-
Í fréttum er þetta helst
Posted on September 29th, 2009 2 commentsMaðurinn minn er ótrúlega seigur þessa dagana og er undanfarinn mánuð búinn að hjóla daglega til og frá vinnu. Stundum þegar hann er á heimleið er veðrið ekki alveg eins og þegar hann lagði af stað um morguninn og þá verður útkoman stundum svona



Á þessari mynd er Jónatan nýkominn heim úr vinnunni, hjólandi eins og alltaf og alveg blautur í gegn:)
Á föstudaginn var starfsmannapartý hjá Betware DK og þeir skelltu sér í Gókart, minn maður tók það náttúrulega og kom heim með verðlaunapening. Held að það hafi engin verið ánægðari en sonur okkar sem bar hann um hálsinn stoltur af pabba sínum, endaði reyndar á að sveifla honum í hausinn á sér…. en það er bara ekta Einar. Hér má sjá Jónatan fagna sigrinum, þess má geta að Árni vinur hans og vinnufélagi var í þriðja sæti og horfir þarna öfundaraugum á MEISTARANN. Þess má geta að Árni er ekki búinn að hjóla í vinnuna og ekki vera í ræktinni eins og hann Jónatan minn:)

Fengum pakka um helgina frá ömmu og afa í Bolungarvík, þau sendu Einari kuldaskó. Í pakkan höfðu þau laumað bókum sem Jónatan átti þegar hann var lítill og íslensku nammi:) Það er óhætt að segja að þetta hitti beint í mark, Einar er búinn að lesa bækurnar upp til agna og nammið kláraðist á stundinni, enda laugardagur þegar við sóttum pakkann. Á sunnudaginn fór Einar í skóna hérna heima og var í þeim allan daginn, hann sagði svo sposkur við okkur þegar við vorum að spurja hann hvernig skórnir væru. “Ég fékk þessa skó frá afa mínum í sveitinni” Já Bolungarvík er sveitin hans Einars, mér finnst það soldið sætt:)
Aðeins meira af honum Einari, á fimmtudaginn í síðustu viku var myndataka í leikskólanum, ég ákvað að klæða Einar í snyrtileg leikskólaföt þannig að hann yrði nú flottur á myndinni. Við lentum vægast sagt í smá átökum þar sem drengurinn neitaði að fara í myndatöku án þess að vera með bindi og slaufu. Fötin sem hann var kominn í pössuðu allsekki við bindi eða slaufu, hvað þá bæði í einu þannig að það voru harðar samningaviðræður. Það endaði með því að ég talaði svo mikið á meðan ég klæddi hann í útifötin að hann gleymdi þessu. En við æfðum okkur aðeins um morguninn og smelltum af nokkrum myndum. Vona að leikskólamyndirnar hafi tekist betur en þessar hjá okkur:)



Bikarleikur hjá mér í kvöld á móti liði sem er í annari deildinni, þannig að hafragrautur í morgunmat og aðrir góðir siðir þegar líður á daginn. Er frekar mikið upp og niður þessa dagana, 5 dagar í systur mína og kó og ég er súper glöð yfir því. En svo hlaðast inn svör við atvinnuumsóknunum sem ég er búin að vera að dúndra út og þau eru ekki til að gleðja mig. Fer í framhaldinu að skoða mastersnám eða frekari barneignir af meiri alvöru…. eða hvað?
Kossar og knús
-
Sofandi Einar, körfubolti, húsgögn og ferðir Hauksans okkar
Posted on September 28th, 2009 1 commentÉg og Jónatan eigum dúllulegan dreng, hann verður ekki orðlaus, hann á gjörsamlega svör við ÖLLU, er einstaklega ófeiminn og hefur gaman að því að vera til. Það tekur á að vera svona yndislegur lítill strákur, flest kvöld fær hann lestur fyrir svefninn og svo sofnar hann úrvinda eftir daginn og stundum tekur mamman mynd, af því að börnin eru jú aldrei fallegari en þegar þau sofa:)

Í sumar gleypti Einar járnkúlu, hann var úrvinda eftir daginn og pabbi hans hjálpaði honum að sofna:)


16. september, bara venjulegur miðvikudagur hjá fjölskyldunni og drengurinn alveg úrvinda og sofnar værum blundi eftir lestur góðra bóka.


20. september, litli sæti alveg úrvinda og sefur eins og steinn:)



27. september, lagðis inn með pabba sínum og þeir steinsofnuðu saman. Mér finnst þetta alltaf jafn sætt:) Veit ekki alveg hvort að Jónatan verður ánægður með þessar myndir en ekki nennir hann að blogga þannig að ég ræð myndefninu sem og innihaldi bloggsins
Að öðru, það voru ekki sofandi Falcon stelpur sem mættu til leiks á laugardaginn, 11 stiga sigur í fyrsta leik er ekki slæm byrjun. Við spiluðum án kanans okkar sem á í einhverju basli með að fá leikheimild vegna seinagangs hjá einhverri stofnun hér í bæ, vona bara að þetta verði ekki fleiri leikir sem hún missir af, en gott að vita að við getum unnið án hennar. Hérna er linkur á frétt um leikinn og þarna er líka hægt að nálgast stats úr leiknum fyrir þá sem hafa áhuga http://falconbasket.dk/falcon/index.php?newspage=1257 .

