blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Fyrstu fullorðins jólin okkar:)

    Posted on December 25th, 2009 tinna 5 comments

    Það verður nú að segjast að fyrstu fullorðin jólin okkar, allavegana það sem liðið er af þeim hafa verið alveg dásamleg. Við höfum vandað okkur sérstaklega í undirbúningi þessara jóla þar sem við vildum ekki klikka á einhverju sem gerir jólin að jólum.

    Við vöknuðum ekki fyrr en hálf tíu á aðfangadagsmorgun, það var litli maðurinn okkar sem vakti okkur og vildi kíkja í skóinn sinn. Það var sjálfsagt, enda ætluðum við að vera vöknuð, búin að borða hafragrautinn og drekka fyrsta kaffibollann á þessum tíma dags. Við seinkuðum því bara aðeins enda ekki nein pressa þar sem allt var klappað og klárt. Hafragrautur á sínum stað, sonurinn fékk sinn með stjörnuljósi þar sem það eru jól og var sáttur við uppátækjasemi pabba síns.

    jol 001Við áttum eitthvað smá eftir að bardúsa þegar það fór að nálgast hádegi okkur langaði að kaupa ferskt timian og möndlugjöfina sem verður þegar Haukur kemur þann 28. des. Við komumst að því að daninn er ekki að stressa sig á því að hafa opið á aðfangadag og því komum við að luktum dyrum í mollinu okkar. Við snérum okkur því bara til kaupmannsins á horninu, sem er með ekta arabaávaxtabúð. Þar fengum við ferskt timian og risa poka af cashew hnetum, inni hjá kaupmanninum voru allir grínandi og hlæjandi og kvöddu alla viðstadda með jólakveðju þegar viðskiptum dagsins var lokið. Við röltum okkur öll saman til kaupmannsins enda ótrúlega hressandi að viðra sig aðeins fyrir átök dagsins, matseld, át og pakka. Einar heimtaði stjörnuljós með í göngutúrinn þar sem það eru nú jól og að sjálfsögðu urðu foreldrarnir við því.

    jol 007Þegar við komum heim skelltum við okkur í að gera hádegismatinn/brunchinn tilbúinn. Við erum vön að fá heita kæfu, steikta sveppi, beikon, síld, harðfiskt og fleira góðgæti bæði í Sundstrætinu og á Völusteinsstræti á hverjum jólum á þessum tímapunkti dagsins. Við ætlum sko ekki að bregða út af vananum með það. Þetta var alveg æðislegt og við átum eiginlega aðeins of mikið og þurftum að leggja okkur aðeins eftir matinn.

    jol 009jol 013jol 010

    Fullkomin jól í augum Jónatans var að þurfa að vakna fyrir sólarupprás og byrja að elda matinn, þegar við vorum að ákveða jólamatinn og ég stakk upp á einhverju góðgæti þá kom vanalega hjá elsku manninum mínum, nei það er alltof einfalt eða það tekur bara klukkutíma. Þegar við sáum fína 3 kg önd á 50 kr þá var ákveðið að hafa önd í jólamatinn, ekki af því að okkur finnst önd svona góð eða erum klár að elda hana. Öndin er eitthvað sem krefst vandvirkni og tíma og það kann minn maður að meta. Við googluðum uppskriftir af önd og stefnan var tekin á ekta danska jólaönd. Ég mundi svo eftir nokkrum dönskum uppskriftablöðum sem elskuleg tengdamóðir mín hafði sent okkur þegar við vorum nýflutt í baunalandið og átti að vera okkur innblástur í danska matargerð. Þar var eitt jólablað og viti menn, auðvitað uppskrift af hefðbundinni danskri jólaönd:) Við kærustuparið hjálpuðumst að í eldhúsinu og Einar tók myndir af því sem fór fram, þar náði hann meðal annars myndum af rassi foreldra sinna og hló mikið af uppátækjaseminni í sjálfum sér.

