-
Góðir dagar sem við erum búin að eiga ÖLL saman
Posted on July 29th, 2009 4 commentsHæ hæ kæru lesendur:)
Eins og flestir vita kom Haukur “heim” þann 15. júlí síðastliðinn. Á móti honum tók að sjálfsögðu mamma, pabbi og bróðir. Og svo var honum fagnað af geggjuðu veðri… .stóðum okkur að því að láta barnið skipta um buxur í Metro á leiðinni frá flugvellinum. Það var barasta svo heitt:)

Fyrstu dögunum var eitt í chill á strönd, chill á sundlaugarbakka og chill á svölunum, smá golf með pabbanum og almennt kúr og knús til að vinna upp síðustu 40 daga. Náðum öll að taka svaka lit og Haukur wörkaði tanið alveg þokkalega strax á degi númer tvö eins og sjá má á mynd hér að neðan.

Á mánudaginn 20. júlí var haldið á norðu Sjáland þar sem við dvöldum í heila viku í sumarhúsi í eigu fjölskyldu Ásdísar vinkonu okkar. Við vorum svo heppin að þau komu með okkur og við áttum þar alveg geggjaða viku. Við vorum í litlum strandbæ, ef það er hægt að kalla þetta strandbæ. En þetta er þannig að ströndin byrjar hjá sjónum fyrir ykkur sem vitið það ekki, svo kemur gata og svo kemur mega stór skógur og þar eru lítil sumarhús útum allt. Við vorum á svæði sem heitir Råeleje og er í Skovby kommune.

Við undirbjuggum okkur vel og bökuðum skinkuhorn, pizzasnúða og franskar súkkulaðikökur ala amma Gunna eins og við ættum lífið að leysa á sunnudeginum fyrir bústaðarferð:) Þetta var étið upp til agna með góðri list ferðafélaganna:)

Við vorum þannig séð ekki heppin með veður en heldur ekkert óheppin. Þriðjudagurinn var fallegur dagur, við fórum í göngutúr með ströndinni og könnuðum nánasta umhverfi, svo fóru kallarnir í golf og við hin lágum í grasinu, spiluðum, lásum og höfðum það gott. Næstu daga vöknuðum við í fínu og mildu veðri en svo gekk vanalega á með skúrum, þrumum og eldingum að hætti útlandaveðursins seinnipartinn. Við nutum þess að vera í sumarhúsinu, ganga um skóginn, taka rölt á ströndina, vaða og baða okkur í sjónum og allt það almenna sem maður gerir í svona sumarhúsi. Það má ekki gleyma því að fullorðna fólkið í ferðinni var búið að plana matinn fyrir vikuna í maí og þar af leiðandi var veisla að hætti hússins á hverju kvöldi. Fengum m.a. grillaðan íslenskan lax og grillað lambalæri þegar Dísa skvísa átti ammæli.


Á laugardaginn skelltu Árni og Ásdís sér í bæinn þar sem pabbi Ásdísar þurfti að koma til DK frekar óvænt, við fjölskyldan áttum því helgina alveg alein í sumarhúsinu og þá kom eiginlega besti dagurinn, við fórum á kaffihús og fengum okkur kaffi og gosglas, skelltum okkur svo á ströndina og böðuðum okkur í sjónum eins og enginn væri morgundagurinn og fengum okkur svo hressingu að strandferð lokinni. Um kvöldið voru afgangar vikunnar étnir upp til agna og spiluð mörg skemmtileg spil, manni, rakki, yatzy og almenn rugluspil eins og okkur einum er lagið.