Við vorum í labbitúr á laugardasmorgun og rákum augun í húsgögn á götunni þar var skrifað stórum stöfum “VIÐ FLYTJUM - ÓKEYPIS DÓT” við vorum ekki lengi að spotta út borðbúnað og stóla, við vorum það lánsöm að við höfðum verið á bílnum þeirra Árna og Ásdísar í þessari ferð okkar og fylltum því bílinn. Núna erum við 10 stólum ríkari og eigum vel af borðbúnaði, við nefninlega fluttum ekki allt með okkur þegar við fluttum út og það er búið að vera að týnast úr stellinu okkar og því kærkomið að lappa upp á skápana.


Nú er september að verða búinn, alveg ótrúlegt hvað tíminn líður. Næst á dagskrá er að bóka flug fyrir Haukinn okkar, hann ætlar að koma 14. október til okkar og fara frá okkur 19. október. Ef þið þekkið einhvern sem er á ferðinni þá viljum við gjarnan fá að heyra af þeim, Haukurinn ætlar samt að mana sig í að fara í fylgd í þetta skiptið en það væri plús að vita af einhverjum í sömu vél, við erum spennt að sjá hvernig þetta á eftir að ganga fyrir sig. Og svo ég fari alveg yfir strikið, ef einhver þarna úti á gjafabréf hjá flugfélögunum sem eru að renna á tíma, þá erum við alveg til í að fjárfesta í slíkum á smá afslætti þar sem ferðir Hauksins eru planaðar rúmlega ár fram í tímann núna og því auðvelt að bóka hann. Teljum þetta vera algjöra win-win situation fyrir báða aðila að því gefnu eigandinn hafi engin not fyrir bréfin sín:)
Vona að þið hafið notið lestursins og mana ykkur til að leggja í fylltu svínalundirnar sem við blogguðum um í gær:)
Kossar og knús frá okkur til ykkar
-
Svínalundir – innbakaðar svínalundir mmmmmm
Posted on September 27th, 2009 No commentsÍ danmörku er svínakjöt ódýrt, þegar það eru tilboð þá er svínakjötið hræódýrt. Við skelltum okkur á góð tilboð um daginn í Suber Best, 3 svínalundir á 75 kr, hver lund er um 600 gr þannig að við gerðum mjög góð kaup. Tilboðið var svo gott að við keyptum 2 pakka, s.s. 6 lundir og höfum verið að leika okkur aðeins með uppskriftir og útfærslur á lundunum.
Ég er náttúrulega atvinnulaus um þessar mundir eins og flestir vita og gef mér tíma til að detta inn á hin og þessi blogg, dunda mér við að finna uppskriftir og pæla í næstu máltíð. Eftir að hafa slefað á tölvuna yfir gourme uppskriftum var ákveðið að leggja í eina slíka, nota ráð og hugmyndir frá hinum og þessum og reyna að gera súper góðan mat.
Við ákváðum að gera fylltar innbakaðar svínalundir, til að fá sem mest út úr eldamennskunni elduðum við tvær og fylltum þær með sitthvorri fyllingunni (tvær líka af því að við vorum með matargesti)
Svínalund 1 – var fyllt með gorgonzola osti og steinselju, troðin út af hvoru tveggja. Okkur hefur alltaf þótt það góð blanda að beikonvefja svínalundirnar og því var ákveðið að loka þessari lund með því að vefja hana með beikoni. Við hugsuðum aðeins út í það að kaupa einhverja góða flotta skinku til að vefja lundina í en við áttum beikonið í ísskápnum og því óþarfi að spreða í skinkuna.

Svínalund 2 – Var fyllt með fetaosti, litlum tómötum og steinselju, við kaupum alltaf hreinan fetaost í klumpum hann er langbestur þannig. Eins og með fyrri lundina þá tróðum við hana út af fyllingunni en við lokuðum þessari með pinnum. Okkur langaði alveg að loka þessari með beikoni líka, en einn matargesturinn er ekki beikon aðdáandi og því ákveðið að loka henni bara með pinnum.
Við hituðum svo grillpönnuna okkar skelltum lundunum á hana til að loka þeim og pökkuðum þeim svo inn í deig, deigið var penslað með eggjum og mjólk og síðan var þetta eldað í ofninum við 200 gráður í 25 mínútur. Þegar sá tími var liðinn tókum við lundirnar út og létum þær hvíla í 15 mínútur.

Meðlætið var í léttari kanntinum að þessu sinni, erum miklir sósuaðdáendur og eigum það til að hafa ógurlegar rjómasveppasósur með öllu. Við ákváðum að hafa léttar kaldar sósur með að þessu sinni (partur af heilsa 2009 á heimilinu) og vorum með heimagerða hvílauksssósu og heimagerða piparsósu, ferskt salat með þessu helsta, jarðaberjum og góðum fetaosti og til að hafa þetta alvöru þá voru líka ofnbakaðar kartöflur.
