-
Vika 4 – pabbi minn, foreldraviðtal og fl.
Posted on January 31st, 2010 4 commentsÍ viku fjögur þá var pabbi minn í heimsókn, það sem er svo gaman við að hafa hann pabba minn í heimsókn er að það er svo mikið “fyrst” hjá okkur. Við nefninlega höfum ekki búið undir sama þaki nema þegar ég var lítil stelpa og ekki byrjuð að muna og því er eins og ég segi voðalega mikið fyrst hjá okkur:) Vakna og rölta fram og kúra hjá pabba er eitthvað sem ég man ekkert rosalega mikið eftir, kyssa góða nótt, fara út í búð, horfa á friends og hlæja og allt svona rosalega venjulegt var alveg æðislegt. Vikan einkenndist af túristaleik um Köben bakarísferðum hjá karli föður mínum, en hann er alveg ótrúlegur bakarískall (flestir vilja fara í H & M, borða Sushi og eitthvað svona en pabbi vildi bakarí) kaffihúsastoppum fyrir lúnar fætur og kósýheitum fyrir framan sjónvarpið þegar það var komið inn úr kuldanum. Handboltinn er náttúrulega búinn að vera á fullu og sjónvarpsdagskráin í takt við það, pabbi var svo feginn að hafa valið þessa viku til að koma þar sem Hera er alveg drulluhrædd þegar pabbi horfir á íþróttaviðburði heima hjá sér. Það var ótrúlega gott að hafa pabba minn og soldið erfitt að kveðja kallinn á flugvellinum í morgun.

Annað sem gerðist í viku númer fjögur, hér er jú allt talið í vikum og því eðlilegast að nota vikurnar. Á miðvikudaginn fórum við í foreldraviðtal á leikskólanum, við vorum sem fyrr þegar komið er út af svona fundum klökk af stolti enda drengurinn algjört æði. Ég ætla að setja upp nokkra punkta og gera viðtalinu góð skil þar sem ég er ekki þekkt fyrir neitt annað en að monnta mig vel af mér og mínum.
Þau á leikskólanum eru með ákveðið skema til að fylgjast með þroska barnanna á leikskólanum. Þetta er hringur og er hringndum skipt upp í ákveðin svið t.d. er 1/4 af hringnum málið, 1/5 samskipti og svo framvegis. Í hverjum hluta eru svo reytir með tölum sem samsvara spurninga/prófunar/matsblaði leiðbeinandana. Þegar barnið hefur “uppfyllt” eitthvað af þessu blaði þá er litað í samsvarandi reit í hringnum, vona að þið sjáið þetta fyrir ykkur núna. Það sem þau voru svo ótrúlega monntin af og þótti ótrúlegt er að drengurinn okkar var með allan málapartinn litaðann. Við fengum að heyra:
- ótrúlegt hvað hann hefur aðlagast hratt og vel
- hann er með stóran orðaforða og í sumum tilfellum stærri en jafnaldrarnir
- hann er með alla málfræði á hreinu
- vanalega þegar við erum með tvítyngd börn þá eigum við að taka þau afsíðis til að örva þau enn frekar með málið, en þess höfum við ekki þurft með Einar.
Á þessum tímapunkti var mamman byrjuð að roðna og pabbinn farinn að setja bringuna fram af stollti – eða var það öfugt…. ég man það ekki…:)
Við fengum líka að heyra að.
- Hann væri hrókur alls fagnaðar í söng og leik.
- Krökkunum þætti hann ótrúlega skemmtilegur enda alltaf með fýflalæti og grín, en þessi fýflalæti og grín vekja ekki alveg sömu gleði hjá föstrunum.
- Hann væri skarpur og færi fremstur í flokki að þekkja stafi, tölur, liti og þess háttar dót
- Að hann þyrfti bara að heyra rímur og lög einusinni og þá væri hann með þær á hreinu
Við fengum svo líka að heyra að
- Einar borðar ekki rúgbrauð
- Einar heyrir bara það sem hann vill heyra
- Einar er ákveðinn og gerir bara allsekki það sem honum finnst leiðinlegt
- Einar gerir bara það sem honum finnst skemmtilegt, t.d. það að klæða sig. Það þykir honum leiðinlegt og þess vegna gerir hann það ekki.