Við komum heim á sunnudaginn frekar sátt eftir vikuna og höfum eitt þessari viku í að þrífa þvott og gera okkur klár fyrir næsta ferðalag. Á föstudaginn er ferðinni heitið til Uppsala í Sverige. Þar búa afi Simmi og amma Hafdís ásamt Heru sinni og við getum ekki beðið eftir að knúsa þau og detta í viku dekur. Við höfum líka tekið stutta túristadaga, eldað góðan mat, átt kósý kvöld á svölunum eða fyrir framan sjónvarpið en í sjónvarpinu hjá okkur er horft á So you think you can dance….
eða FriendsTilraunaeldhús okkar hjóna heldur áfram, á mánudaginn prufaði húsfrúin sig áfram í grænmetisrétti sem er fylltar paprikur og við leyfum myndunum bara að tala sínu máli. Þið sem eruð á leiðinni til okkar á næstu vikum (Eruð í favorites group hjá okkur) eigið eftir að fá að smakka á þessu gómgæti húsfrúarinnar…. sem b.t.w. hefur lítið annað að gera en að plana heimilishaldið, matargerð, bakstur og almenna tiltekt þessa dagana….. Þeir sem luma á slappi af njóta lífsins geninu vinsamlegast hafið samband. Það er eitt að fara í sumarfrí en það er allt annað að vera atvinnulaus haldandi að maður sé í fríi og vita ekkert hvað bíður mannnnnnnssssss…..


- Sunna Guðný a.k.a. litla stóra frænka mín stoppar í 2-3 klst að mig minnir þann 24. ágúst
- Magnús, Jóhanna og elsku besti nýji frændinn okkar hann Guðmundur Elí koma til okkar þann 25. ágúst á leið sinni frá Íslandi til Parísar. Þau ætla að vera hjá okkur í 3 daga, en þau fara 28. ágúst.
- Fallegasta systir í heimi og minn eðal mágur ásamt þeirra síðburði koma svo í byrjun september og stoppa í góðann tíma til að knúsa Tinnu litlu og týnda soninn (Einar Jónatansson yngri)
Til að fullkomna það að við fáum alla hersinguna þá vantar okkur bræður okkar, þá Kristinn og Jökla bró. Vona að þeir lesi þetta og skammist sín og bóki far hið fyrsta;)
Sem fyrr þá höfum við haugað myndum inn á barnalandið okkar. Endilega skiljið eftir spor þar eða hér á að þið fylgist með okkur, við vitum jú alltaf hvað við erum að bralla og þetta er meira gert fyrir vini og vandamenn heima:)
Annars er það bara knús og kossar frá okkur til ykkar
-
Að gleypa járnkúlu og aðeins meira
Posted on July 14th, 2009 No commentsÞað er nú stutt síðan síðast en það er held ég tilefni til bloggfærslu á þessum þriðjudagsmorgni, eins og ein frænkan sagði. Hann er bara farinn að minna á Emil í Kattholti þessi drengur.
Einar nefninlega afrekaði það í gær að gleypa járnkúlu nákvæmlega svona járnkúlu sem er í seglaleikfanginu hans, þið kannist eflaust við svona dót. Þeir bræður hafa verið að safna þessu í dáldinn tíma og eiga haug af þessu.

Einar var s.s. að dunda sér inn í herbergi í gær eftir að við vorum búin að perla og svo kemur hann hlaupandi fram með skelfingar hræðslu svip heldur á einu svona gulu eins og þið sjáið á myndinni og hrópar “Kúlan fór ofaní maga hún fór ofaní maga… hvað eigum við að gera í því” svo opnuðust allar flóðgáttir og hræðsla hjá litla manninum. Ég reyndi að róa hann og segja að hún kæmi niður í gegnum líkamann og yrði samferða bananabrauðinu sem hann var nýbúinn að láta ofaní sig en hann var ekki alveg að átta sig á þessu. Eftir smá googl og kvartanir frá Einari að honum væri illt í brjóstinu taldi ég vísast að hringja allavegana á spítalann og sjá hvað þeir segðu.
Ein svona kúla er um 1,2 cm í þvermál og þar af leiðandi soldið stórt fyrir lítinn meltingarveg, þeim fannst réttast að við kæmum með Einar og létum kíkja á hann. Ég veit ekki alveg hvað barnið hefur haldið að við værum að fara með hann en hræddur var hann en samt með fullan skilning á alvöru málsins. Tautaði með sjálfum sér hvað gerum við nú, hvað er með mig eiginlega, hvað getum við gert í þessu, ég er með kúlu í mér…….