Það er óhætt að segja að lundirnar báðar voru algjört gourme og meðlætið passaði alveg perfect með, lundirnar voru virkilega safaríkar og næstum óþarfi að hafa sósuna með. Með þessu var svo drukkið ekta coca cola og danskt vatn úr krananum.
Kvöldinu var svo varið í kana með vinunum og þegar leið á kvöldið var dregin fram marengs bomba sem var skolað niður með ískaldri mjólk og samræðum um síðustu slagi. Laugardagskvöldin gerast ekki mikið betri en þetta:)
Það eru ennþá 2 lundir í frystinum sem verða teknar út þegar Íris systir og có koma í heimsókn eftir nákvæmlega viku. Það er spurning hvað við systur bröllum við lundirnar
kossar og knús
-
Langar …..
Posted on September 23rd, 2009 2 commentsStundum bara langar manni í allt og ekkert, er búin að hugsa mikið til fjölskyldunar undanfarið enda eru þau svo til rétt ókomin til mín. Högni, Íris og Ellen koma 4. okt, Haukur kemur 14. okt og mamma kemur 6. nóv. Mér líkar þessar ákvarðanir minna ástkæru fjölskyldumeðlima og hugsa um allt sem ég væri líka til í að hafa frá íslandi eða geta gert, og það eru nokkrir hlutir sem poppa upp í hugann.
- Í flatköku með hangikjöti
- í súkkulaðirúsínur, djúpur og kúlusúkk
- í piparost, mexícoost, jalapenjoost
- í harðfisk
- lýsis sportþrennu
- að skella mér í heitan pott í myrkri og rigningarúða
- í krækiber beint af lynginu
- að knúsa Hermann Alexander
- að lesa séð og heyrt
- að eiga síða lopapeysu með hneppum
- að upplifa sólsetrið í Bolungarvíkinni
Þó að manni langi og langi, þá er það ekkert samansem að manni líði eitthvað illa eða það sé ekki allt í gúddí í kóngsins Köben… það er bara stundum þannig að manni langar hitt og þetta. Fyrir utan að manni langi í stóra vinningin í lottóinu, ferðast um allan heiminn og eiga fataskáp á stærð við 60 manna rútu:)
Ég var í þýskalandi að keppa um helgina í Wiedel sem er rétt við Hamborg. Við spiluðum 4 leiki og enduðum á að vinna þrjá og tapa einum, við spiluðum einn leik á móti þýsku Bundeslígu liði, þær æfa eins og atvinnumenn og eru mjög góðar og mjöööög stórar. Við töpuðum einmitt frekar stórt fyrir þeim, en það var þriðji leikurinn okkar og fyrsti leikurinn þeirra þannig að það gaf kannski ekki alveg raunhæfa mynd af leiknum.
En ótrúlegt sem liðið mitt er búið að taka miklum framförum síðan á fyrstu æfingunum, hlutirnir eru að smella saman hjá okkur og það er bara virkilega gaman að vera hluti af þessum hópi. Hvað mig varðar þá held ég að mér hafi bara gengið ágætlega, ég spila pointguard og á er með frábæra stelpu sem spilar á móti mér, ég er s.s. gamli pointinn og hún er ungi pointinn:) Ég byrjaði alla leikina en held að það sé nú ekkert að marka það þar sem við spiluðum c.a. 5 mínútur hver í hverjum leikhluta, hef aldrei spilað í liði þar sem breiddin er svona góð. Það var ekki að veikja liðið þó að 3-5 leikmönnum var skipt út af, alltaf sömu hlutirnir í gangi og alltaf einhver sem gat skorað og haldið áfram að gera góða hluti. Fyrsti leikurinn er á laugardaginn og við erum orðnar mjög spenntar að fara inn í mótið:)

Hérna er mynd af liðinu mínu, hinn pointinn er númer 6 og heitir Mia, og svo er ég með eina “Ellen” en hún Anna Hee sem er ein helsta stjarna U18 landsliðsins er þarna í öftustu röð á milli 12 og 5. En hún s.s. lítur út alveg eins og Ellen frænka mín og þegar hún byrjar að tala og djóka þá er þetta bara sama manneskjan. Ég er númer 10 á þessari mynd, alveg eins og íþróttaálfurinn, en síðan þá erum við búin að fá nýja búninga sem voru ekki alveg að gera sig fyrir mig og ég skipti við kanan okkar hana Chelsea og er núna númer 4 alveg eins og Signý mín:)
Á meðan ég var í þýskalandi að keppa áttu karlmennirnir á heimilinu sannkallaða kósýstund. Nammi, uppáhladsmatur, teiknimyndir og kósý voru orð helgarinnar og ég held að þeir hafi haft það alveg súper gott saman feðgarnir. Þegar ég kom heim á sunnudaginn var allt tandurhreint og maturinn mallaði á eldavélinni, Einar kom hlaupandi út á svalir þegar ég hringdi bjöllunni og sagði “mamma við keyptum ekki blóm handa þér” en þá höfðu þessar elskur ætlað að kaupa blóm fyrir mömmuna en þau voru bara ekki nógu og falleg þannig að þeir slepptu því. Einar algjör rúsína að kjafta þeim góðu plönum sem þeir feðgar höfðu.
