-
Kokkur eða mús?
Posted on December 31st, 2009 2 commentsJæja gott fólk. Þá er komið að því. Eftir miklar og oft á tíðum erfiðar rökræður er tíminn loksins kominn. Ég ætla að leggja putta á takka og tjá mig. Í fyrsta sinn í langan tíma byrja ég ekki minn innslátt á eihverju svona: class is.einarsson.jonatan.someGeekProgrammingStuff {.
Ég þarf actually að koma einhverju vitrænu í 0rð. Tjá mig. Segja eitthvað.
Það fyrsta sem mér dettur í hug er að tala um þessi kvöld sem að á undan eru gengin. Pressan sem hefur verið á mér er mikil. Undanfarin 34 ár hef ég notið þeirra forréttinda að veislumaturinn hefur verið framreiddur af frú Guðrúnu Bjarnveigu Magnúsdóttur. Tinna, Haukur og nú síðustu 4 ár, Einar, hafa einnig vanist þessari nánast geðveiku 10 stjörnu þjónustu. Tinna hefur auðvitað staðið sig með þvílíkri príði. Ég þurfti samt að faðma eldavélina. Kyssa hellurnar og nudda steikurnar.
Á aðfangadag elduðum við önd. Ekki skotna af okkur samt. Fengum þessa líka fínu djúpfrostnu önd á þorláksmessu. Komumst svo að því 2 tímum síðar að best er að þíða hana á þrem sólarhringum í ísskáp. Við létum tæpa tvo sólarhringa duga, fylltum hana með eplum og sveskjum og elduðum hana eftir meðaltals eldunartíma ca. 10 googlaðra uppskrifta. Ég penslaði hana reglulega með blöndu af hunangi og ferskum appelsínusafa. Útkoman var betri en við þorðum að vona þannig að ég slapp með skrekkinn það kvöldið.
Sósan tókst mjög vel líka. Ég smjörsteikti innmatinn og vængina (klipti þá af öndini þar sem að þeir verða svo þurrir hvort eð er) og lét þá malla ásamt lauk, gulrót, timiangrein, appelsínuberki og fl. ásamt rauðvíni og andakrafti í ca. 2 tíma. Ég siktaði og fleytti svo soðið og þykkti með rjóma og sætti með hunangi.Á jóladagskvöld höfðum við hamborgarhrygg. Hann tókst mjög vel enda erfitt að klúðra því.
Annan í jólum prófuðum við kalkúnabrjóst. Kjötið var safaríkt og gott en sósan var ekki eins og ég vonaði. Ég notaði maizenamjöl, blandað í rjóma sem að gerði áferð hennar frekar slepjulega. Hún var samt mjög bragðgóð þannig að ég endaði réttu meginn við núllið held ég.
Forrétturinn hafði líka mikið að segja. Við höfðum boðið vinafólki okkar í mat helgina áður og höfðum nautalund (hún var á tilboði… þá meina ég alvöru tilboði…. ekki íslensku tilboði
) og áttum smá sneið eftir sem að við grófum með timian, rosemarin, og fl.Eftir að hafa gætt okkur á afgöngum næstu daga kom loksins að því að Haukur kom. Jól nr. 2. Þá kom ekkert annað til greina en purusteik. Við keyptum
skinkusteik með puru þar sem að það er yfirleitt ekki hægt að kaupa bóg hérna úti. Puran var skorinn en ég fór samt með hníf í allar rákir og gætti þess að rifurnar væru nógu djúpar. Þær verða víst að ná alla leið að kjötinu. Það þarf samt að passa að skera ekki í kjötið sjálft og að það sé salt (ég notaði gróft sjáfarsalt) með hverri rifu. Ég setti 2 lárviðarlauf og 5 negulagla inn í rifurnar með jöfnu millibili. Ég fann svo góðan stað fyrir kjötmælinn þar sem að kjötið var þykkast, setti það í kaldan