    jol 039

    jol 032jol 029

    Við skiptumst á að fara í sturtu, baða barnið, setja pakkana undir jólatréð og allt það. Spennustigið hjá Einari fór upp í hæðstu hæðir og ekkert mikið neðar en það þannig að það var full vinna að elda og sinna drengnum. Það er alltaf ráð að setja Einar í sturtu þegar hann er að fara yfirum eða foreldrarnir eru orðnir soldið þreyttir og það endaði með að barnið fékk c.a. klukkutímasturtu. Hann var aðeins rólegari eftir sturtuna og fékkst til að koma í nærföt og setja pakkana undir jólatréð. Að sjálfsögðu var þetta ekki alveg sprelllaust, það þurfti að kyssa jólatréð, hlaupa með hvern pakka og fara erfiðu leiðina. En það er allt í lagi á jólunum:)

    jol 022jol 025
    jol 023

    Við festum eldamennskuna á filmu líkt og allt annað þennan dag. Sósusoðið var látið sjóða í einhverja klukkutíma samkvæmt kúnstarinnar reglum, Öndin pensluð eins og segir í uppskriftinni og hlúð að öðrum þáttum eldamennskunnar á allan þann hátt sem við kunnum. Ég var frú uppþvottavél, lagði á borð og sá um að finna áhöld, skálar og föt fyrir jólamatinn. Við vorum ótrúlega samstíga í elshúsinu þó ég segi sjálf frá, vorum meira að segja í eins svuntum:)

    jol 036jol 044jol 041

    Þó svo að ég komi ekki að flóknum þáttum eldamennskunar, ég bara smakka, rétti og vaska upp. Þá fékk ég að gera forréttinn með glöggu auga Jónatans yfir öxl mína. Við ákváðum að hafa gamaldags rækjukokteil og hann hitti í mark hjá okkur öllum og þá sérstaklega Einari, Einar segir reyndar hrækjur en ekki rækjur og þegar við reyndum að leiðrétta hann þá sagðist hann bara hafa séð þátt í snjóvarpinu og þar var sagt að þetta héti hrækjur en ekki rækjur. Hér má sjá nokkrar myndir af lokahnykknum í elshúsinu, rækjukokteilnum og veislumatnum okkar.

    jol 069jol 086
    jol 072Eldamennskan gekk nú ekki alveg áfallalaust fyrir sig en ég held að það sé af því að ég var farin að skipta mér af of miklu. En fyrsta tilraun af brúnuðum kartöflum misheppnaðist og brann. Við vorum ekki búin að setja kartöflurnar útá pönnuna þegar við uppgvötuðum að hún væri að brenna þannig að það var s.s. enginn skaði af. Þá tókum við upp símann og Jónatan átti spjall við mömmu sína sem miðlaði visku um brúnaðar kartöflur og þetta lukkaðist á endanum.

    Pakkarnir og allt það gekk vel fyrir sig, ég og Jónatan völdum okkur pakka til að opna núna og geymum rest þangað til að Haukur kemur. Einar fékk að opna alla sína pakka enda fékk hann eiginlega bara föt og því ekkert rosalega stórt bros á honum þó svo að foreldrarnir hafi verið glaðir. Fjarstýrði bíllinn og tölvuleikurinn sem var frá foreldrunum og Hauki bjargaði því brosinu ásamt nóa konfekti og Höllu ömmu ís. Einar var þó ekki eins fúll með fatapakkana og bróðir hans á sama aldri sem kláraði ekki einusinni að opna pakkana ef að hann sá að það væru föt í þeim. Hann gladdist mjög yfir hverri flýk sem hann fékk og það heyrðist vá, alveg ótrúlega flott, ég er aldeilis heppinn…… en er enginn pakki með dóti hérna fyrir mig kom svo. Einar er alveg yndislegur hvað þetta varðar.