Annars lifum við” hjónin” eins og eldgömul hjón þessa dagana, Jónatan heldur sínu striki hvað að hjóla í vinnuna og lyfta þrisvar í viku varðar. Ég vakna með Einari klukkan 7 á morgnana og dunda mér svo við að sækja um vinnur og heimilisstörf fram eftir degi og svo enda ég daginn á að fara á æfingu. Við erum vanalega sofnuð um 10 leitið á kvöldin og því kalla ég okkur gömlu hjónin, við erum líka vanalega með strengi eða illt eftir átök dagsins þannig að við skröltum hérna um íbúðina og hlæjum að hvort öðru, alveg kostuleg:)
Kossar og knús í bili
-
En tur på Einars udflyttebørnehave
Posted on September 16th, 2009 1 commentÉg er greinilega farin að geta bloggað með myndum og ætla að nýta tækifærið:)

Á laugardaginn fórum við með leikskólanum hans Einars upp á Mørdrup en þar er leikskólinn hans Einars staðsettur. Við fórum klukkan 10 á laugardagsmorgun með rútunni sem Einar fer með á hverjum degi og komum til baka um fjögur.
Ég held að ég noti tækifærið og segi ykkur aðeins frá leikskólanum hans Einars og því umhverfi sem hann er í dagsdaglega. Einar er á leikskóla sem heitir Troldehøj og er staðsettur í Valby í um 3 km fjarlægð frá heimilinu okkar, við erum c.a. 10 mínútur að hjóla á leikskólann á morgnana.
Leikskólinn er 5 deilda leikskóli það er ein deild sem er vöggustofa fyrir minnstu börnin (er reyndar að bætast við önnur slík deild). Á hinum deildunum s.s. ekki vöggustofan eru börn frá c.a. þriggja ára aldri, deildin hans Einars heitir Guldbasserne og sú deild er alltaf upp á Mørdrup. Hinar 3 deildirnar skiptast á að koma upp á Mørdrup og eru þá 14 daga í senn.
Þetta fyrirkomulag þ.e. skógarleikskóli er mjög vinsælt hérna og erfitt að komast að á slíkum leikskóla. Við verðum þó að viðurkenna það að þegar okkur var boðið plássið þá vorum við ekkert rosalega ánægt, okkur þótti erfitt að vita að einari út í skógi. Sáum fyrir okkur einn lítinn skúr og hann yrði bara ráfandi um skóginn daginn út og inn. Mikluðum fyrir okkur rútuferðina sem hann þyrfti að leggja á sig á hverjum degi og já okkur fannst þetta bara ekki vera í stöðunni og báðum um að hann kæmist að á venjulegum leikskóla.
Það má segja að það var bara fáfræði og ótti við eitthvað sem við þekktum ekki sem kallaði fram þessi viðbrögð því það varð ljóst að Einar kæmist ekki að á öðrum leikskóla og við ákváðum að fara bara tvö saman og kíkja á aðstæður og gá hvort þetta yrði bara ekki alveg ágætt fyrir elsku Einarinn okkar. Við mættum tvö og skelltum okkur af stað með rútunni upp í skóg til að skoða þennan “hræðilega” stað. Það sem kom okkur fyrst á óvart var að börnin skemmtu sér svo vel í rútunni á leiðinni uppeftir og þau virtu ekki mikla fyrir sér ferðina, töluðu saman, léku leiki og grínuðu í hvort öðru. Þegar við nálguðums Mørdrup þá sáum við þetta fallega svæði, snyrtileg hús og leiksvæði, skógurinn í bakgarðinum og dýrin út um allt. Við blogguðum um þetta á sínum tíma http://jonatan.einarsson.is/?p=5 og því kannski óþarfi að halda um þetta frekari tölu en í einu orði sagt við urðum ástfangin af þessu fyrirkomulagi og gátum ekki beðið eftir því að Einar fengi að upplifa þetta.