ofn og setti á 100° undir og yfirhita. Þegar mælirinn sýndi 50° hækkaði ég í 250° og beið eftir að mælirinn sýndi 62°. Heildar eldunartíminn var ca. 2:30 (ég var með 1.3 kílóa steik). Áður en að ég kveikti, passaði ég mig á að puran væri lárétt á grindini. Ég notaði stóra kartöflu sem að ég skar í 3 bita til þess að lyfta endanum á henni þannig að puran var nokkurnveginn rétt. Steikin fór beint á grindina en undir henni var ofnskúffa og í henni eldfast fat sem að náði rétt rúmlega flatarmáli steikarinnar. Í fatinu var ég með eitt lárviðarlauf en eftir 1 klst. setti ég ca. 2 dl. af vatni í það. Ég notaði svo fínt saxaðan lauk. vökvan úr fatinu, svínakraft, ribsberjagel og rjóma í sósuna.
Útkoman var vægast sagt frábær. Puran var stökk en kjötið mjög safaríkt.Nú er ég loksins búin að fá humarhala í humarsúpuna “a la Elli og Disda” og Hjartarsteikur fyrir gamlárskvöld. Næsta færsla frá mér verður um hvernig það heppnaðist…… 7-9-13.
-
Fyrstu fullorðins jólin okkar:)
Posted on December 25th, 2009 5 commentsÞað verður nú að segjast að fyrstu fullorðin jólin okkar, allavegana það sem liðið er af þeim hafa verið alveg dásamleg. Við höfum vandað okkur sérstaklega í undirbúningi þessara jóla þar sem við vildum ekki klikka á einhverju sem gerir jólin að jólum.
Við vöknuðum ekki fyrr en hálf tíu á aðfangadagsmorgun, það var litli maðurinn okkar sem vakti okkur og vildi kíkja í skóinn sinn. Það var sjálfsagt, enda ætluðum við að vera vöknuð, búin að borða hafragrautinn og drekka fyrsta kaffibollann á þessum tíma dags. Við seinkuðum því bara aðeins enda ekki nein pressa þar sem allt var klappað og klárt. Hafragrautur á sínum stað, sonurinn fékk sinn með stjörnuljósi þar sem það eru jól og var sáttur við uppátækjasemi pabba síns.
Við áttum eitthvað smá eftir að bardúsa þegar það fór að nálgast hádegi okkur langaði að kaupa ferskt timian og möndlugjöfina sem verður þegar Haukur kemur þann 28. des. Við komumst að því að daninn er ekki að stressa sig á því að hafa opið á aðfangadag og því komum við að luktum dyrum í mollinu okkar. Við snérum okkur því bara til kaupmannsins á horninu, sem er með ekta arabaávaxtabúð. Þar fengum við ferskt timian og risa poka af cashew hnetum, inni hjá kaupmanninum voru allir grínandi og hlæjandi og kvöddu alla viðstadda með jólakveðju þegar viðskiptum dagsins var lokið. Við röltum okkur öll saman til kaupmannsins enda ótrúlega hressandi að viðra sig aðeins fyrir átök dagsins, matseld, át og pakka. Einar heimtaði stjörnuljós með í göngutúrinn þar sem það eru nú jól og að sjálfsögðu urðu foreldrarnir við því.
Þegar við komum heim skelltum við okkur í að gera hádegismatinn/brunchinn tilbúinn. Við erum vön að fá heita kæfu, steikta sveppi, beikon, síld, harðfiskt og fleira góðgæti bæði í Sundstrætinu og á Völusteinsstræti á hverjum jólum á þessum tímapunkti dagsins. Við ætlum sko ekki að bregða út af vananum með það. Þetta var alveg æðislegt og við átum eiginlega aðeins of mikið og þurftum að leggja okkur aðeins eftir matinn.


