blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Fréttaveitan

    Posted on August 20th, 2009 tinna 4 comments

    Hæ hæ, best að koma með smá pistil.

    Rútínan er að komast í gang á heimilinu eftir gott sumarfrí. Haukur fór á föstudaginn síðastliðinn og Einar spurði stanslaust um hann vel fram yfir helgi, saknaði bróður síns sárlega. Einar byrjaði á leikskólanum á mánudaginn og byrjaði á því að heilsa öllum með nafni hej hej Oliver Jeppsen, hje hej Simon A (segist í syngjandi tón). Kom að sækja hann þegar rútan kom og hann var ein fýla að fá ekki að fara aðeins inn í leikskóla og leika sér þar. Vildi sko ekki koma heim með mömmu sinni, alla vikuna hefur hann verið fúll að vera sóttur beint úr rútunni þannig að við ætlum að sækja hann síðar í dag þar sem það er sumarhátíð á leikskólanum sem hefst klukkan 5.

    Pabbinn vinnur og vinnur, var t.d. að vinna alla helgina og útlit fyrir að hann vinni næstu helgi líka þannig að ég og Einar erum í því að dunda okkur bara tvö. Hann reyndar fór á golfmót í gær og hann vann ekki þar, alveg ömurleg frammistaða miðað við hvað hann hefur unnið mikið:)

    Ég var að byrja í körfunni og hef farið á þrjár æfingar, ég er að æfa með liði sem heitir Falcon http://falconbasket.dk/falcon/ . Ég bjóst við að þetta yrði einhver körfubolti á á hærra leveli en heima og ég yrði örugglega lélegust og var búin að búa til heim í kringum þetta allt í kollinum á mér. Þetta er bara nákvæmlega eins og að hafa dottið inn i eitthvað lið heima á íslandi þar sem  maður þekkir ekki neinn og spili körfubolta. Þægilegt að maður geti farið að hreyft sig, hitt stelpur og gert eitthvað sem maður gerir vel þegar maður hangir annars heima allan daginn.

    Á æfingunum finn ég týpurnar sem ég hef áður æft með, en ég finn samt enga Signý, hún er líka einstök:) Við erum með ungt og efnilegt lið og ég er að byrja að læra nöfnin, er aðeins feimin og hef þar af leiðandi ekki látið til mín taka með hörku í leikstjórn liðsins. Ég hleyp ásinn og stýri að því marki sem ég þori en eins og ég segi þá er ég soldið feimin og kann ekki öll nöfnin þannig að það kemur bara. Erum með eina unga stelpu sem er vel yfir 180, snögg, góð með boltann, hittinn og með góðar hreyfingar fyrir utan og innan þar af mjög góða fótavinnu. Er soldið spennt að sjá hvernig þetta á allt eftir að slípast hjá okkur, framundan eru æfingamót á Jótlandi og svo er talað um ferð til Þýskalands og óvissuferð og ég veit ekki hvað og hvað:)

    Fékk skilaboð hjá múttu túttu í gær um að Hanna María og Erlendur væru í bænum og vildu endilega hitta mig. Ég gerandi ekki neitt allan liðlangann daginn fagnaði því og hitti þau á Hvides vinstue í gærkvöldi. Við áttum mjög skemmtilegt kvöld þar sem við ræddum heima og geyma, Hanna María lærði hérna á sínum tíma og elskar Kaupmannahöfn, Erlendur sagði hana það stolta af dönskunni sinni að hún talaði hana alltaf í útlöndum, líka þó þau væru í suður Afríku:) Hún Hanna hló nú bara að honum Erlendi og sagði dönskuna svooo praktíska. Það var ótrúlega gaman að hitta þau og spjalla og ég vona að ég eigi eftir að fá fréttir af fleiri vinum og ættingjum á ferðinni sem ég get hitt yfir bjórkrús eða kaffibollta og talað um heima og geyma.

    Jökli bróðir og Bjargey, fengu afhenta íbúðina sem þau voru að kaupa á laugardaginn. Þau eru víst búin að vera ótrúlega dugleg að koma sér fyrir og spennt að fylla slottið af börnum…. djók, engar barneignir á dagskrá að mínu viti hjá þeim. En ég á eftir að bera út þá sögu og fleiri ef þau fara ekki að setja inn myndir fyrir forvitnu systu/mágkonu í útlandinu.