Alltaf þegar við höfum farið eitthvað með leikskólanum hans Einars þá er borðað saman, fyrst fórum við í Valbygarðinn þar sem við mættum með flatkökur með hangikjöti, mjög íslenskt og skemmtilegt. Næst var sommerfest og þar átti hver fjölskylda að koma með mat, við reiknuðum með að það yrði grillað og komum með pulsur á grillið og litum út eins og hálfvitar þegar við uppgvötuðum það að allir voru með súper fín pastasalöt, bökur og fleira í þeim dúr. Jónatan hljóp út í næstu búð og keypti fríkadellur og karföflusalat. En á laugardaginn þá heppnaðist þetta vel en við mættum með mjög gott pastasalat á fællesbuffet:)
Við vorum virkilega stolt af Einari, foreldrar hinna barnana máttu til með að koma til okkar og segja okkur hvað hann Einar talaði ótrúlega flotta dönsku og þau heyrðu ekki að hann væri með annað mál sem væri talað heima. Flest hafa þau fylgst af áhuga með aðlögun Einars, enda hefur Einar verið mjög vinsæll og vinmargur síðan hann byrjaði og börnin tala mikið um hann heima. Hann er ófeiminn og á það til að standa upp á stól og syngja fyrir alla í matartímanum hann kann ekkert mörg lög á dönsku þar sem það er ekkert gríðarleg áhersla á sönginn upp í sveit. Hann syngur bara lög á íslensku og nýtur þess að vera í sviðsljósinu. Pabbi hans talar um að honum svipi soldið til Magnúsar hvað þetta varðar:)
Við allavegana fórum uppeftir á laugardaginn og vorum með myndavélina með okkur og tókum um 200 myndir, Jónatan var reyndar eitthvað að leika sér með stillingarnar þannig að þær eru frekar dökkar. En endilega rennið í gegnum þær og sjáið í hvaða umhverfi Einar leikur sér dagsdaglega, þær eru að malla inn í augnablikinu ég skrifa svo við nokkrar myndir þannig að þið vitið hvað er verið að tala um:)
Ég og Einar eru með smá haustkvef í okkur, frekar pirrandi þar sem það er loksins komið að þýskalandsferðinni minni. En ég ætla mér nú bara að hætta að hugsa um þetta og vera frísk, held að það sé besta ráðið. Það var lítil blaðagrein um körfuboltaliðið mitt í Fredriksberg blaðinu í vikunni http://www.e-pages.dk/bgmonline_fb/158/ blaðsíða 38 fyrir ykkur sem hafið áhuga.
Einar er mikið að pæla í hlutunum, pælir í orðasamböndum, hvað orðin þýða á íslensku og svo dönsku og ef hann er í stuði þá ensku líka. En við vorum á leiðinni á leikskólann um daginn og vorum í strætó, við tökum leið 18 og svo skiptum við og tökum 1A, einn stoppistöðin er við Vigreslev Kirkjuna, og Einar spyr.
“Mamma, kyrkja Kirkjur?”
“og ég alveg, nei Einar minn”
“Einar, svarar…. afhverju heita þær þá kyrkjur”
Það munar náttúrulega bara Y í þessum orðum og hann var ekki alveg að fatta þetta, og nokkrum dögum síðar kom þessi pæling…..
Bílstjórinn sem keyrir börnin upp í sveit heitir Kaj og oftar en ekki er eldaður kjúklingur í karrý á bálinu í leikskólanum og fyrir ykkur sem þekkið dönskuna þá er Karrý skrifað á sambærilegan hátt á öllum tungumálum en á dönskunni er það borið fram KAJ… já alveg eins og rútubílstjórinn þannig að Einar spyr:
“Mamma, afhverju heitir bílstjórinn Karrý”
“Einar hann heitir ekki Karrý, hann heitir Kaj”
“Já en mamma það þýðir Karrý, alveg eins og kjúklingur í karrý”
“Nei Einar þetta er ekki sama orðið, það er skrifað öðruvísi”
“Nei mamma, hann heitir Karrý í danska landinu”
Eitt í viðbót, en við höfum sett ákveðnar reglur í umgengni við sjónvarp og tölvur, hann má s.s. bara horfa í ákveðinn tima á sjónvarp og spila tölvuleiki í ákveðinn tíma á degi hverjum. Um daginn var Einar búinn að kveikja á tölvunni og byrjaður að spila Lego Star Wares, ég spyr:
“Einar, spurðuru einhvern hvort þú mættir fara í tölvuna”
“Ég spurði bara sjálfan mig”
Einari vantar aldrei svör, hann verður aldrei orðlaus en hann lætur foreldrana verða orðlausa trekk í trekk með tilsvörum sínum.
Í þessari viku höfum við verið að taka jakka aftur fram, höfum ekki notað jakka síðan í apríl, samfara því að taka fram jakkana höfum við verið að leggja kvartbuxunum og taka fram síðbuxurnar. Það er ákveðið sjokk í gangi varðandi Einar en drengurinn hefur lengst um marga cm í sumar. Buxur sem hann fékk í desember og janúar niðurmjóar töffarabuxur úr P&P eru orðnar hallærislega stuttar á snáðanum:) Við erum auðvitað ánægð með að barnið lengist (sérstaklega mamman) en það þarf að kaupa heilan fataskáp fyrir barnið og við hófum það starf í gær, fengum rosalega fínar pokagallabuxur á spottprís í H & M. Einar fór ánægður í þeim í leikskólann í morgun en vildi ekki prufa nýju sokkana sem voru keyptir í sömu ferð:)
En ég vona að þið njótið myndana frá leikskólanum og sendið kvefinu okkar Einars batnaðarstrauma.