Fullkomin jól í augum Jónatans var að þurfa að vakna fyrir sólarupprás og byrja að elda matinn, þegar við vorum að ákveða jólamatinn og ég stakk upp á einhverju góðgæti þá kom vanalega hjá elsku manninum mínum, nei það er alltof einfalt eða það tekur bara klukkutíma. Þegar við sáum fína 3 kg önd á 50 kr þá var ákveðið að hafa önd í jólamatinn, ekki af því að okkur finnst önd svona góð eða erum klár að elda hana. Öndin er eitthvað sem krefst vandvirkni og tíma og það kann minn maður að meta. Við googluðum uppskriftir af önd og stefnan var tekin á ekta danska jólaönd. Ég mundi svo eftir nokkrum dönskum uppskriftablöðum sem elskuleg tengdamóðir mín hafði sent okkur þegar við vorum nýflutt í baunalandið og átti að vera okkur innblástur í danska matargerð. Þar var eitt jólablað og viti menn, auðvitað uppskrift af hefðbundinni danskri jólaönd:) Við kærustuparið hjálpuðumst að í eldhúsinu og Einar tók myndir af því sem fór fram, þar náði hann meðal annars myndum af rassi foreldra sinna og hló mikið af uppátækjaseminni í sjálfum sér.



Við skiptumst á að fara í sturtu, baða barnið, setja pakkana undir jólatréð og allt það. Spennustigið hjá Einari fór upp í hæðstu hæðir og ekkert mikið neðar en það þannig að það var full vinna að elda og sinna drengnum. Það er alltaf ráð að setja Einar í sturtu þegar hann er að fara yfirum eða foreldrarnir eru orðnir soldið þreyttir og það endaði með að barnið fékk c.a. klukkutímasturtu. Hann var aðeins rólegari eftir sturtuna og fékkst til að koma í nærföt og setja pakkana undir jólatréð. Að sjálfsögðu var þetta ekki alveg sprelllaust, það þurfti að kyssa jólatréð, hlaupa með hvern pakka og fara erfiðu leiðina. En það er allt í lagi á jólunum:)



Við festum eldamennskuna á filmu líkt og allt annað þennan dag. Sósusoðið var látið sjóða í einhverja klukkutíma samkvæmt kúnstarinnar reglum, Öndin pensluð eins og segir í uppskriftinni og hlúð að öðrum þáttum eldamennskunnar á allan þann hátt sem við kunnum. Ég var frú uppþvottavél, lagði á borð og sá um að finna áhöld, skálar og föt fyrir jólamatinn. Við vorum ótrúlega samstíga í elshúsinu þó ég segi sjálf frá, vorum meira að segja í eins svuntum:)



Þó svo að ég komi ekki að flóknum þáttum eldamennskunar, ég bara smakka, rétti og vaska upp. Þá fékk ég að gera forréttinn með glöggu auga Jónatans yfir öxl mína. Við ákváðum að hafa gamaldags rækjukokteil og hann hitti í mark hjá okkur öllum og þá sérstaklega Einari, Einar segir reyndar hrækjur en ekki rækjur og þegar við reyndum að leiðrétta hann þá sagðist hann bara hafa séð þátt í snjóvarpinu og þar var sagt að þetta héti hrækjur en ekki rækjur. Hér má sjá nokkrar myndir af lokahnykknum í elshúsinu, rækjukokteilnum og veislumatnum okkar.


Eldamennskan gekk nú ekki alveg áfallalaust fyrir sig en ég held að það sé af því að ég var farin að skipta mér af of miklu. En fyrsta tilraun af brúnuðum kartöflum misheppnaðist og brann. Við vorum ekki búin að setja kartöflurnar útá pönnuna þegar við uppgvötuðum að hún væri að brenna þannig að það var s.s. enginn skaði af. Þá tókum við upp símann og Jónatan átti spjall við mömmu sína sem miðlaði visku um brúnaðar kartöflur og þetta lukkaðist á endanum.Pakkarnir og allt það gekk vel fyrir sig, ég og Jónatan völdum okkur pakka til að opna núna og geymum rest þangað til að Haukur kemur. Einar fékk að opna alla sína pakka enda fékk hann eiginlega bara föt og því ekkert rosalega stórt bros á honum þó svo að foreldrarnir hafi verið glaðir. Fjarstýrði bíllinn og tölvuleikurinn sem var frá foreldrunum og Hauki bjargaði því brosinu ásamt nóa konfekti og Höllu ömmu ís. Einar var þó ekki eins fúll með fatapakkana og bróðir hans á sama aldri sem kláraði ekki einusinni að opna pakkana ef að hann sá að það væru föt í þeim. Hann gladdist mjög yfir hverri flýk sem hann fékk og það heyrðist vá, alveg ótrúlega flott, ég er aldeilis heppinn…… en er enginn pakki með dóti hérna fyrir mig kom svo. Einar er alveg yndislegur hvað þetta varðar.



Einar spilaði tölvuleikinn frá Hauki, ég lagðist fyri niðjatal Elísabetar og Einars sem við fengum frá afa og Sigrúnu og Jónatan drakk Arnald í sig. Við enduðum kvöldið á að draga sófann okkar út og horfa á Jóhannes sem við fengum frá mömmu og pabba á Völó og heyra í vinum og ættingjum í gegnum skype eða símann.

