru gengin. Pressan sem hefur verið á mér er mikil. Undanfarin 34 ár hef ég notið þeirra forréttinda að veislumaturinn hefur verið framreiddur af frú Guðrúnu Bjarnveigu Magnúsdóttur. Tinna, Haukur og nú síðustu 4 ár, Einar, hafa einnig vanist þessari nánast geðveiku 10 stjörnu þjónustu. Tinna hefur auðvitað staðið sig með þvílíkri príði. Ég þurfti samt að faðma eldavélina. Kyssa hellurnar og nudda steikurnar.
Á aðfangadag elduðum við önd. Ekki skotna af okkur samt. Fengum þessa líka fínu djúpfrostnu önd á þorláksmessu. Komumst svo að því 2 tímum síðar að best er að þíða hana á þrem sólarhringum í ísskáp. Við létum tæpa tvo sólarhringa duga, fylltum hana með eplum og sveskjum og elduðum hana eftir meðaltals eldunartíma ca. 10 googlaðra uppskrifta. Ég penslaði hana reglulega með blöndu af hunangi og ferskum appelsínusafa. Útkoman var betri en við þorðum að vona þannig að ég slapp með skrekkinn það kvöldið.
Sósan tókst mjög vel líka. Ég smjörsteikti innmatinn og vængina (klipti þá af öndini þar sem að þeir verða svo þurrir hvort eð er) og lét þá malla ásamt lauk, gulrót, timiangrein, appelsínuberki og fl. ásamt rauðvíni og andakrafti í ca. 2 tíma. Ég siktaði og fleytti svo soðið og þykkti með rjóma og sætti með hunangi.Á jóladagskvöld höfðum við hamborgarhrygg. Hann tókst mjög vel enda erfitt að klúðra því.
Annan í jólum prófuðum við kalkúnabrjóst. Kjötið var safaríkt og gott en sósan var ekki eins og ég vonaði. Ég notaði maizenamjöl, blandað í rjóma sem að gerði áferð hennar frekar slepjulega. Hún var samt mjög bragðgóð þannig að ég endaði réttu meginn við núllið held ég.
Forrétturinn hafði líka mikið að segja. Við höfðum boðið vinafólki okkar í mat helgina áður og höfðum nautalund (hún var á tilboði… þá meina ég alvöru tilboði…. ekki íslensku tilboði
) og áttum smá sneið eftir sem að við grófum með timian, rosemarin, og fl.Eftir að hafa gætt okkur á afgöngum næstu daga kom loksins að því að Haukur kom. Jól nr. 2. Þá kom ekkert annað til greina en purusteik. Við keyptum
skinkusteik með puru þar sem að það er yfirleitt ekki hægt að kaupa bóg hérna úti. Puran var skorinn en ég fór samt með hníf í allar rákir og gætti þess að rifurnar væru nógu djúpar. Þær verða víst að ná alla leið að kjötinu. Það þarf samt að passa að skera ekki í kjötið sjálft og að það sé salt (ég notaði gróft sjáfarsalt) með hverri rifu. Ég setti 2 lárviðarlauf og 5 negulagla inn í rifurnar með jöfnu millibili. Ég fann svo góðan stað fyrir kjötmælinn þar sem að kjötið var þykkast, setti það í kaldan ofn og setti á 100° undir og yfirhita. Þegar mælirinn sýndi 50° hækkaði ég í 250° og beið eftir að mælirinn sýndi 62°. Heildar eldunartíminn var ca. 2:30 (ég var með 1.3 kílóa steik). Áður en að ég kveikti, passaði ég mig á að puran væri lárétt á grindini. Ég notaði stóra kartöflu sem að ég skar í 3 bita til þess að lyfta endanum á henni þannig að puran var nokkurnveginn rétt. Steikin fór beint á grindina en undir henni var ofnskúffa og í henni eldfast fat sem að náði rétt rúmlega flatarmáli steikarinnar. Í fatinu var ég með eitt lárviðarlauf en eftir 1 klst. setti ég ca. 2 dl. af vatni í það. Ég notaði svo fínt saxaðan lauk. vökvan úr fatinu, svínakraft, ribsberjagel og rjóma í sósuna.
Útkoman var vægast sagt frábær. Puran var stökk en kjötið mjög safaríkt.Nú er ég loksins búin að fá humarhala í humarsúpuna “a la Elli og Disda” og Hjartarsteikur fyrir gamlárskvöld. Næsta færsla frá mér verður um hvernig það heppnaðist…… 7-9-13.
2 responses to “Kokkur eða mús?”
-
Mamma þín December 31st, 2009 at 13:22
Oh það er svo gaman þegar vel heppnast, til hamingju með það:-).. Væri alveg til í að vera í fæði hjá þér alla daga.. En það er einmitt svona færsla sem færir ykkur baunafólkið nær okkur á landinu kalda.
Ég er hér eins og fluga á vegg:-)
Óska ykkur gæfu, gleði of farsældar á nýju ári.
Knúskveðja tengdó:-) -
Stóra systir December 31st, 2009 at 17:22
Glæsilegt – til hamingju með þetta fína blogg Jónatan:) og líka með matseldina, þetta hljómar allt vel og lítur vel út. Vona að áramótasteikin takist jafn vel og allt hitt!
Gleðilegt nýtt ár dúllurnar mínar og takk fyrir líðandi ár, vona að við hittumst nú fljótlega á nýju ári, þið látið vita um leið og dagsetningar fyrir heimsókn eru klárar!
Knús og kram á ykkur og eigið gott kvöld;)
Íris & co
Leave a reply
-