    Svo styttist í Sunnu, Magnús og Jóhönnu. Koma öll 25. ágúst, Sunna millilendir í 2-3 klukkutíma á leið sinni til Lúxlandsins þar sem hún ætlar að gerast auper í einhvern tíma, læra nýtt tungumál og uppfyllast af Evrópskri menningu. Magnús og Jóhanna eru í raun líka að millilenda en þau millilenda í 3 daga á leið sinni til Parísar þar sem þau eru búsett. Ég er svoooo endalaust þakklát fyrir að þau kíki við hjá okkur og leyfi okkur að knúsa gullmolann hann Guðmund Elí, við getum ekki beðið eftir að sjá þau öll:)

    Ég held svo áfram að sækja um vinnur, sinna heimilisstörfum og kíkja á tilboðsbæklinga. Ég er búin að lesa haug af bókum í sumar, fengum svo margar bækur í jólagjöf sem við vorum ekki búin að komast yfir og svo bættust tvö stykki við í maí í kringum afmæli okkar Jónatans. Ég hef notið þess að dreifa huganum með því að setjast niður með góða bók, hvort sem það er hérna heima eða í einhverjum garði. Ég ætti kannski að skrifa einn pistill sem er bókadómur, hver veit … .ég veit allavegana að ég hef tíma til þess

    En ætli að þetta sé ekki gott í bili, word count segir 950 orð og mér þykir því líklegt að enginn eigi eftir að nenna að lesa niður svo langan pistil.

    Við komum svo líklegast með blogg og myndir af sumarhátíð Einars um eða upp úr helgi og svo munum við halda áfram að blogga um matargerð okkar hjóna þegar við erum í stuði:)

    knús og kossar

  • Hafrakex fyrir systur mína

    Posted on August 13th, 2009 tinna 1 comment

    Þar sem heilsa 2009 var að hefjast hér á bænum þá gerði húsfrúin tilraun 2 í hafrakexi. Reyndi þetta fyrr í sumar en kexin sem komu út úr því nutu ekki vinsælda á mínu heimili, varð eins og bakaður hafragrautur með kanil…. Ég ákvað því eftir að hafa legið yfir allskonar uppskriftum að prufa mína eigin útgáfu og hún lukkaðist alveg ljómandi vel, að sjálfsögðu blastaði ég því á facebook að ég hefði verið að baka hafrakex og fékk þá spurningar um uppskrift og hérna kemur hún.

    1/2 dl hunang líka hægt að nota agave sýróp
    1/2 dl olía
    1/2 dl vatn
    4  matskeiðar eplamauk
    1 tsk lyftiduft
    1 dl spelt
    1 msk kanill
    3 dl blandað haframjöl, múslí, kókosmjöl  þangað til þetta er orðið frekar þykkt

    Mallaði þessu öllu saman og setti á bökunarpappír og pressaði hverja köku niður með gaffli  þannig að þær voru mjög þunnar, setti svo inn í blástursofn á 180 °C  í 18 mínútur. Þá voru þær orðnar gullinbrúnar, fallegar og stökkar. Út úr þessu fékk ég um 12 ágætlega stórar kökur:)

    Held að þetta sé alveg ágætlega hollt miðað við það hráefni sem er notað þannig að þetta verður á MÁ BORÐA LISTANUM:)

    Sweeden 096Sweeden 095

  • Sumarfrí og Svíþjóðarferð

    Posted on August 12th, 2009 tinna 2 comments

    Það er óhætt að segja að við séum búin að bralla mikið og margt í þessu sumarfríi okkar. Eftir frábæra viku í sumarhúsi og nokkra daga í afslöppun hérna heimavið brunuðum við af stað til Svíþjóðar nánar tiltekið til Uppsala þar sem afi Simmi og amma Hafdís búa. Við vorum á hvítri eðal Toyota bifreið sem flutti okkur örugglega eftir hraðbrautinni á áfangastað. Upphafspunktur ferðarinnar þótti e.t.v. merkilegastur samkvæmt Hauksanum en það var þegar við keyrðum bara yfir í annað land:)

    Sweeden 102Sweeden 014

    Við vorum vel nestuð og ætluðum að gefa okkur góðan tíma í stopp og hugguleg heit utan vegana, en veðrið var ekki upp á marga fiska og drengirnir ótrúlega góðir í bílnum þannig að við brunuðum frekar hratt yfir og vorum því bara í um 8 klst á leiðinni. Okkur var fagnað virkilega vel þegar við komum til Uppsala og okkur leyst ekkert smá vel á umhverfið hjá afa og ömmu. Þau búa í hverfi sem heitir Savja sem er aðeins fyrir utan Uppsala kjarnann, umhverfis blokkina þeirra er aragrúi af leiktækjum fyrir allan aldur og svo við tölum nú ekki um að bakgarðurinn er risa skógur (held að hann nái til Stokkhólms). Við fórum í nokkrar göngur um skóginn með Heru og svo var mamman soldið dugleg að hlaupa um skóginn og taka Heru með. Hera hefur ekki fengið svona mikla útiveru síðan hún fæddist að við höldum og var oft alveg búin á því eftir daginn:)Sweeden 136Sweeden 168

     

    Sweeden 160

     

    Við tókum góða túristadaga um Uppsala, en þar er afskaplega falleg Dómkrikja, konungshöll, konungsgarður og svo er miðbærinn virkilega fallegur og sjarmerandi. Ekta svona útlandaborg með á sem rennur í gegnum hana miðja:) Við vorum dugleg að stoppa og njóta umhverfisins þar sem við fengum ótrúlega gott veður þessa daga og því soldið erfitt að fara hratt yfir í túristaleik.Sweeden 004