- Þrátt fyrir að Einar sé tekinn afsíðis til að vera fjarri krökkunum sem hlæja þegar hann segir brandarana, er alveg aleinn með fóstrunni og á að klæða sig sjálfur þá fer hann í peysuna, lætur ermarnar vera vængi og leikur fugl… af því að svona er Einar
- Einar á erfitt með að sitja kjurr og í matmálstímum er hann að klöngrast á stólnum, liggur á bakinu á stólnum, dettur í gólfið, hellir niður og eitthvað fleira sem ég skammaðist mín of mikið fyrir til að heyra…
- Ef að Einari þykir ekki eitthvað skemmtilegt, þá getur hann ekki einbeytt sér. Þau töldu lengi að það væri tungumálið og að hann væri að einbeyta sér að skilja, en eftir að hafa metið hann á þann hátt sem hann var metin þá segja þær stopp nú, Einar þú verður að taka þér tak…
Niðurstaða fundarin var s.s. sú að barnið er mjög gáfað og ótrúlega gott í dönsku og er með allt litað í topp í þeim pörtum í skemanu. En það sem snýr að einbeytingu og hlýðni er bara ekki að skora svo feitt. Pabbinn bennti á mömmuna og mamman horfði á borðplötuna og mumlaði eitthvað. Þetta þarf að laga í samstilltu átaki heimilis og leikskóla. Ég þarf að hætta að vekja hann með því að taka hann ofurblítt í fangið, klæða hann á meðan hann vaknar í fanginu mínu, bera hann svo inn í stofu þar sem pabbi hans bíður með morgunmat og uppáhalds barnaefnið. Ég þarf að hætta að sitja með hann í fanginu fyrir framan barnaefnið og mata hann. Ég þarf að hætta að klæða hann í útfatamúnderinguna og leiða hann að útidyrahurðinni. Og þetta er bara einn partur af góðri þjónustu móðurinnar á heimilinu sem þarf að skera niður, ætla nú ekki að fara út í fleiri ósiði sem ég er búin að venja barnið á….. úps…..
En að öðru, þá hefur verið ótrúlega kalt og til að gefa ykkur einhverja hugmynd um hversu kalt þá byggðum við Einar snjókall í upphafi viku 2 sem stendur ennþá flotur og fínn í enda viku 4. Í dag afrekuðum við Einar að byggja við snjókallinn, við skunduðum út á tún og hrúguðum snjó fyrir aftan snjókallinn. Úr því varð fyrst snjóhrúga, svo brekka sem við renndum okkur niður á snjóþotunni, á tímabili var þetta hestur, en svo endaði þetta í snjógöngum með þremur opum. Einar skríkti og hló og sagði reglulega, mamma þetta er svo skemmtilegt. Ég sagði reglulega, ekki skemma neitt, passaðu þig að reka þig ekki í, passaðu snjóhúsið mitt, er mamma ekki dugleg….. svo mættumst við Einar í göngunum, ég sveitt og móð og másandi af kappseminni við að byggja snjóhúsið horfðum í augun á hvort öðru og brostum. Þá sagði Einar við mömmu sína “mamma, þú ert með kanínutennur”. Já mamman er með kanínutennur, það var bara svo fyndið að heyra Einar segja þetta á þessu mómenti að ég hló mig máttlausa og hann sömuleiðis. Að sjálfsögðu ræstum við pabbann út til að taka myndir svo við (ég) gætum monntað okkur af afreki dagsins. (N.B pabbinn hjálpaði ekki, en hann vaskaði upp seinna um daginn þannig að hann sleppur á pari)
Talandi meira um kuldan þá er þetta kaldasti vetur í rúmlega 20 ár, við hjólum samt um allt og það getur verið ansi skrautlegt. Sérstaklega þegar maður lendir í snjóbyl og ófærð og í staðin fyrir að renna niður brekkurnar þá þarf maður að hjóla niður brekkurnar. Ég hugsa svo oft til þess þegar ég er að hjóla á æfingu eða heim. Ég spilaði með ÍS/Val í næstum 3 tímabil og bjó ekki lengra en 1 km frá og ég held að ég telji það undir 10 skiptum sem ég labbaði á æfingu. Hér að neðan er ég að koma af æfingu eftir að hafa cykeled hjem i snestorm.
Einar ætlar að kíkja í heimsókn til íslands í febrúar, fer heim með stóra bróður 21. feb og verður til 10. mars. Hann ætlar að vera eitthvað hjá ömmu og afa í sveitinni eins og hann orðaði það um daginn og svo eitthvað hjá Högna og Írisi í Stykkishólmi, mamman og pabbinn ætla að njóta þess að vera barnlaus í fyrsta skiptið í heilt ár og rækta hvort annað á allan þann hátt sem þau geta.