Við hugsuðum mikið til ömmu og afa á Völó, þetta eru fyrstu jólin sem Jónatan er ekki í foreldrahúsum og fyrstu jólin okar saman sem við erum ekki þar. Ekki nóg með það þá var Kristinn Gauti í Reykjavík þar sem hann og Salóme eru ekki ferðafær vegna óþægrar stúlku sem er á leiðinni í þennan heim og er með soldið vesen. Ekki nóg með það að við vorum ekki hjá ömmu og afa þá var svo brjálað veður að messunni var aflýst, þegar við hringdum í kartöfluvandræðunum okkar þá sagði amma að hún vissi sko ekkert hvernig hún ætti að haga undirbúningnum hún væri meira að segja búin að leyfa sér að kúra aðeins og slappa af. Eitthvað sem hefur ekki alveg verið í boði fyrir organistann með + 7 manns í mat alltaf á jólum. Við gátum svo ekki annað en hlegið þegar Jónatan talaði við Kristinn Gauta og sagði okkur að amma, afi og Finni frændi hefðu þurft að hætta með möndlugrautinn þar sem þau voru búin með hálfa skál og engin mandla komin og þau öll alveg að springa. Þar vantaði pottþétt drengina mína til að taka sinn skammt:)
Dagurinn í dag fór í afslöppun og lestur, skelltum okkur í íslenska messu í Skt. Paulskirke þar sem við fengum að syngja Heimsum ból og allt það sem fylgir jólunum. Snjórinn sem hefur hulið jörðina fór í nótt og á móti okkur tók hellidemba í allan dag, við fórum samt í smá labbitúr á leiðinni úr kirkjunni.



Takk kærlega fyrir okkur allir, við erum ekki búin að opna allt þar sem við höldum hin eiginlegu jól þegar Haukur kemur en það sem er komið, pakkar, kort og aðrar yndislegar sendingar vekja gleði.
Það voru engin jólkort send í ár, ég sendi því hérmeð jólakveðju, koss og knús vona að þið kvittið fyrir innlitið og haldið áfram að fylgjast með okkur í baunalandinu. Eins og alltaf þá settum við inn einhverjar 100 myndir á barnalandið sem fylla inn í eyðurnar um jólin okkar.
Tinna og kó
-
Jóla, jóla, jóla…. Jóla, jóla, jóla
Posted on December 23rd, 2009 3 commentsStend mig að því að þykja ég ofur þroskuð og fullorðin þegar ég plana innkaup fyrir jólasteikina, bý til rauðkálið, jólaísinn og fleira sem tilheyrir. Síminn er á lofti, sms, skype og tölvupóstur til að fá ráð hjá mömmum, systrum og öðrum sem til þekkja. Það á allt að vera fullkomið, eitthvað erum við að prufa í fyrsta skiptið og verður kannski að hefð á okkar heimili. Annað á að vera eins og hjá mömmu eða ömmu og þá skal vandað sig.
Í gær gerðum við rauðkál, rauðlauks chutney, sörur og jólaísinn. Við ætlum aðeins að segja ykkur frá hvað við gerðum og hvernig:) Við fundum góða uppskrift af rauðkálinu með því að googla rauðkál, negull og kanill í sama streng. Rauðkálið er bara ekki jólarauðkál án kanils og neguls og þá sérstaklega vegna lyktarinnar þegar maður er að búa það til. Við keyptum tvo rauðkálshausa til að vera viss um að hafa nóg. Jónatan vigtaði þá og sagði svo að þetta væri akkúrat nóg í fjórfalda uppskrift, okkur þætti þetta nú alltaf svo gott. Þegar við byrjuðum að skera þetta var fljótt hætt við fjórfalda uppskrift og skellt í tvöfalda.

- 750 gr. rauðkál
- 1 epli
- 1 rauðlaukur( frekar lítill)
- 50 gr. smjör
- 1/2 tesk negull
- 1/2 kanill
- 2 msk. balsamik edik
- 5 msk. rifsberjasulta
Rauðkálið skorið niður frekar smátt. Laukurinn saxaður. Eplið skorið smátt. Smjörið sett á pönnu og laukurinn mýktur í því með kanil og negul. Kálið og eplið sett útí með smá vatni. Passa að brenna ekki. Balsamikið og sultan útí og soðið í ca. 50-60 mín. við vægan hita.


Rauðkálið smakkast alveg einstaklega vel og ég hlakka til að borða það, við erum svo heppin með hann Einar okkar að rauðkál er eitt af því sem hann borðar eintómt og því er eins gott að eiga nóg fyrir litla manninn okkar.
Rauðlauks chutneyið gerðum við þegar við vorum búin að koma rauðkálinu af stað. Íris systir segir að þetta sé alveg nauðsynlegt með svínasteikinni og við tókum hana á orðinu. Keyptum helling af rauðlauk og skelltum í einfalda uppskrift þar sem þetta er okkar fyrsta tilraun.

