-
Hellú
Posted on November 20th, 2009 1 commentÍ dag er rétt rúmlega mánuður til jóla og styttist í að við höfum búið í baunalandinu í 1 ár.
Það hafa talsverðar breytingar orðið á högum okkar undanfarinn mánuð. Þessa dagana stöndum við í flutningum, við sögðum upp íbúðinni okkar í enda sumars og nú er komið að því. Við fundum litla sæta íbúð ekki svo langt frá þar sem gamla íbúðin er. Þetta er pinkulítil sæt ekta dönsk íbúð á fystu hæð með afgirtum garði og sætum sumarkrók fyrir okkur. Við getum ekki beðið eftir því að flytja inn þann 1. desember og byrja að hugga okkur á nýja staðnum. Einar fær talsvert meira frelsi þar sem hann getur valsað út í garð og leikið sér í rólum eða í fótbolta án þess að við þurfum að hafa áhyggjur af honum. Við þurftum að skila hinni íbúðinni okkar á mánudaginn síðasta og búum því hjá vinum okkar í nokkra daga núna, það er ótrúlega kósý stemming hjá okkur og við gerum gott úr þessum aðstæðum.
Flensan er búin að koma í heimsókn hjá okkur, Einar byrjaði að hósta og slappast alveg þangað til að hann varð hundveikur með yfir 40 stiga hita í 3 daga. Mömmunni og pabbanum stóð nú ekki alveg á sama þar sem hitastillandi hjálpaði ekki neitt og í verstu hitaköstunum þá ældi litli maðurinn okkar bara. Við enduðum á læknavaktinni og fórum heim með mega sterkan pensilín skammt enda barnið með lungnabólgu og eitthvað meira með því. Hann er orðinn hress og kátur núna, en það eru ennþá talsverð veikindi í leikskólanum hans og öll dagskrá riðlast töluvert út af því. Ofaní flensurnar sem eru að ganga eru einhver börn komin með hlaupabólu þannig að það er aldeilis fjör. Mamman og pabbinn voru ekki alveg laus við flensuna, Jónatan rauk upp í hita og mamman hóstaði eins og hún væri á launum við það en við erum öll stálslegin í dag.
Amma Maja kom svo í heimsókn til okkar þann 6. nóvember, akkúrat þegar veikindin voru í hámarki. Við gerðum bara gott úr aðstæðum og hugguðum okkur saman, elduðum góðan mat og tókum stutta túra um borg og bæ þegar heilsan bauð upp á það. Þegar það var komið að heimferðardegi vorum við ekki alveg tilbúin að sleppa ömmunni og framlengdum miðann hennar þannig að við gætum knúsað hana aðeins lengur:)
Við vorum farin að gæla við að koma heim um jólin, já eða við vorum bara alveg búin að ákveða það. En þar sem við stöndum í flutningum og svona þá sé ég ekki fram á að við komum nema að undur og stórmerki gerist (lottóvinningur) Litla íbúðin okkar er nebblega tæpir 60 fm og engir fataskápar eða neitt og við þurfum að koma okkur fyrir ef þetta á að ganga upp. Við stefnum samt að því að koma fljótlega á nýju ári og kíkja á litlu dömuna hjá Kristni og Salóme sem er aldeilis að láta hafa fyrir sér:)
Við erum búin að setja inn nýtt gsm númer hjá Jónatani og heimilisfangið inn í “Hafa samband”
Þetta var örbloggfærsla fyrir ykkur frá okkur:)