Ég er alltaf á fullu í körfunni, Nú er grunnspilinu að verða lokið og mellemspilið fer að hefjast. Við höfum ekki náð að vinna marga leiki þrátt fyrir að vera að spila feiki vel á köflum, þess bar að geta að flest liðin eru með 1-2 erlenda leikmenn og við ekki neinn. Ég held áfram að vera í byrjunarliðinu og skila ágætlega til liðsins og þykir þetta skemmtilegra en nokkru sinni fyrr. Framundan er svo hörkuhelgi hjá kellu, en leikur í Lemvig a.k.a lengstíburtu á laugardaginn sem krefst þess að við keyrum af stað á föstudagskvöldi, spilum svo um hádegi á laugardeginum. Á sunnudeginum er svo komið að stjörnuleik þeirra dana Denmark vs.The World og ég hef verið valiln í The World liðið, þetta verður örugglega þrælskemmtilegt:)
Haukur kemur til okkar 17. febrúar og fer heim samferða bróður sínum þann 21. febrúar. Haukurinn okkar býsnast yfir því að hafa mikið að gera, kennararnir alveg rosalegir að setja á próf og hann er bara alveg hættur að eiga helgarfrí. Drengurinn er náttúrulega að verða 11 ára gamall eftir slétta 10 daga og kröfurnar verða jú meiri eftir því sem maður eldist, þannig að það er nú ekki alltaf tekið út með sældinni að eiga afmæli. Óskalistinn er froskur, körfuboltaskór, NBA dót, bækur og fleira í þeim dúr, hann er reyndar í bölvuðu basli með að segja hvað honum langar í þar sem hann virðist hafa klárað allar óskirnar sínar um jólin og þau eru bara nýbúin:)
Barnið hjá Kristni og Salóme á svo að koma í heiminn á morgunn, við bíðum spennt við símann þessa dagana enda mikil tilhlökkun í fjölskyldunni að fá litlu prinsessuna í heiminn:)
Að lokum óskum við afmælisbörnum vikunnar til hamingju með daginn sem þeir áttu.
Elsku pabbi, afi, tengdó…. til hamingju með 27. janúar:)
Og elsku Högni, Pétur, besti vinur og allt það, til hamingju með stórafmælið 28. janúar. 40 ár er ekkert smá fyrir svona gaur eins og þig mwa*
knús og koss
Tinna Björk
p.s hérna er mynd af Jónatani í eldhúsinu:)
-
Einar 5 ára
Posted on January 26th, 2010 1 commentEinar er orðinn 5 ára, varð það þann 18. janúar síðastliðinn. Við skelltum nokkrum myndum inn á barnaland en annars höfum við ekkert tjáð okkur um þennan merka áfanga hjá syninum. Hérna er Einar í fallegu jakkafötunum sem pabbi hans átti þegar hann var lítill. Við héldum smá afmæliskaffi fyrir Einar og að sjálfsögðu vildi Einar vera í sínu fínasta pússi.
Þegar kaffiboðið var búið skreyttum við köku til að taka með á leikskólann og það er óhætt að segja að kakan vakti mikla lukku, fyrir utan það að vera alltof stór fyrir 20 krakka þá var hún alveg ótrúlega góð og var étin upp til agna.
Annar er Einar orðin mjög fullorðin eftir þennan afmælidag, það er búið að heyrast, Mannstu þegar ég var 4 ára, það var bara þegar ég var 4 ára, þú ert að halda á mér alveg eins og þegar ég var 4ára, er þetta fyrir 5 ára börn….. og fleira i þessum dúr, drengurinn er náttúrulega algjör perla.
meira síðar, afi Simmi er í heimsókn og við erum upptekin við að túristast í kuldanum í Köben:)
-
stutt blogg úr kuldanum
Posted on January 8th, 2010 1 commentÞetta er í fréttum í vikunni- Það er alveg ótrúlega kalt og við notum lopapeysurnar, ullarfötin og annan hlýjan fatnað óspart. Við hjólum samt um allt, það er ekki málið. Förum samt virkilega varlega svo við rennum ekki í snjónum og hálkunni. Held að ég hafi ekki hjólað í snjó síðan 1990 þegar ég fékk fjallahjól í jólagjöf og varð að prufa það samstundis.