- 750 gr Rauðlaukur
- 250ml Eplaedik/balsamik
- 1 tsk cummin (malað)
- ½ tsk negull (BADIA)
- Chili pipar á hnífsoddi
- Piparkorn (kannski 10 korn – heil)
- Salt
- 225gr púðursykur
Laukurinn afhýddur og saxaður gróft. Settur í pott ásamt ediki og kryddi. Hitað að auðu og látið sjóða nokkuð rösklega í um 15 mín. Þá er púðursykri bætt út í og látið sjóða við meðalhita í opnum potti í um 1 klst eða þar til maukið hefur þykknað. Sett á krukkur meðan það er heitt, geymist nokkrar vikur í kæli. Ef krukkur eru dauðhreinsaðar og lokað vel, gæti þetta geymst allt að ári á köldum stað.
Rauðlauks chutneyið smakkast líka alveg rosalega vel og við hlökkum til að borða það með steikinni og sjá hvort að þetta verði barasta ekki að hefð.
Á meðan rauðkálið og laukurinn mölluðu á gaseldavélinni okkar þá skelltum við í sörur, þær eru ennþá work in progress þar sem við fórum af stað með mikla dagskrá í gærkvöldi og þegar klukkan var miðnætti þá langaði okkur bara að fara að lúlla en ekki klára að setja krem á sörurnar. Það bíður þó allt tilbúðið, bakaðar sörur og tilbúið krem. Núna er það bara að bræða súkkulaðið og hefja ferlið.

Ísinn hennar Höllu ömmu er ómissandi á jólum, amma Gunna sendi okkur uppskriftina og við enduðum á að gera ísinn hennar.
- 5 egg
- 250 gr sykur
- vanilludropar
- 1 l rjómi
- bætiefni (súkkulaðispænir eða hvað sem maður kýs)
Byrja á því að þeyta eggin og sykurinn vel saman og setja vanilludropana með. Þeyta rjómann sér og blanda svo rjómanum og eggjablöndunni varlega saman. Bætiefnin eru svo sett síðust.
Við skiptum blöndunni í tvo hluta, í annan hlutann settum við rifið íslenskt konsum súkkulaði og í hinn settum við nóakropp sem við fengum sent frá frábærri vinkonu um daginn (takk Gunna mín fyrir sendinguna)


Verð að segja að þrátt fyrir að þykja ég ofur fullorðin við að undirbúa okkar fyrstu jól alveg alein með mínum heittelskaða og litla manninum okkar. Þá er þetta alveg ótrúlega skemmtilegt, við höfum hlustað á léttbylgjuna sem spilar bara jólalög daginn út og inn og njótum þess að fylla heimilið af jólum.
Yfir Kaupmannahöfn liggur fallegur jólasnjór og við gætum ekki verið ánægðari með það, á síðustu helgi var farið á snjóþotu í Söndemarken, verslað jólatré, drukkið heitt kakó og jólaglögg með piparkökum.



Einar endaði svo helgina á því að setja gat á hökuna á sér, við fórum upp á spítala til að láta sauma. Þetta er jú í þriðja skiptið sem að barnið gatar á sér hökuna og við þekkjum ferlið…. eða það héldum við. Þeir voru ekki tilbúnir að gera neitt fyrir sárið hans Einars. Sögðust ekki geta gengið frá því betur en líkaminn myndi láta það gróa, við létum í ljós óánægju með þessa afgreiðslu en maður stendur svo sem ekki og þrætir við læknirinn. Einar er þar af leiðandi með risa sár á hökunni sem á mjög líklega eftir að skilja eftir sig gott ör.