    jol 080

    jol 095jol 090

    Einar spilaði tölvuleikinn frá Hauki, ég lagðist fyri niðjatal Elísabetar og Einars sem við fengum frá afa og Sigrúnu og Jónatan drakk Arnald í sig. Við enduðum kvöldið á að draga sófann okkar út og horfa á Jóhannes sem við fengum frá mömmu og pabba á Völó og heyra í vinum og ættingjum í gegnum skype eða símann.

    jol 098

    Við hugsuðum mikið til ömmu og afa á Völó, þetta eru fyrstu jólin sem Jónatan er ekki í foreldrahúsum og fyrstu jólin okar saman sem við erum ekki þar. Ekki nóg með það þá var Kristinn Gauti í Reykjavík þar sem hann og Salóme eru ekki ferðafær vegna óþægrar stúlku sem er á leiðinni í þennan heim og er með soldið vesen. Ekki nóg með það að við vorum ekki hjá ömmu og afa þá var svo brjálað veður að messunni var aflýst, þegar við hringdum í kartöfluvandræðunum okkar þá sagði amma að hún vissi sko ekkert hvernig hún ætti að haga undirbúningnum hún væri meira að segja búin að leyfa sér að kúra aðeins og slappa af. Eitthvað sem hefur ekki alveg verið í boði fyrir organistann með + 7 manns í mat alltaf á jólum. Við gátum svo ekki annað en hlegið þegar Jónatan talaði við Kristinn Gauta og sagði okkur að amma, afi og Finni frændi hefðu þurft að hætta með möndlugrautinn þar sem þau voru búin með hálfa skál og engin mandla komin og þau öll alveg að springa. Þar vantaði pottþétt drengina mína til að taka sinn skammt:)

    Dagurinn í dag fór í afslöppun og lestur, skelltum okkur í íslenska messu í Skt. Paulskirke þar sem við fengum að syngja Heimsum ból og allt það sem fylgir jólunum. Snjórinn sem hefur hulið jörðina fór í nótt og á móti okkur tók hellidemba í allan dag, við fórum samt í smá labbitúr á leiðinni úr kirkjunni.

    jol 105

    jol 107jol 106

    Takk kærlega fyrir okkur allir, við erum ekki búin að opna allt þar sem við höldum hin eiginlegu jól þegar Haukur kemur en það sem er komið, pakkar, kort og aðrar yndislegar sendingar vekja gleði.

    Það voru engin jólkort send í ár, ég sendi því hérmeð jólakveðju, koss og knús vona að þið kvittið fyrir innlitið og haldið áfram að fylgjast með okkur í baunalandinu. Eins og alltaf þá settum við inn einhverjar 100 myndir á barnalandið sem fylla inn í eyðurnar um jólin okkar.

    Tinna og kó

     

    5 responses to “Fyrstu fullorðins jólin okkar:)”

    1. Elsku fjöldskylda,
      Gleðileg jól, gaman að sjá jólaundirbúningin hjá ykkur og hvað hann tókst vel. Heyri í ykkur um áramótin.
      Kossar og knús úr Skipagötunni

    2. Yndisleg eruð þið í landi Bauna;) Frábært að heyra af ykkar jólabralli og Einar er greinilega alveg meðetta eins og svo oft áður.
      Jólaknús úr Hlöðutúni:)

    3. Thelma og strákarnir

      Jólin hafa greinilega verið gleðileg hjá ykkur – skemmtileg lesning og flottar myndir, sérstaklega þessar af afturendum foreldrana :-)

      Jólaknús til ykkar frá okkur í Hafnarfirðinum

    4. Hæhæ stóra fjölskylda

    5. Úbbs eitthvað aðeins að klikka hjá mér :)

      Það sem ég vildi sagt hafa…

      Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár, sé að þið hafið haft það notalegt þarna úti, enda ekki við öðru að búast.

      Bestu kveðjur og sjáumst vonandi á næsta ári!

      Kveðja
      Gerða, Gummi og Gunnar Þór

    Leave a reply