- Einar er byrjaður að fá mat í leikskólanum þannig að vi er slut med madpakken. Jedúdda hvað ég elska það, miklu meiri ró hérna á morgnana og Einar er virkilega ánægður með matinn. Í þessari viku er hann búinn að fá. Pasta með kjötsósu sem smakkaðist gott (takið eftir SMAKKAÐIST gott) Einar er byrjaður að vera með soldið dönskuskotna íslensku. Svo er hann búinn að fá kartöflusúpu sem var ekki góð en maður verður alveg ótrúlega sterkur ef maður borðar hana þannig að hann kláraði hana alla. Svo fékk hann rúgbrauð með steiktum lauk sem smakkaðist eins og súkkulaði, en það var víst leyndó sem ég mátti engum segja.
- Harmleikur um daginn þar sem við gleymdum litla og stóra á leikskólanum og urðum að snúa við og sækja þá. Þá kom í ljós að litli var bara á nærbuxunum en stóri hjólaði sjálfur alla leið heim. Eins gott að þetta reddaðist allt… fjúff;)
- Einar hefur stækkað alveg svakalega enda að verða 5 ára gamall síðar í mánuðinum og borðar í samræmi við að það sé vaxtakippur í gangi. Er samt farinn að fatta að foreldrarnir eru að leggja áherslu á að hann borði vel og í hvert sinn sem við segjum “jæja nú er kominn tími til að pissa og bursta” þá kemur strax “ég er alveg ótrúlega svangur, ég bara verð að borða eitthvað”. Og við að sjálfsögðu grípum þetta á lofti og fyllum hann af einhverju góðu fyrir nóttina svo hann geti haldið áfram að stækka:)
- Æfingarnar byrjuðu aftur eftir jólafrí í vikunni, harðsperrur og þreyta er orð vikunar hjá mér. En vá hvað ég elska það að vera komin af stað aftur;)
- Við söknum Hauksins okkar óendanlega mikið enda leið tíminn ótrúlega hratt yfir áramótin með honum, við getum ekki beðið eftir að hann komi aftur í febrúar. Hérna að neðan má sjá hann alveg í stuðinu á gamlárskvöld;)

Annars er mest lítið að frétta…..
knús og koss
-
Gleðilegt ár kæru vinir:)
Posted on January 1st, 2010 3 commentsEnn eitt árið er gengið í garð, ekki að það komi neinum á óvart en ég verð alltaf voðalega meir á áramótum og fæ kökk í hálsin af skrítnustu tilefnum. Ég er búin að hugsa mikið um að skrifa einhvern annál fyrir hönd okkar í litlu fjölskyldunni en ég held að ég láti það vera.
Sannleikurinn er sá að við lögðum af stað í ævintýri í upphafi árs og biðum spennt eftir því að reyna okkur á nýjum stað í nýju landi. Hlutirnir hafa æxlast þannig að þegar ég lít til baka þá er þetta eitt af mínum erfiðustu árum en á sömu stundu eitt af lærdómsríkustu tímabilum sem ég hef upplifað. Við trúum því að þetta sé ennþá ævintýri, núna erum við að upplifa erfiða og harða tíma. Svo munum við rísa upp og sigra “vonda kallinn” og lifa hamingjusöm til æviloka.
En færum okkur að jólunum okkar með Hauki Sindra, dögunum til áramóta og alls þess skemmtilega sem við höfum brallað undanfarna daga…..grunar að þetta verði langt blogg:)
Haukur Sindri lenti um kvöldmatarleitið þann 28. desember. Fjölskyldufaðirinn er búinn að blogga um hvernig matseldin gekk fyrir sig og því óþarfi að lýsa því í smáatriðum og láta duga að segja hversu ótrúlega góður maturinn var. Við sameinuðum hefðirnar á besta hátt sem hægt er. Hjá mér hefur verið hefð fyrir að hafa graflax í forrétt á jólum, hjá okkur báðum hefur verið svínasteik með puru í aðalrétt og hjá Jónatani hefur svo verið möndlugrautur í eftirrétt. Þannig að við tókum forréttinn frá minni hefð, aðalréttinn frá okkur báðum og eftirréttinn frá Jónatani, sannkölluð 50/50 skipti. En allavegana, á meðan ég og Einar sóttum Hauk þá undirbjó Jónatan ratleik til að stytta drengjunum stundirnar á meðan við myndum klára matarstússið. Þegar við vorum klár með matinn þá ákváðum við að koma drengjunum á óvart, sendum þá inní herbergi og merktum diskana okkar á soldið sérstakan hátt sem gladdi þá einstaklega mikið.