Fyrst hittum við konu í móttöku herbergi sem tjékkaði okkur inn og við sögðum hvað hefði gerst, hún fullvissaði okkur um að kúlan myndi redda sér sjálf út en taldi rétt að við myndum heyra í lækni. Eftir að hafa tjékkað okkur inn fórum við í lítið biðherbergi og þá var Einar byrjaður að kjökra aftur, ég leit á hann og þá heyrðist “Hvenær setja þeir gat í mig” og svo láku bara tár. Þá var Einar fullviss um að eina leiðin til að taka kúluna úr líkamanum væri að skera á hann gat og því lengur sem við vorum á spitalanum þeim mun hræddari varð hann. Við náðum þó að segja honum að kúlan myndi alveg pottþétt verða samferða bananbaruðinu og hann myndi kúka henni síðar. Þá létti honum nú aðeins og bað pabba sinn um að fara með sig á klósettið þar sem hann ætlaði að kúka þessari kúlu út.
Hérna erum við að gá hvort að við náum kúlunni á mynd

Þegar við töluðum við starfsfólkið kom greinilega í ljós hvað einar er flottur í dönskunni:)
- Læknirinn: Einar hvad er det med dig
- Einar: Jeg har spist en jern kule, den smagedest ikke godt
- Læknirinn: Har du spist mange jern kuler
- Einar: Nej, jeg har kun spist en og de ma man ikke
- Læknirinn: Har du ont i maven Einar
- Einar: Jeg har lidt ont i maven
Svo héldu samræðurnar áfram, Einar spurði hvað læknirinn heitir, hvað pappinn ofaná sjúkrarúminu er kallaður, sagði honum frá Íþróttaálfinum, stóra bróður sínum, leikskólanum og fleiru og fleiru og fékk hann meira að segja til að kíkja aðeins á bangsann sinn.

En þetta fór nú allt vel og nú bíðum við spennt eftir að kúlan kom í ljós í klósettinu og erum með á nótunum að ef hann fær hita eða illt í mallann þá eigum við að fara með hann aftur á spítalann.
Það er soldið merkilegt að koma á svona stórt sjúkrahús eins og Hvidovre Hospital á bráðamóttöku eins og við gerðum í gær að við vorum helmingi fljótari í gegn þarna heldur en á litla Lansanum okkar á Íslandi. (Já við höfum farið með drenginn á slysó á íslandi í smá saumaskap)
Þegar við komum heim þá var Einar ekki alveg tilbúinn að fara að sofa með kúluna ennþá í maganum, pabbi hans ákvað að kúra með honum og þegar ég kíkti á þá voru þeir steinsofnaðir báðir tveir.

Núna erum við á fullu að undirbúa komu Hauksans til okkar, hann kemur á morgun. Fór í gær og keypti kommóðu fyrir hann í IKEA. Hann verður að geta komið sér alminnilega fyrir þar sem hann verður nú í heilan mánuð. Einar og pabbinn á heimilinu tóku strákaherbergið í gegn á sunnudaginn þannig að það er bara smá fínesering sem er eftir hjá mömmunni.
Annars voru yfir hundrað myndir teknar um helgina og þær eru komnar inn á barnaland.

