blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Jóla, jóla, jóla…. Jóla, jóla, jóla

    Posted on December 23rd, 2009 tinna 3 comments

    Stend mig að því að þykja ég ofur þroskuð og fullorðin þegar ég plana innkaup fyrir jólasteikina, bý til rauðkálið, jólaísinn og fleira sem tilheyrir. Síminn er á lofti, sms, skype og tölvupóstur til að fá ráð hjá mömmum, systrum og öðrum sem til þekkja. Það á allt að vera fullkomið, eitthvað erum við að prufa í fyrsta skiptið og verður kannski að hefð á okkar heimili. Annað á að vera eins og hjá mömmu eða ömmu og þá skal vandað sig.

    Í gær gerðum við rauðkál, rauðlauks chutney, sörur og jólaísinn. Við ætlum aðeins að segja ykkur frá hvað við gerðum og hvernig:) Við fundum góða uppskrift af rauðkálinu með því að googla rauðkál, negull og kanill í sama streng. Rauðkálið er bara ekki jólarauðkál án kanils og neguls og þá sérstaklega vegna lyktarinnar þegar maður er að búa það til. Við keyptum tvo rauðkálshausa til að vera viss um að hafa nóg. Jónatan vigtaði þá og sagði svo að þetta væri akkúrat nóg í fjórfalda uppskrift, okkur þætti þetta nú alltaf svo gott. Þegar við byrjuðum að skera þetta var fljótt hætt við fjórfalda uppskrift og skellt í tvöfalda.

    jol 008

    • 750 gr. rauðkál
    • 1 epli
    • 1 rauðlaukur( frekar lítill)
    • 50 gr. smjör
    • 1/2 tesk negull
    • 1/2 kanill
    • 2 msk. balsamik edik
    • 5 msk. rifsberjasulta

    Rauðkálið skorið niður frekar smátt. Laukurinn saxaður. Eplið skorið smátt. Smjörið sett á pönnu og laukurinn mýktur í því með kanil og negul. Kálið og eplið sett útí með smá vatni. Passa að brenna ekki. Balsamikið og sultan útí og soðið í ca. 50-60 mín. við vægan hita.

    jol 010jol 043

    Rauðkálið smakkast alveg einstaklega vel og ég hlakka til að borða það, við erum svo heppin með hann Einar okkar að rauðkál er eitt af því sem hann borðar eintómt og því er eins gott að eiga nóg fyrir litla manninn okkar.

    Rauðlauks chutneyið gerðum við þegar við vorum búin að koma rauðkálinu af stað. Íris systir segir að þetta sé alveg nauðsynlegt með svínasteikinni og við tókum hana á orðinu. Keyptum helling af rauðlauk og skelltum í einfalda uppskrift þar sem þetta er okkar fyrsta tilraun.

    jol 011

    • 750 gr    Rauðlaukur
    • 250ml    Eplaedik/balsamik
    • 1 tsk cummin (malað)
    • ½ tsk negull (BADIA)
    • Chili pipar á hnífsoddi
    • Piparkorn (kannski 10 korn – heil)
    • Salt
    • 225gr púðursykur

    Laukurinn afhýddur og saxaður gróft. Settur í pott ásamt ediki og kryddi. Hitað  að auðu og látið sjóða nokkuð rösklega í  um 15 mín. Þá er púðursykri bætt út í og látið  sjóða við meðalhita í opnum potti í  um 1 klst eða þar til maukið hefur þykknað. Sett á krukkur meðan það er heitt, geymist nokkrar vikur í kæli. Ef krukkur eru dauðhreinsaðar og lokað vel, gæti þetta geymst allt að ári á köldum stað.

    Rauðlauks chutneyið smakkast líka alveg rosalega vel og við hlökkum til að borða það með steikinni og sjá hvort að þetta verði barasta ekki að hefð.

    Á meðan rauðkálið og laukurinn mölluðu á gaseldavélinni okkar þá skelltum við í sörur, þær eru ennþá work in progress þar sem við fórum af stað með mikla dagskrá í gærkvöldi og þegar klukkan var miðnætti þá langaði okkur bara að fara að lúlla en ekki klára að setja krem á sörurnar. Það bíður þó allt tilbúðið, bakaðar sörur og tilbúið krem. Núna er það bara að bræða súkkulaðið og hefja ferlið.

    jol 014

    Ísinn hennar Höllu ömmu er ómissandi á jólum, amma Gunna sendi okkur uppskriftina og við enduðum á að gera ísinn hennar.