Við erum búin að fylla barnalandið af myndum http://barnaland.is/barn/22137/ vona að þið gefið ykkur tíma til að kíkja og sjá hvað við erum búin að vera að bralla.
Kossar og knús frá okkur til ykkar
-
Jólasveinatíðin hjá Einari og fleiri gullmolar
Posted on December 16th, 2009 1 commentEinar Jónatansson er búinn að vera afskaplega stilltur strákur undanfarið. Á síðasta föstudag var farið og fjárfest í rúmi fyrir drenginn þannig að það hefur farið vel um okkur öll undanfarnar nætur hvað svefnaðstöðu varðar, hvað svefn tíma varðar er allt önnur saga. Og það sem er ein önnur sagan er hvernig Einar bregst við á hverjum morgni þegar kíkt er í skóinn sem jólasveinninn hefur laumað einhverju í.
Stúfur kom færandi hendi til Einars, gaf honum fallega mandarínu og innpakkaða DVD mynd. Einar rauk fram um leið og vekjaraklukkan hringdi og við bæði á eftir inn í eldhús að starta kaffi og hafragraut. Einar röltir inn í stofu til að kíkja í skóinn og fer að háskæla og kemur rétt svo upp þessum orðum “Ég fékk bara einhverja appelsínu” og við alveg ha, hvað ertu að segja varstu svona heppinn að fá mandarínu með fullt af vítamínum í. Einar með miklum ekka ” þú mátt bara eiga þessa appelsínu, ég fékk bara appelsínu” svo sögðum við honum að kíkja aðeins betur og þá sá hann pakkann í glugganum. Hann dró andann og sagði svo í gegnum tárinn “ég held að þetta sé DVD” og brosti… og náttúrulega fljótur að jafna sig.
En svo er það þessi blessaði jólasveinn sem heldur fyrir okkur vöku. Í nótt vaknaði Einar klukkan þrjú og vildi fara að kíkja í skóinn alveg að drepast úr spenning. “Gerðu það mamma mín ég verð rosalega fljótur”
Ég held að við höfum ekki sagt frá því fyrr á þessum vetvangi en hann Einar á vini sem við sjáum ekki og þeir eru tveir og ganga undir heitinu Stóri og Litli. Það getur oft verið erfitt að ferðast með þrjá stráka, þá Einar, Stóra og Litla af því að við sjáum ekki stóra og litla og erum alltaf að lenda í því að loka hurðum á þá, gleyma að leggja á borð fyrir þá, gleyma að hjálpa þeim að bursta tennurnar og svona. Um daginn var Einar að gera eitthvað sem hann mátti ekki og ég spurði hann. “Einar minn máttu vera að gera þetta” Einar svarar “Mamma, hann stóri spurði þig og þú sagðir já”
Annars er mikill spenningur hjá litla manninum okkar, hérna hefur snjóað undanfarna daga og pakkarnir eru farnir að berast í hús. Að sjálfsögðu sofnar hann án vandræða á hverju kvöldi þar sem það er engin áhætta tekin á að fá kartöflu í skóinn.
yfir og út í bili
-
Piparkökur og fjölskyldufundur
Posted on December 7th, 2009 2 commentsEinar er ennþá alsettur hlaupabólum og því ekkert vit í því að fara á stjá með drenginn um helgina. Planlagt var að fara á jólaball íslendingafélagsins á laugardaginn og julehygge með leikskólanum hans á sunnudaginn en við gátum að sjálfsögðu ekki farið vegna frú Bólu. Hér má sjá mynd af Einari og frú Bólu.


Eftir afkastalítinn laugardag ákváðum við að á sunnudeginum að halda fjölskyldufund og skreyta piparkökur. Á hádegi á sunnudaginn settumst við niður við borðstofuborðið og byrjuðum að spjalla og í framhaldi af því ákváðum við að búa til fjölskyldureglur, aðeins verið að skerpa á hlutunum á heimilinu fyrir alla aðila….. þetta endaði í 13 fjölskyldureglum og hér má sjá nokkur dæmi.
- Pabbi byrjaði og sagði, „fyrsta reglan er að allir eiga að vera góðir“ þá bætti Einar við „og passa að brjóta ekki neitt“ Þannig að fyrsta reglan er orðrétt: Allir eiga að vera góðir og passa að brjóta ekki neitt
- Einar kom með reglu tvö: Passa að detta ekki niður húsþak
- Einar kom með reglu níu: Allir passa að meiða sig ekki og ekki meiða aðra í fjölskyldunni
- Einar kom með reglu tíu: Passa að brenna sig ekki
- Einar kom með reglu ellefu: Ekki slást og hafa læti
- Einar kom svo með reglu tólf: ENGINN MÁ VERA ALSBER ÚTI
Hann reyndi að troða inn fleiri reglum t.d um að ekki lita út fyrir, ekki lita á puttana, ekki hella niður. Við ákváðum að halda svona fundi á hverjum sunnudegi en ég er ekki viss um að við búum til reglur á hverjum fundi. Einar var nú á báðum áttum um að þetta væri í raun fjölskyldufundur þar sem það vantaði Hauk og við værum ekki öll fjölskyldan. Við höldum að sjálfsögðu fund þegar Haukur kemur og bætum í reglurnar ef að honum þykir þörf og sjáum hvort að hann samþykki ekki þær sem fyrir eru.
Þegar fjölskyldufundurinn var búinn þá bjuggum við til glassúr og skreyttum piparkökur, settum smákökur í ofninn og drukkum heitt kakó með rjóma. Við vonumst til að Einar verði klár á leikskólann á miðvikudaginn svo við getum farið í langþráða IKEA ferð.