knús og kossar frá okkur til ykkar
-
Bloggedí blogg blogg blogg
Posted on July 11th, 2009 4 commentsHæ hæ,
Síðan síðast hafa orðið miklar umbreytingar í okkar lífi, aðal breytingin er sú að ég, móðirin á heimilinu sú sem getur ekki verið án verkefna er án atvinnu. Það vantar ekki verkefnin fyrir mig en þegar maður vaknar klukkan 7 og skilar ungum manni á leikskólann þá er mikið af deginum og þar sem ég er alltaf í kappi við sjálfan mig eru verkefnin vanalega búin fyrir klukkan 10 á morgnana.
En svo við komum aðeins að því að ég sé ekki lengur starfsmaður ICEconsult. Það er þannig að það er töluverður verkefnaskortur eða hik á dananum að taka ákvarðanir sem leiða til þessa að verkin séu unnin. Það er helling í farvatninu hérna og margt ótrúlega spennandi í gangi en því miður er það ekki í hendi enn sem komið er. Mér var tjáð í lok apríl að ef ég yrði ekki eins og innfædd á dönskunni og ef að verkefnin kæmu ekki hlaupandi til okkar þá yrði mér sagt upp frá og með 30. júní. Danskan mín er ég held ég bara nokkuð góð miðað við að hafa búið hérn aí hálft ár og ekki raunhæft að ég verði eins og innfædd, en ég lagði mig samt fram við að verða betri og verða betri hraðar. Samt sem áður þá komu verkefnin ekki inn í því mæli að mín væri þörf og því vann ég minn síðasta dag þann 30. júní. Þetta var alltsaman mjög erfitt fyrir mig einhverskonar höfnun og ég felldi nokkur tár síðustu dagana en svona er þetta bara. Vinnuveitandi minn telur að verkefnin komi inn í hlössum þegar líður á haustið og þá eigi þau ekki eftir að geta klárað þau án mín og þá gæti verið gluggi fyrir mig að taka upp fyrri störf. En þangað til ætla ég að líta á þetta sem tækifæri til að demba mér í það án samviskubits gagnvart nokkrum að skoða hvað atvinnumarkaðurinn hér hefur upp á að bjóða og gá hvort að það opnist kannski bara nýr heimur fyrir Tinnu litlu.
En talandi um dagana og hvað þeir eru lengi að líða…….stend mig að því að vakna, fara með Einar á leikskólann, hreyfa mig, sinna heimilisstörfum og þá er klukkan 10 að morgni. Þá gjörsamlega les ég allt á internetinu og eiginlega bara klára internetið. Þegar klukkan er að slá eitt þá er hámarki leiðindanna náð og þá fer ég að bíða eftir því að sækja Einarinn á leikskólann klukkan 15:45. Á meðan ég bíð, ráfa ég um heimilið, les í bók, opna alla skápa (stundum búin að smakka eitt af öllu sem er í húsinu) og stundum horfi ég á einn Friends þátt. En svo ég segi nú bara eins og Joey (Friends) sagði, hélt ég hefði gott að því að vera ein með sjálfri mér og mínum hugsunum… en þegar á hólminn er komið þá hef ég ekki svo miklar hugsanir:)

En sem beturfer á ég nú ágætis mann um daginn þegar ég var frekar þung í símanúm við hann þá kom hann við í búð og keypti allt sem hann fann í búðinni og vissi að ég elskaði, það er Risastór blómvöndur, uppáhalds hveitibjórinn minn Haugaarden og smá til viðbótar:) Hann hefur líka sætt sig við soldinn konumat og við höfum átt nokkur góð kvöld á svölunum yfir afbragðsmat og góðu víni.

En að öðrum en mér. Í næstu viku kemur Haukurinn til okkar í langþráða sumardvöl sem er heill mánuður, við erum mjög spennt og Einar telur dagana samviskusamlega niður á hverjum morgni þegar hann vaknar. Við vorum mjög stollt um daginn þegar hann sagði einn daginn,
- í dag eru 7 dagar þangað til Haukur kemur,
- næsta morgun vaknaði hann og sagði í dag eru 6 dagar þangað til Haukur kemur,
- svo vaknaði hann og sagði Í dag eru 9 dagar þangað til Haukur kemur…..
þá var hitt sennilega bara tilviljun og við vorum að missa okkur yfir gáfum Einars.
Einar kom með að ég held að sé nýyrði í íslenskri tungu en við vorum að hjóla í leikskólann og það er búið að blása nokkuð hressilega á okkur í vikunni og þá sagði hann “Mamma ég er svo vindfælinn” ég er búin að prufa að googla þetta og fæ alveg zero results svo ég held að sonur minn sé heldurbetur að kikka inn í íslenskri tungu:)
Við höfum komið að kappanum sofandi í hinum ýmsu stellingum undanfarna daga, á bak við hurð var það fyndnasta. Hann hafði verið með vesen þegar hann var að sofna vildi koma fram og vera hjá okkur og var þyrstu og þurfti að pissa og þurfti að segja okkur leyndarmál og svo þegar við kíktum á hann þá var hann sofandi á bak við hurð:)

Það var þokkaleg hitabylgja hérna um daginn og við nutum hennar alveg í botn, borðað út á svölum alla daga vikunnar, farið í garða og á ströndina. Næturnar voru orðnar frekar erfiðar og lítið um svefn, rútuferðirnar í leikskólann voru Einari mjög erfiðar þar sem þau voru í óloftkældri rútu…. þangað til allt var orðið brjálað og núna keyra þau bara í loftkældri rútu.