-
Best að skella inn einni línu:)
Posted on September 11th, 2009 4 commentsVegna fjölda áskorana ákvað ég að henda inn bloggi, mamma er búin að panta meira en 1000 orð en þegar ég byrja þá er ekkert ákveðið sjáum hve langt munnræpan fer með mig.
Það eru næstum 20 dagar síðan ég bloggaði síðast og þar af leiðandi helling að frétta og helling sem þarf að segja frá, held ég stikli bara á stóru og svo getið þið giskað í eyðurnar:) Ég reyndar á í einhverju basli með að setja myndir inn í bloggið og því verður þetta bara að vera myndalaust blogg sorrý.
Sá dagur kom loksins að Magnús, Jóhanna og Guðmundur Elí komu til að knúsa okkur, við áttum saman þrjá alveg yndislega daga í knúsi, túristaleik, góðum mat og skemmtilegum samræðum. Jónatan var því miður að vinna á daginn en það var allt í lagi þar sem ég er alveg afbragðs félagsskapur þó svo að hinn helmingurinn minn fylgi ekki með. Þetta voru nokkuð ”hard core” túristadagar, held að við höfum gengið yfir 10 km hvorn daginn í yfir 20 stiga hita og sól. Ég dáðist alveg af nýbökuðu foreldrunum að dröslast út um allt með litla manninn en hann var nú bara eins og ljós þrátt fyrir rótið á honum og hitann. Stoppað hér og þar, skipt á kúk, gefinn sopi, ropað og svo aftur í kerruna og haldið áfram fram að næsta stoppi. Það var alveg æðislegt að fá að hitta þau þó að stutt hafi verið og Jónatan hafi verið bundinn í vinnu. Guðmundur Elí er einstaklega fallegur og fullkominn í alla staði og það er gaman að sjá Jóhönnu og Magnús í foreldrahlutverkinu. Það var líka soldið gott að fá útrás fyrir eggjahljóðin sem koma reglulega í mömmuna á heimilinu….
Einar var alveg dolfallinn yfir frænda sínum, týndi til allt dót í húsinu sem hann fann, bangsa, teppi og allt annað sem hann taldið að Guðmundur þyrfti að hafa sér til dægrastyttingar. Þegar Guðmundur átti að fá nýja bleyju eða var að drekka var Einar ótrúleg hjálparhella að sækja hitt og þetta. Einar spurði einn morguninn þegar við vorum tvö frami með Guðmund Elí,
”Mamma, hvenær kemur barnið úr maganum þínum”
”og ég svara Einar minn mamma er ekki með barn í maganum”
”Einar hneykslaður, hvað gerðiru við það mamma”
En það eru ekki allir sem vita það að sama dag og litla fjölskyldan kom í heimsókn millilenti Sunna í Köben á leið sinni til Lúxemborgar. Sunna stoppaði í rétt um klukkutíma og við fengum okkur pulsu og kók og spjölluðum aðeins, Sunnan mín var nú rétt að fatta að hún væri lögð í þessa ævintýraferð og hugsaði til tregabundinnar kveðjustundar sem hún hafði átt með fjölskyldunni um morguninn. Þrátt fyrir að það hafi verið erfitt að kveðja þá var hún ótrúlega spennt enda mikið ævintýri sem beið hennar og guð hvað það var gott að sjá hana og knúsa hana, hef ekki hitt þennan helming fjölskyldu minnar síðan í janúar. En Sunna mætti í Lúxlandið og rúntaði um helsta nágrenni og svo var hún bara farin af stað í heljarinnar ferðalag til Ítalíu með fjölskyldunni sinni þarna úti. Þau keyrðu frá lúxemborg til Italíu þannig að Sunna er búin að sjá rosalega mikið þessar fyrstu vikur sem hún er búin að vera þarna og ég efast ekki um að það bíði hennar fleiri ævintýri. En bara svona til að koma því að þá átti daman afmæli á mánudaginn 07.09.09 og varð 19 ára gömul, tíminn líður maður.