Við fáum mikið af fyrirspurnum um hvað drengirnir vilja í jólagjöf, Einar er óður yfir öllum auglýsingum og ég hugsa að það sé mjög auðvelt að gera honum til geðs. Star Wars, LEGO, Ben ten, bílar, kallar og allur ævintýraheimurinn er ótrúlega merkilegt. Ef einhver vill svör við hvað hann vantar, þá vantar honum pollajakka, flísgalla, húfur og vetlinga hann er í stærð 116. Haukur er íþróttafrík og að mestu kominn yfir dótastigið nema þá LEGO, hann elskar fótbolta, heldur með Arsenal og körfubolta og svo safnar fótboltaspjöldum úr ensku deildinni, held að þau heiti match attach. Það er alveg hægt að gefa þeim saman LEGO:)
Hilsen pilsen
-
Ný íbúð og hlaupabóla
Posted on December 5th, 2009 3 commentsÁ þriðjudaginn tókum við á móti lyklunum að íbúðinni sem við höfum talað svo fallega um við vini og ættingja. Við að sjálfsögðu vorum ofur spennt og flutningarnir gengu eftir því, ótrúlega hratt og vel og íbúðin var orðin kósý um kvöldið. Síðustu dagar hafa farið í það að koma okkur fyrir og það gengur bara ágætlega. Það eru engir fataskápar og svo eru þetta bara 60 fm þannig að mublurnar hafa verið prufaðar í öllum hornum og svo er maður endalaust að færa dót fram og til baka til að gá hvar það eigi nú eiginlega heima. Stofan er orðin nokkuð góð og svefnherbergið allt í lagi í ljósi þess að það eru engir skápar og svo eigum við eftir að kaupa rúm fyrir Einar en hann kemur til með að sofa inni hjá mömmu og pabba. Við reyndar sögðum honum um daginn að við myndum bara eiga eitt herbergi öll saman og þá panntaði hann að sofa með mömmu sinni. Hann er ekki ennþá búinn að sannfæra pabba sinn um ágæti þessarar hugmyndar. Við erum á fyrstu hæð í góðum blokkarhring, við getum gengið út um hurð í eldhúsinu hjá okkur á sameiginlegan gang og þar eru 4 tröppur niður og þá erum við komin út í sameiginlegan garð. Þessi garður er nýuppgerður með fallegri stétt og grasballa og svo eru rólur og kofi fyrir börnin. Þarna er líka bekkir og borð og svo höfum við okkar eigin sólarkrók til að hugga okkur fyrir neðan eldhúsgluggan okkar, við fengum meira að segja að hafa garðmublurnar þeirra hjá okkur þannig að það er alveg súper. Einar fékk aðeins að fara út áður en bólan tók yfirhöndina og kíkti þá í kofann rólaði sér og hjólaði svo út um allt á stéttinni. Við vorum inni alveg áhyggjulaus þar sem garðurinn er alveg læstur og það eru aðeins 3 stigagangar sem hafa aðgang að þessum garði og svo getum við opnað gluggana alveg upp á gátt og hann kallar bara ef það er eitthvað.



Það var reyndar mjög gott að íbúðin var orðin kósý þar sem Einar bauð hlaupabólunni í heimsókn í nýju íbúðina og hann er núna alveg alsettur bólum. Síðustu dagar hafa verið erfiðir fyrir hann en hann er svo magnaður að hann tekur veikindum mjög alvarlega og harkar af sér eins og alvöru karlmaður. Honum klæjar óttarlega mikið og er pirraður en þá leggst hann sjálfur í sófann og slappar af þangað til það líður hjá, i verstu kláðaköstunum biður hann um krem. Svo sagði hann mjög ákveðið við okkur í gær “svefninn er besti læknirinn þegar maður er veikur”. Hann vaknaði nokkuð góður í morgun eftir að hafa verið með hálfgerðu óráði í alla nótt þannig að við vonum að það versta sé yfirstaðið. Við tókum nokkrar myndir af bólunum þróast.