Þegar Haukur kemur þá ætlum við að fara í sumarhús með vinum okkar sumarhúsið er efst á Sjálandi og er í eigu ættingja hennar Ásdísar og við fáum að vera þar í heila viku með þeim. Húsið er lítið og sætt en samt nógu og stórt fyrir okkur öll, með verönd og garði þar sem hægt er að leika sér í fótbolta, kubbi og fleiru og svo erum við örskotstund að labba á ströndina:) Við erum alveg ótrúlega spennt, búin að ákveða hvað á að vera í matinn á hverjum degi og plana smá dagskrá. Árni og Ásdís eiga bíl og Einar og Jónatan ætla að keyra með þeim, en ég og Haukur ætlum að nota tækifærið og upplifa smá ævintýri með því að taka lestina.
Um mánaðarmótin ætlum við svo að skella okkur til Uppsalas til pabba, Hafdísar og Heru. Haukur er ótrúlega spenntur að fara alla leið til Svíþjóðar, mikið sport að hafa komið til margra landa þegar maður er lítill strákur. Við erum ótrúlega spennt að hitta þau öll og erum meira að segja það heppin að Mikael verður þarna þegar við komum:)
Það er soldið svona sakn sakn í okkur, á síðustu helgi var ættarmót hjá föðurfjölskyldu Jónatans á Reykjanesi. Ættarmótið heppnaðist rosalega vel, mikið fjör, mikill söngur, mikið gaman erum búin að fletta í gegnum myndir og fá fréttir úr hinum og þessum áttum og hefðum alveg verið til í að upplifa nokkur móment þarna.
Svo var Jökli bró og Bjargey í Hólminum á síðustu helgi og áttu góðar stundir með Big sys og kó. Hefði sko alveg verið til í að knúsa þau og taka einn golfhring með þeim.
Svo er náttúrulega aðal saknið og löngunin til að knúsa hann Guðmund Elí Magnússon. Erum búin að fletta í gegnum myndirnar af honum þúsund og einusinni og hann er hreint út sagt gordjöss. Töluðum við nýbökuðu foreldrana á sunnudaginn og ekki laust við að það láku tár hjá okkur báðum. Erum alveg óendanlega þakklát fyrir hvað þau eru dugleg að skella inn myndum af kappanum á heimasíðuna sína. Á morgun ætla þau svo að leggja land undir fót og skella sér til Íslands, ég veit að vinir og ættingjar eiga eftir að bíða í röðum eftir því að knús gullmolann þeirra:)
En þetta klassíska að lokum er að við leitum ennþá að einhverjum sem er að fara frá köben til íslands þann 14. ágúst næstkomandi alveg sama hvort það er til Keflavíkur eða Akureyrar.
Við settum inn myndir á barnaland í morgun og höfum því uppfært 3 albúm á einni viku þ.e. maí, júní og júlí.
Kossar og knús frá okkur til ykkar
-
Nýjar myndir á barnalandinu og smá fréttir
Posted on July 4th, 2009 No commentsHér í kóngsins Köben er vægast sagt búið að vera heitt, við erum komin vel á aðra viku í hátt í 30 stiga hita. Okkur leiðist þetta nú ekki en næturnar eru orðnar soldið erfiðar og svo vaknar maður fyrir allar aldir til að komast út á svalir og kæla sig. Við erum búin að borða kvöldmat út á svölum alla síðustu viku og sitja svo langt frameftir kvöldi og kjafta. Litli maðurinn okkar hefur bara viljað vera inni að loknum leikskóla þar sem hann er kominn með nóg af hita og sól þegar hann kemur heim, þannig að við erum s.s. ekki búin að bralla mikið þessa virku daga.
Hitinn byrjaði eiginlega 21. júní og þá tókum við æðislegan og eiginlega óvæntan dag í valby garðinum okkar. Einar fór algjörlega á kostum og við náðum flottum myndum af kappanum rannsaka garðinn

