blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Góðir dagar

    Posted on April 30th, 2010 tinna 3 comments

    Fínir dagar hjá Tinnu litlu þessa dagana

    • Big sys kom óvænt og gaf mér heimsins besta systra knús á sunnudaginn síðasta, stoppaði hjá mér í 1 klst á leið sinni til Brussel
    • Ég byrja að vinna á leikskóla á mánudaginn og verð þar 5 næstu mánuðina
    • Tóta baunasystir og Eyþór sjarmatröll ætla að kíkja á okkur á miðvikudaginn og lúlla eina nótt hjá okkur
    • Bræðurnir Kristinn Gauti og Magnús Már koma svo til okkar á fimmtudaginn og með Magnúsi í för verður geimsteinninn hann Guðmundur Elí.
    • Föstudaginn 14. maí förum við Einar svo í langþráða ferð til íslands og stoppum í 5 daga
    • Einar er alveg að fara að ná því að flauta
    • Haukur var valinn í úrvalsbúðir KKÍ í sumar og við erum ofboðslega stollt af honum, enda er hann ótrúlega duglegur að æfa sig.

    knús og koss

  • Einar er svo mikil steik

    Posted on April 19th, 2010 tinna No comments

    Mamma, pældu í því ef að ég væri hafragrautur, það væri nú alveg bilað. Þá myndir þú kannski bara borða mig he he:)

  • Ég er bara svo skotinn í þessum strák….

    Posted on April 16th, 2010 tinna No comments

    …. ég vil bara alltaf hlusta á hann….

    Einar jr. að tala um þennan hérna kappa:)

    http://www.youtube.com/watch?v=uiH4BFTELME&feature=related

    Sagði svo við mömmu sína, ekki syngja með, hlustaðu bara núna.

    hilsen

  • Mamma keyptu meiri svona tannþálf….

    Posted on April 13th, 2010 tinna No comments

    Stundum heyra litlir menn ekki alveg hvað hlutirnir heita

    Tannþálfur=Tannþráður

    kveðja Tinna og Einar