Jólaundirbúningurinn er í hámarki hérna eins og annarsstaðar, við fluttum það jóladót sem var ennþá lifandi með okkur út og það er soldið gaman að setja það upp, þegar Einar hressist þá förum við og kaupum jólaseríur og eitthvað smá meira jóladót sem hann er búinn að tala um. Á óskalistanum er jólasveinn sem syngur og rautt hjarta úr spítum, sjáum til hvort við finnum það. Einar er búinn að fara með leikskólanum í jólatréaskóginn og höggva jólatré fyrir leikskólann og svo á morgun á að vera jólagleði upp á leikskóla. Við þurfum að sjá til hvort að við treystum okkur með sökum hlaupabólu.
Við höfum ákveðið að vera hérna um jólin og halda þar með okkar fystu jól ein. Þau verða reyndar soldið öðruvísi en hin almennu jól þar sem við höfum ákveðið að fresta 24. des til 28. des þegar Haukur Sindri kemur til okkar. Þannig að þann 24. desember ætlum við að eyða deginum í að elda eitthvað framandi og furðulegt og hugga okkur með Einari. Þegar við verðum búin að borða framandi og furðulega matinn, þá veljum við einn pakka hver og svo verður sett á pásu þar til Haukurinn kemur. Þá ætlum við að elda jólamatinn, við erum það heppin að fjölskyldur okkar hafa haft sama jólamatinn þannig að það er engin barátta um hefðirnar, svínabógur og með því. Okkur vantar reyndar uppskrift að rauðkáli, þannig að endilega látið ljós ykkar skína í commenta kerfinu.
Var að fatta að við blogguðum ekkert eftir að Haukurinn var síðast hjá okkur. Það var soldið mikið brallað og Haukurinn upplifði merkilega hluti, fyriri það fyrsta þá splæstum við í miða á landsleik í fótbolta á Parken Danmörk – Ungverjaland og Haukur fékk að sjá nokkrar af hetjunum sínum sem spila með danska landsliðinu. Þetta var stór upplifun fyrir fótboltastrák og við erum alveg ákveðin í því að kíkja eftir miðum á fleiri leiki í framtíðinni:)



Haukur kom svo með mömmu sinni í keppnisferð á Jótland á laugardeginum, fyrst til Arhus þar sem Falcon spilaði við Abyhoj og svo til Svenborg þar sem við spiluðum bikarleik. Við höfðum farið í Stadium á föstudeginum og fundið Falcon körfuboltabúning á tilboði á Hauk og hann var því klæddur eins og alvöru stuðningsmaður. Haukur fór algjörlega á kostum þar sem við spiluðum bikarleikinn. Svenborg er lið í neðri deild, veit ekki alveg hvaða deild og þær voru 7 sem mættu til leiks. Leikurinn fór fram í frekar stóru íþróttahúsi, stúkurnar alveg frekar stórar (stærri en neðri stúkan í Laugardalnum). Hauku byrjaði á því að ganga um með myndavélina og festa þetta allt á filmu. Þegar Haukur var búinn að taka myndir þá tók hann sig til og fór upp í miðja stúku þar sem hann var eini áhorfandinn. Svo lét hann dæluna ganga allan leikinn, hvatti Falcon og grínaði með hitt liðið. Þess má geta að leikurinn fór c.a 140-16 þannig að hann hafði efni á að skjóta föstum skotum á hitt liðið. Þið eruð að tapa með 100 stigum, áfram Falcon, þið getið ekki neitt. Svo einhvetíman þegar staðan var 50-o þá átti Svenborg vítaskot og höfðu möguleika á að skora sín fyrstu sig í leiknum. Stelpan var að einbeyta sér á fullu, engin áhorfandi í húsinu og algjör þögn, um leið og stelpan er að skjóta kallar Haukur Bööööö og allir leikmenn og starfsmenn grenjuðu úr hlátri.



Ég átti búningaþvottinn þessa viku og við ákváðum að sprella aðeins saman fyrst að við höfðum möguleika á því að taka mynd af okkur öllum saman í körfuboltabúningum. Einar var ekki alveg á því að vera í of stórum Falcon búning og var fljóttur að skipta í KR búninginn en það er í lagi:) Við tókum flestar myndir af mér og klónanum mínum og hérna eru nokkrar úr syrpunni:)






Kossar og knús í bili