    • 5 egg
    • 250 gr sykur
    • vanilludropar
    • 1 l rjómi
    • bætiefni (súkkulaðispænir eða hvað sem maður kýs)

    Byrja á því að þeyta eggin og sykurinn vel saman og setja vanilludropana með. Þeyta rjómann sér og blanda svo rjómanum og eggjablöndunni varlega saman. Bætiefnin eru svo sett síðust.

    Við skiptum blöndunni í tvo hluta, í annan hlutann settum við rifið íslenskt konsum súkkulaði og í hinn settum við nóakropp sem við fengum sent frá frábærri vinkonu um daginn (takk Gunna mín fyrir sendinguna)

    jol 036jol 037

    Verð að segja að þrátt fyrir að þykja ég ofur fullorðin við að undirbúa okkar fyrstu jól alveg alein með mínum heittelskaða og litla manninum okkar. Þá er þetta alveg ótrúlega skemmtilegt, við höfum hlustað á léttbylgjuna sem spilar bara jólalög daginn út og inn og njótum þess að fylla heimilið af jólum.

    Yfir Kaupmannahöfn liggur fallegur jólasnjór og við gætum ekki verið ánægðari með það, á síðustu helgi var farið á snjóþotu í Söndemarken, verslað jólatré, drukkið heitt kakó og jólaglögg með piparkökum.

    jol 093jol 126

    jol 109


    Einar endaði svo helgina á því að setja gat á hökuna á sér, við fórum upp á spítala til að láta sauma. Þetta er jú í þriðja skiptið sem að barnið gatar á sér hökuna og við þekkjum ferlið…. eða það héldum við. Þeir voru ekki tilbúnir að gera neitt fyrir sárið hans Einars. Sögðust ekki geta gengið frá því betur en líkaminn myndi láta það gróa, við létum í ljós óánægju með þessa afgreiðslu en maður stendur svo sem ekki og þrætir við læknirinn. Einar er þar af leiðandi með risa sár á hökunni sem á mjög líklega eftir að skilja eftir sig gott ör.

    jol 002jol 006

    Við erum búin að fylla barnalandið af myndum http://barnaland.is/barn/22137/ vona að þið gefið ykkur tíma til að kíkja og sjá hvað við erum búin að vera að bralla.

    Kossar og knús frá okkur til ykkar

     

    3 responses to “Jóla, jóla, jóla…. Jóla, jóla, jóla”

    1. Halló elskurnar, aleinar í útlöndum.
      Auðvitað gengur þetta allt upp þegar á reinir, bara að líta á björtu hliðarnar þið eruð þó allavega með jólasnjóinn það er meira en við getum sagt;o)Sendum ykkur risa jólaknús úr Skipagötunni. Vorum að ljúka við skötuveisluna sem tókst mjög vel að vanda og var hún (skatan) vel kæst, mun betri en í fyrra(sagt á hverju ári)
      Saknðarkveðjur
      Gunnhildur, Addi og Arnar Friðrik

    2. Ekki að að spyrja, þið rúllið upp hefbundnum jólum eins og ekkert sé þökk sé áralangri og ekki svo ólíkri hefð frá báðum heimilum. Er komin vestur eins og þú veist og þegar ég renndi í hlað var stóra systir að ganga frá sínu rauðkáli og chutnei:-) Leið vel eftir samtal okkar í dag og finn að þið eruð á góðu róli :-) Auðvitað hugsum við til ykkar ein í útlöndum, en ég veit að þetta verða jólin sem þið mynnist síðar meir með gleði og stolti.
      Jólakveðja mamma..

    3. Auðvitað rúllið þið þessu upp! Við ákváðum að halda Íslensk jól hérna eftir 3 sænsk. Engin skinka takk. Sé ykkur í anda með rauðkálslyktina um alla íbúð, þetta var gert á mínu heimili. Er núna að búa til ísinn. Allt á kafi í snjó. Gleðileg jól pabbi

    Leave a reply