Ég hef nú aðeins talað um að ég sé komin í körfuna aftur og bara þannig að þið fylgist með þá er ég ennþá í körfunni og það er voðalega gaman. Á laugardeginum eftir að litla fjölskyldan fór þá var teem weekend hjá liðinu mínu. Þetta var hálfgerð óvissuferð, við mættum einhverstaðar upp í sveit snemma morguns á laugardegi með pakkað eftir lista sem við fengum í hendurnar. Við byrjuðum á því að vera settar saman tvær og tvær og það var hlaupið um skóginn í ratleik, það var mjög skemmtilegt og þetta er víst mjög vinsælt fjölskyldusport hérna. Eftir ratleikinn var nestað sig og gengið þangað sem við áttum að sofa, við komum að fallegum trjálundi með bálstæði og svefnskýli (Svefnskýli=undir berum himni) þar hófst heljarinnar dagskrá, strategy var spilað live, allskonar þrautir, púsl og fleira sem átti að efla liðsandann. Þegar leikjadaskránni var lokið fengu allir hlutverk í því að gera kvöldið og kvöldmatinn tilbúinn. Safna sprekum á eldinn, gera salat, deig fyrir brauð og fleira. Þegar allt var tilbúið grilluðum við pulsur og brauð yfir opnum eldi. Síðan var bara huggað sig fram að svefni, þar skriðum við hver á sinn stað, varla hægt að snúa sér og sofnuðum værum blundi. Allar svo ótrúlega þreyttar eftir æfingar vikunnar og að sjálfsögðu þennan dag í óbyggðunum. Það var skrítið og skemmtilegt að vakna út í skógi og hafa sig til fyrir átök dagsins, maður svaf alveg ótrúlega vel þrátt fyrir að vita af allskonar skriðkvikindum út um allt. Átök dagsins var fjallahjólatúr um skóginn og ég verð nú bara að segja að það er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Að sjálfsögðu kom smá frétt um þetta á heimasíðu liðsins http://falconbasket.dk/falcon/index.php?newspage=1242 og svo var pabbi einnar sem tók myndir af okkur í hjólatrúrnum og blastaði þeim hérna http://picasaweb.google.com/Sikkerhedsgruppen/FalconBasket?feat=directlink<br />#
Svo ég klári nú körfuboltann áður en ég segi eitthvað merkilegt af karlpeningi fjölskyldunar þá spiluðum við okkar fyrstu æfingaleiki á síðustu helgi. Spiluðum við Falcon junior herrer á laugardaginn, töpuðum fyrir þessum bráðefnilegu strákum en fengum rosa góða æfingu út úr því. Á sunnudaginn héldum við til Sviþjóðar n.t.t. Lund og spiluðum við kvennalið þar. Við byrjuðum rosalega sterkt 9-0 en svo var jafnt á öllum tölum fram til fjórða leikhluta þar sem þær sænsku hittu brjálæðislega mikið og enduðu á að taka okkur með um 20 stiga mun. Ég hef byrjað þessa tvo leiki og hleyp ásinn eins og vanalega fyrir þá sem skilja það mál. Stefnan er bara að halda áfram að byrja leikina og gera eitthvað að viti þegar maður er inná. Á næstu helgi er stefnan tekin til Hamborgar í þýskalandi þar sem við tökum þátt í þriggja daga móti. Við keyrum héðan á föstudagsmorgun og komum seint á sunnudegi, yfir helgina verða spilaðir fjórir leikir þannig að maður á eftir að vera nett búinn á því þegar maður kemur heim.
Finnst ég soldið vera gamla konan í þessum hópi, það er ein sem er jafngömul mér, tvær sem eru fæddar 87 og svo er rest fædd 90-91. Þannig að halló gamla kona, ég er eina sem á börn og svo hef ég nú ekki viljað viðurkenna það en ég er búin að eiga við smá bakmeiðsli að stríða sem ég vil eiginlega ekki sýna því þá verð ég endanlega gömul:) En hrósið er það að kaninn okkar hélt að ég væri kannski bara svona 22 ára, hún vonaði nú samt að hún væri ekki að móðga mig en eins og hún sagði ”You look young” Og það tek ég sko með mér, vona bara að hún fari ekkert að botna setninguna ”But you move slow” ha ha ha ha…
Já karlarnir í fjölskyldunni, virðast bara ekki vera eins skemmtilegir og ég eða að það sé staðreynd að ég haldi á pennanum og leiðist aldrei að tala um sjálfa mig:)
Eins og alltaf þá er Jónatan á kafi í vinnu, það er stórt verkefni sem vonandi fer að klárast á næstu vikum og þá ætti hann að detta aftur í 8-4 gírinn. Hann er samt búinn að vera ótrúlega duglegur undanfarið, hjólar í vinnuna á hverjum degi og heim aftur og þrisvar í viku fer hann extra snemma og nýtir sér æfingarsalinn sem er þarna upp í Danske Spil. Þá lyftir hann eins og enginn sé morgundagurinn og mætir ferskur í vinnu eftir góða æfingu og ókeypis sturtu:)
Einar er náttúrulega bara æðislegur eins og alltaf, hann er alltaf jafn sáttur á leikskólanum og er ótrúlega góður hérna heima líka. Við erum aðeins farin að kenna honum að lesa, hann er farinn að mynda hljóðin með öllum stöfunum og farinn að reyna að setja þá saman. Pabbi hans er alveg ótrúlega þolinmóður og duglegur að gefa sér tíma þegar það er háttatími að lesa fyrir hann allskonar bækur. Magnús og Jóhanna komu færandi hendi með tvær bækur í safnið og það vakti aldeilis lukku. Við lesum fyrir Einar á hverju kvöldi þar sem við erum staðráðin í því að halda vel í íslenskuna og hann hefur ekki fengið nýja íslenska bók síðan ég veit ekki hvenær þannig að allar bækur hafa verið lesnar yfir 10 sinnum flestar yfir 20 sinnum. Um daginn voru þeir að lesa einhverja barna Atlas bók voru í kafla þar sem talað er um jörðina, sjóinn, fjöllin og allt það og þá byrjaði Einar að tala um forsetann og pabbi hans var ekkert að átta sig á þessu hjá honum. Svo vorum við að tala saman um kvöldið þ.e. ég og Jónatan og hann var að segja mér hvað Einar væri stundum steiktur hefði bara talað um forsetann þegar hann var að lesa barna Atlasinn. Þá sagði ég Jónatani frá því þegar ég og Einar áttum túristadag og fórum í grasagarðinn. Þá gengum við framhjá lítilli lækjarsprænu og þá æpir Einar, Mamma sjáðu sjáðu forsetinn, forsetinn og ég alveg HA hvar. Þá er hann náttúrulega bara að tala um foss þessi elska.