Einar var eiginlega einum of töff þetta kvöld, fyrir utan hvað hann var spenntur og glaður yfir því að hafa bróðir sinn og fór gjörsamlega á kostum. Stóð upp á stólnum í miðjum matnum og sagði “mig langar að skála þar sem Haukur er kominn til okkar” alveg eins og hann væri alvarlegur fullorðinn maður:) Spennan var slík að hann fann sér svo alla pakka sem voru merktir honum og reif þá upp og við náðum engan vegin að stöðva hann, þannig að við verðum að viðurkenna að við vitum ekki alveg 100% hvað er frá hverjum og þá sérstaklega hvaða bók hann fékk frá hverjum sem er virkilega leiðinlegt þar sem við erum vön að merkja allar bækur með nafni þess sem á bókina, af hvaða tilefni hún kom til okkar og frá hverjum ef það á við.
Þegar við vorum búin að opna pakkana þá lögðumst við í sófann, sóttum möndlugrautinn og horfðum á DVD sem Haukur fékk frá Högna, Írisi og kó um atvinnumennina okkar. Einar endaði með möndluna en er svo sætur að hann sagði að hann hefði fengið hana fyrir okkur öll af því að við værum fjölskylda og heimtaði að það yrði tekin mynd af öllum með möndluna annað væri bara ekki sanngjarnt.Þar sem allir fjölskyldumeðlimir eru handhafar árskorts í Tívolí var ákveðið að eyða næsta degi í Tívolí, við skelltum okkur snemma af stað enda viðbúið að það yrði traffík í Tívolíinu. Jólatívolí er alveg ótrúlega flott og mikið skreytt, það var alveg ótrúlega kalt en við vorum vel búin til að fjárfesta í túrpassa á línuna og eyða öllum deginum þarna. Einar verður hugrakkari og hugrakkari með hverri tívolíferð sem við förum í en Haukur er alltaf jafn tívolíglaður og rússíbanasjúkur og því var farið í alla rússíbanana.
Þegar okkur var orðið kalt þá skelltum við okkur inn á kaffihús, strákarnir fengu sér heitt kakó og mamman og pabbinn fengu sér heitt glögg. Það var rosalega gott að hlýja sér aðeins, pissa og hlaða batterýin fyrir fleiri ferðir í tækin. Við biðum líka spennt eftir flugeldasýningunni sem er alltaf á milli jóla og nýárs klukkan sex. Það er virkilega gaman að rölta um þegar það byrjar að rökkva og ljósin verða einhvernvegin miklu flottari og stemmingin verður alveg ótrúleg.
Við enduðum daginn á að fá okkur pizzu á nálægum veitingastað og fórum svo heim og kláruðum að horfa á atvinnumennina okkar. Við vorum soldið lúin eftir daginn í Tívolíinu og því ótrúlega gott að fara í kósýföt og kúra bara í sófanum heima og hlaða batterýin fyrir næstu daga.
Haukur vaknaði svo daginn eftir með gullfoss og geysi og leið ekki vel. Pabbinn sá um áramótainnkaupin á meðan við kúrðum okkur yfir misgáfulegu sjónvarpsefni og tölvuleikjum. Þetta gekk nú fljótt yfir hjá Hauksanum okkar og um kvöldmatarleitið var hann orðinn nokkuð hress. Þennan dag var afgangadagur enda alveg ótrúlegt magn af mat sem safnast upp á svona hátíðardögum. Eftir matinn þá ákváðum við að spila Pictionary og komumst að því að Einar og Haukur hafa svo sannarlega keppnisskapið frá mömmu sinni. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til þá hef ég skánað mikið, þegar Haukur var lítill þá gat ég ekki einusinni leift honum að vinna mig í einföldum spilum þar sem ég er svo svakalega tapsár. Ég hef aðeins unnið í þessu gagnvart drengjunum mínum og get núna spilað við þá með aðeins meiri ólympíuhugsjón s.s. að vera með en ekki vinna. Reglurnar voru aðeins sveigðar til þar sem Einar hefur ekki alveg skilning á spilinu. Einar og pabbi voru saman í liði og svo Haukur og mamma. Einar var alveg ótrúlega klár að geta upp á réttu teikningunum hjá pabba sínum og Haukur var alveg að trompast yfir reglunum þar sem pabbi mátti tala aðeins með teikningunum til að hjálpa