17. júní var 17. júní…. ha ha ha. Elduðum æðislegt kjúklingasalat og borðuðum úti á svölum með íslenska og danka fánann á borðinu. Íslendingafélagið stóð svo fyrir hátíð á laugardeginum 20. júní. Ég og Einar hjóluðum ásamt Ásdísi vinkonu okkar og fórum á hátíðina, þar var hægt að fá SS pulsur, íslenskt nammi, pönnukökur og fleira íslenkst. Íslenskir töframenn og já allt bara mjög íslenskt:) Það var reyndar c.a. 70-100 manna röð í pulsu og nammibásinn þannig að þegar við ætluðum að fá okkur ekta íslenska SS pulsu þá voru þær því miður búnar:( En hátíðin var fín þrátt fyrir það:)
Þann 23. júní var Sankte Hans dag http://da.wikipedia.org/wiki/Sankthans þetta er” jónsmessuhátíð” þeirra dana og þið getið lesið ykkur til um hana á þessum link. Við ákváðum að njóta Sankte Hans brennu á Íslandsbryggju ásamt nokkrum félögum og fórum þangað og sáum bálið tendrað. Hér er mynd af pabba og Einari á þessum degi:)

Á síðustu helgi skelltum við okkur í Knuthenborg dýragarðinn http://www.knuthenborg.dk/ sem er í um klukkutíma fjarlægð héðan, við erum með bíl í láni hjá vinum okkar og við ákváðum að grípa tækifærið, þetta er sannkallaður paradís alveg risastórt svæði með helling af dýrum. Það er alveg ótrúlega fallegt þarna og við nutum þess ekkert síður að skoða náttúruna eins og dýrin. Við útbjuggum okkur með nesti fyrir daginn og vorum frekar dönsk á því með skinku, kartöflusalat og fl í þeim dúr (myndir á barnalandi:)) Á sunnudeginum vorum við svo heppin að okkur var boðið í lítið sumarhús. Það er hérna út um alla kaupmannahöfn svona lítil sumarhúsarhverfi. Vinir okkar hafa aðgang að einu slíku og við nutum dagsins þar lásum, busluðum í vatni og enduðum svo daginn á að grilla.
Hápunktur vikunnar var þegar Guðmundur Elí sonur Magnúsar og Jóhönnu kom í heiminn, við erum búin að bíða spennt eftir komu hans og urðum sko ekki fyrir vonbrigðum með eintakið sem kom út. Guðmundur Elí er svo sannarlega ótrúlega fallegur og fullkomin í alla staði. Pabbi hans er búinn að vera duglegur að setja inn myndir á heimasíðuna þeirra og við höfum staðið okkur að því að skoða sömu myndirnar aftur og aftur og aftur og aftur. Okkur langar alveg ótrúlega að knúsa og kyssa litlu fjölskylduna en það verður að bíða. Þegar við sögðum Einari fréttirnar að Magnús og Jóhanna væru búin að eignast lítinn strák þá sagði Einar…” Já, meigum við fá hann?” eins og ekkert væri sjálfsagðara. En það er aðeins að myndast pressa á lítinn bróðir, hann vill sko ekki systur af því að stelpur eru leiðinlegar og kalla Hann Einar beinar kommí steinar…..
Við erum búin að redda fari fyrir Haukinn okkar út þann 15. júlí og núna leitum við að einhverjum sem er á ferðinni til íslands þann 14. ágúst:)
Ætlum núna að skella okkur á ströndina og leika okkur í sjónum og sandinum það eru komnar myndir af þessu öllu inn á barnalandi þannig að þið getið fyllt inn í þessa stuttu bloggfærslu með myndunum af barnalandi:)
Kossar og knús