Einar fékk skemmtilega sendingu í vikunni, Ragga frænka sendi honum DVD – nýjustu Latabæjar diskana og þeir hittu sko beint í mark. Einar hefur notið góðs af því að Ragga frænka vinni í Latabæ og hefur verið dugleg að gauka að honum smá dóti. Latibær er að ná flugi hérna úti, er reyndar sýndur á áskriftarstöð þannig að það eru ekki öll börn sem þekkja hann. Einar er öfundaður af Henson latabæjargallanum, latarbæjarkallinum sem reyndar fótbrotnaði í sumar og fleiru. Við erum oft og iðulega spurð af foreldrum og starfsmönnum hvar við höfum fengið hitt og þetta latarbæjardót og þá getum við bent á gamla góða ísland.
Þegar ég var að keppa í svíþjóð skellti Jónatan sér í Tívolí með Einar. Það var frekar blautt þannig að það var ekki splæst í túrpassa heldur fékk einar að velja sér 3 tæki sem hann mátti fara í. Einar var mjög sáttur og ánægður með daginn enda endaði hann á vöffluboði hjá Árna og Ásdísi. En það var eitt sem hann náði ekki úr sér og það var að hann hafði ekki fengið að hoppa á hoppudýnu sem er á leiksvæði í Tívolí, það var rigning og Einar ekki í pollafötum og því ekki í stöðunni að skella sér á blauta hoppudýnu. Einar röflaði um þetta allan daginn og langt fram á kvöld, dæsti reglulega og svo kom, Ég er svo leiður af því ég fékk ekki að fara í hoppudýnuna. Afhverju setti pabbi mig ekki í pollagalla, ég er svo leiður mig langaði svo að prufa……oooo ég er svo leiður.
Haukur er sem fyrr á Króknum og bara sáttur, hann er byrjaður í skólanum og finnst það bara ágætt hann er kominn með msn og þið megið endilega hafa samband ef þið viljið fá msn adressuna hans, ég ætla ekki að blasta henni á alheimsnetið. Hann kemur til okkar 14. október og þá er stefnan tekin á að fara í Tívolí en þá er opið þar sem það er Halloween. Á þeim tíma sem hann kemur er líka vetrarfrí hérna í DK þannig að það mun vera margt í boði fyrir börnin. Okkur langar soldið að sjá eitthvað leikrit eða söngleik en við sjáum til hverju við komum að.
En almennar fjölskyldufréttir, við höfum sagt upp íbúðinni okkar hérna og ætlum að leita okkur að íbúð á almennum markaði s.s. utan leigufélags. Við erum að borga frekar háa leigu hérna og höfum hugsað okkur að komast af með aðeins minna sérstaklega þar sem ég er án atvinnu. Við ætlum að halda okkur á þessu svæði, dettur ekki í hug að flytja Einar um leikskóla og svo er þetta bara æðisleg staðsetning.
Ég sæki og sæki um vinnur en fæ bara nei, segja allir að þeim lítist vel á mig, að ég sé samkeppnishæf, hafi allt sem til þarf utan reynslu, passi ekki akkúrat fyrir þetta en vilja halda mér inni ef eitthvað annað dúkki upp sem passi betur. Ég verð bara að trúa því að það rætist úr þessu hjá mér og ég fái eitthvað að gera. Það eru mjög strangar reglur til að ég haldi dagpeningunum sem ég er á. Ég er búin að sækja tvo fundi, annarsvegar hjá A-kassanum mínum og hinsvegar hjá Jobcenter. Ég þarf að fylla inn á ákveðið heimsvæði hjá A-kassanum mínum skema fyrir hverja vinnu sem ég sæki um og updaita stöðuna um leið og ég fæ svör. Ég er komin með einhver 15-20 störf þarna inn og búin að fá 4 nei ég bíð eftir svari frá hinu.
Við erum aðeins farin að sakna nokkurra hluta frá íslandi, kannski ekki alveg sakana en okkur er farið að langa í. Lýsi, flatkökur, harðfisk, súkkulaðirúsínur svo eitthvað sé nefnt. Vona að ástkær systir mín komi færandi hendi þegar hún kemur til mín.
Barnalandsáskriftin er útrunnin og ég þarf að endurnýja hana við tækifæri svo ég geti haldið áfram að skella inn myndum, ég læt vita þegar það kemur.
knús og kossar