Einari á sporið. Einar og pabbi höfðu forskotið framan af þangað til að Haukur fékk alveg nóg og við tókum okkur á og komumst framúr Einari og pabba. Þá varð allt vitlaust hjá Einari, grátur og læti sem ætlaði engan endi að taka. Einar heimtaði að kasta teningnum án þess að geta rétt til að komast aftur framúr mömmu og Hauki en var sagt að það væri að svindla. Hann sættist á að prufa hvort þeir gætu ekki rétt og það tókst, Einar kastaði þá teningnum og fékk fjóra. Fjórir dugði ekki til að komast framúr mömmu og Hauki og þá varð allt brjálað aftur, hann ætlaði nefninlega að fá sex. Hann tók þá bara teninginn fann sex og lagði hann á borðið, við gátum að sjálfsögðu ekki látið barnið komast upp með þessa spilamennsku og það endaði með því að þeir færðu sig fjóra og gerðu aftur. Við skiptumst á að halda forystunni það sem eftirlifði spils með gráti hjá Einari og mótmælum hjá Hauki. Pabbi og Einar voru gulir og ég og Haukur vorum blá. Til að halda öllum góðum þá endaði þetta spil með jafntefli þar sem Haukur og Einar gátu akkúrat á sama tíma upp á síðustu spurningunni, alveg ótrúlegt:)

Við sváfum út á gamlársdag og byrjuðum daginn á alvöru brunch, strákunum mínum þykir ekkert betra en að fá amerískar pönnukökur með sýrópi. Næst á eftir mátuðum við lopapeysurnar frá ömmu Gunnhildi og co og spókuðum okkur svo um í bænum. Keyptum áramótaskraut, hatta og flugelda. Pabbi og Einar fóru svo heim og mamma og Haukur fóru og tóku smá snúning á körfuboltavellinum.
Það var fjórréttaður matseðill hjá litlu fjölskyldunni og ótrúlegt en satt þá tók ég meiri þátt í matseldinni en oft áður og klúðraði ekki neinu en matseðillinn leit svona út. Ég treysti því að Jónatan matarbloggi áður en árið er liðið…. engin pressa;)
- Humarsúpan hans Ella sem við fáum alltaf í Bolungarvík og heimabakað brauð ala Tinna
- Grafið naut
- Hjartardýr (http://www.dk-kogebogen.dk/opskrift2/visopskrift.php?id=8741)
- Ísinn hennar Höllu ömmu
Það þarf varla að segja frá því en maturinn var perfect og þá sérstaklega súpan sem færði okkur nær fólkinu okkar heima í Víkinni. Fjórréttað var kannski fullmikið fyrir maga drengjanna okkar og voru alveg sprungnir þegar það var komið að Hjartardýrinu. Þeir fengu því að borða bara kjötið þar og voru ekki pressaðir í meðlætið.
Við skreyttum borðið alveg ótrúlega mikið, við áttum einhverjar innibombur sem þeyttu skrauti út um alla íbúð þannig að litla stofan okkar er mjög skreytt í dag og þá sérstaklega gólfið, alveg ótrúlega flott og gott fyrir taugarnar….
Við vorum soldið efins um hversu mikið danir myndu skjóta upp og hvort það væri eitthvað fútt í áramótum í útlandinu. Það var skotið stanslaust frá því að það byrjaði að rökkva og þangað til að klukkan var orðin eitt. en þá fórum við að sofa og því eru ekki staðfestar heimildir af frekari uppskotum danana. En við skemmtum okkur vel með flugeldana okkar, það var helling skotið upp og það bergmálaði í blokkunum hérna í kring og það var soldil svona stemming eins og á Ísafirði þar sem það bergmálar í fjöllunum. Það var ótrúlega kalt veður, það lagði áramótareyk yfir allt og áramótalyktin var alveg eins og heima þannig að við vorum sátt.
Við komum inn eftir að hafa skotið upp og horfðum á áramótaskaupið sem okkur þótti ekkert spes enda löngu komin með gubbuna af þessu ástandi, við hlógum þá á stöku stað á meðan við gæddum okkur á ís með heitri súkkulaðisósu.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs árs og vonum að það taki á móti ykkur sem okkur fullt af ævintýrum, ást og hamingju:)
Koss og knús
p.s. barnalandið fyllir inn í eyðurnar






