    Sweeden 121Sweeden 069

    Við tókum svo dag á ströndinni þar sem við gátum vaðið lengst út í vatnið þar sem það var mjög grunnt. Við tókum líka dag í Stokkhólmi, röltum um gamla Stan, skoðuðum miðbæinn í kringum Central Station og að sjálfsögðu torgið sem Beet it var tekið svo eftirminnilega http://www.youtube.com/watch?v=V3dh0HcnBnw. Við enduðum þann túristadag á því að svamla í gosbrunni á Karl 7. torginu sem endaði með skurð á tá hjá Einari jr. en það var ekkert sem smoothie á Fridays bjargaði ekki:).Við skelltum okkur tvisvar í Stokkhólm einn túristadag bara fjölskyldan og svo einn dag þar sem mamma. pabbi, Haukur og Mikael fóru og hittu afa. Við röltum um Stokkhólm og svo urðu mamman og pabbinn eftir og tóku smá kærustuparakvöld á þetta. Hittu vini sína Kristján og Höllu og tóku soldið tjútt með þeim sem var líka svona rosalega skemmtilegt.

    Annars var ótrúlega notalegt að vera í Svíþjóð, þjónustan hjá ömmunni er í takt við aðra ömmuþjónustu sem við höfum fengið í formi þess að bera góðan mat á borð og láta hreinan þvott birtast inn í herberginu hjá okkur. Einar var líka mjög lukkulegur með að í næstu blokk býr dóttir Hafdísar hún Guðrún með sinni fjölskyldu og Nói sonur hennar er fimm ára gamall og þeir náðu ótrúlega vel saman.

    Við fórum í eina fjölskylduferð öll saman í nálægan skóg þar sem við grilluðum pulsur og svo var tekinn göngutúr þar sem aðal þemað var að skoða engisprettur og froska. Drengirnir okkar höfðu aldrei séð svona kvikindi og því voru teknar nokkrar myndir og svo komu þeir með froska og hrelltu mömmuna þar sem hún lá í sólbaði á meðan karlmennirnir könnuðu náttúruna:)

    Við ætluðum upphaflega bara að vera í viku en veðrið lék við okkur og okkur leið bara svo vel að við ákváðum að vera aðeins lengur. keyrðum heim á mánudaginn og fórum þá aðra leið, keyrðum í raun þvert yfir svíþjóð.Keyrðum í gegnum Örebro, komum við í Gautaborg og Malmö og skoðuðum okkur aðeins um en okkur reiknast til að við höfum keyrt um 1500 km fram og til baka…. Leiðin til Uppsala var mjög einsleit, vorum á hraðbraut nánast allan tímann og sáum ekki mikið lengra en næsta tré þar sem það var þéttur skógur báðu megin við hraðbrautina, keyrðum reyndar í gegnum Smálöndin en fyrir ykkur sem munið það ekki þá er það þar sem hann Emil í Kattholti átti heima. Þegar við sáum Smaland merkið þá fengum við Emil í kattholti lagið á heilann og það alveg bjargaði geðheilsunni…. eða þannig. Leiðin heim var öllu skemmtilegri ekki eins þéttur skógur og miklu meira að sjá enda keyrðum við í gegnum nokkra bæi.Sweeden 050Sweeden 088

    Þetta er búið að vera ágætis ferðatörn hjá okkur, pabbinn er spenntur að komast inn í rútínuna sína í vinnu og golfi og Einar bíður eftir því að komast í leikskólann. Öllum kvíður fyrir föstudeginum en þá kveðjum við Haukinn okkar eftir þessa mánaðardvöl, hann kemur svo aftur til okkar 14. október og þá ætlar hann að prufa að fljúga einn:) Vorum að spjalla saman í morgun og þá sagði Haukur að þetta væri búið að líða alltof hratt, og það er alveg rétt. En það góða er að tíminn á milli líður líka hratt þannig að áður en við vitum þá verður hann kominn til okkar aftur.

    I næstu viku mun heilsa 2009 hefjast hér á bænum en ef ykkur finnst við hafa fitnað þá er það barasta alveg rétt:) Nú verður tekið á því eftir sumarsukkið og mamman ætlar meira að segja að fara að æfa körfubolta með liði hér í bæ til að bjarga geðheilsunni og fullnægja körfuboltafíkninni sem sækir alltaf svo sterkt á hana á haustin.

    Held að þetta sé gott í bili hjá okkur, við erum búin að setja allar myndir úr svíþjóðarferðinni inn á barnaland, sorrý hvað þær eru margar við nennum bara ekki að vera að pikka út myndir (nema myndir þar sem ég er asnaleg) annað fer alveg í gegn:)

    Endum bloggið á gullmolum Einars.

    • Mamma “Einar komdu bara í kvartbuxurnar” – Einar “svo ég geti kvartað” 
    • Pabbi “Viltu svo ekki bara vera í hlýrabolnum” -  Einar “svo mér verði hlýtt”
    • Einar í kerrunni í uppsala túristaleik – “Uppsala, uppsala, uppsala….. niðursala, hægrisala, vinstirsala, útsala……”

    Kossar og knús