-
Þessi kappi kemur eftir 4 daga:)
Posted on May 27th, 2009 No comments
Vorum að tala saman á skype – brostum öll hringinn:)
kv Tinna, Jónatan og Einar
-
Eigum lítinn business mann
Posted on May 24th, 2009 1 commentEinar 4 ára verður líklegast til þess að fjölskyldan verður rík einn daginn. Hann hefur tekið upp á því að heimta pening fyrir minnstu viðvik, hann t.d. rukkar pabba sinn í hvert skipti sem hann ætlar út á svalir. Reyndi í gær að fá pening fyrir að fara af stólnum sem pabbi hans sat í. Peningar og annað sem er skilið eftir á borðum, kommóðum og á öðrum stöðum endar í bauknum hans. Þetta kalla ég lítinn business mann:)
Ég og Einar fórum í hjólatúr í gær, hjóluðum sennilega 7-8 km og hann náttúrulega alveg sjálfur. Fórum tvisvar sinnum yfir lestarteinabrú og það var rosa sport, sáum risastóra snigla sem eiga heima í kuðungi og svo enduðum við í íkornagarðinum okkar. Þá var Einar nú orðinn soldið þreyttur og heimtaði að setjast í barnastólinn, það náttúrulega gekk ekki þannig að mamman varð að ýta á bakið á honum síðasta spölinn til að við kæmumst heim. Tók svo eftir því í gær þegar við ætluðum að taka annan hjólatúr að það er sprungið á hjólinu mínu, það er stór feitur bömmer og ég vonast til að koma því í gang sem fyrst. Hjóla meira en 50 km á hverri viku og get ekki hugsað mér lífið án hjólsins.
Sunna frænka útskrifaðist í gær sem stúdent, tók sér þrjú ár í þetta og fékk meira að segja dönskuverðlaun við útskriftina. Við erum mjög monntin af henni, fengum að vera aðeins með í veislunni í gær í gegnum Skype. Ég byrjaði náttúrulega á því að væla soldið þar sem mig langaði svo að vera eð elsku fólkinu mínu en ég er svo viðkvæm það er ekkert að marka mig og grát… he he. Þetta eru elsku sætu frænkur mínar Ellen og Sunna, ótrúlegt að þær séu orðnar stórar stelpur:)

Hérna er Sunnan svo á flippinu, orðin stór stelpa sem fer til Kanada í útskriftarferð

Nákvæmlega vika í elsku Haukinn okkar, getum ekki beðið eftir að fá að knúsa hann. Hann er búinn að vera í menningarferð í Reykjavík um helgina. Hlakka til að spjalla við hann í kvöld heyra hvað hann brallaði:)
Kossar og knús frá okkur til ykkar
-
Einar hjólaði einn á leikskólann í morgun
Posted on May 20th, 2009 2 commentsHalló
Búið að vera fínt veður í vikunni, íþróttameiðslin hans Jónatans að jafna sig og komið að fjögra daga helgi:)
Ég tók mig til í morgun og spurði Einar hvort hann vildi ekki bara hjóla sjálfur á leikskólann og uppskar svarið ” það er frábær hugmynd hjá þér mamma”. Það gekk ótrúlega vel hjá okkur að komast á leikskólann og hann var mjög stolltur að hafa afrekað þetta (og við foreldrarnir auðvitað líka) þurfum að fara yfir götur og alles á leiðinni.
Haukur átti frábæra helgi hjá ömmu og afa í Víkinni og Skipagötunni, pulsa og kók á Toyotadögum, pottaferð í Skipagötunni, fótbolti, sund, Eurovision, súkkulaðikaka og fleira er eitthvað sem var nefnt þegar ég spjallaði við hann á mánudaginn. Hef ekki heyrt hann svona glaðan og upphrifinn lengi. Hann kíkti líka á litla sæta Hermann og Sif gaf mér leyfi til að skella inn mynd af þeim saman. Núna eru bara 11 dagar í að hann komi til okkar:)

-
Einar gullmoli…. og júrópartý
Posted on May 16th, 2009 2 commentsEinar kemur oft með gullmola, hann og pabbi hans voru að tala saman í gær og pabbi segir.
“Einar svo leyfum við mömmu að sofa út á morgun og leikum okkur í tölvuleik”
Einar svarar í vælandi tón
“Afhverju á mamma að sofa úti……”
Var ekki alveg að skilja þetta dásamlega plan hjá pabba sínum:)
Annars er stefnan tekin á Júróvisjón í kvöld, við erum sannir íslendingar í danaveldinu, hér verður lambalæri á boðstólnum. Ég og Einar hjóluðum svo niðrí bæ í rigningunni áðan og fjárfestum í íslenska og danska fánanum í Tiger á Kolatorginu, við verðum jú að halda með danmörku númer 2.
Haukur er í Bolungarvíkinni fögru um helgina og ef ég þekki fólkið okkar rétt þá er hann í himnaríki og eflaust dekrað við hann hægri vinstri. Núna eru bara 15 dagar þangað til hann kemur til okkar og við erum orðin virkilega spennt að fá að knúsa hann.
Annars er allt gott að frétta af okkur, söknum soldið Magnúsar og Jóhönnu. Heyrðum í þeim í gær og langar soldið að knúsa þau, núna er rétt 1 og 1/2 mánuður í bumbubúann þeirra sem við getum ekki beðið eftir að fá að líta augum:)
Við söknum restarinnar náttúrulega líka…. eða hugsum allavegana til ykkar.
Kossar og knús frá okkur til ykkar
-
Íþróttameiðsl…..
Posted on May 13th, 2009 2 commentsJónatan hefur tekið að meðaltali 14 holur á dag á golfvellinum síðustu tvær vikur, það hefur haft í för með sér fyrstu íþróttameiðslin á ævinni að ég tel:S Drengurinn er að sálast frá rifbeinum aftur í bak, ég er búin að sjúkdómsgreina hann með millirifjagikt og mæli með fríi frá golfinu og samveru með fjölskyldunni.
ætli að aldurinn hafi eitthvað um þetta að segja…… eða æfingaleysi undanfarinna ára, ómögulegt að segja:)

kveðja Tinna og Einar
-
Afmæliskveðja frá Hauki til mömmu – bætt útgáfa
Posted on May 10th, 2009 No commentsÞú mamma góða
átt afmæli í dag
ég hef engu að sóa
nema að yrkja ljóð um það
þú í danmörku er flutt
ég kem í heimsókn
heimsóknin er frekar stutt
og er eins og ein nótt
en ekki líður á löngu þar til ég aftur kem til þín
til kaupmannahafnar og því þetta ljóð ég sem
vegna þessarar athafnar.
Haukur Sindri:)
-
Hilsen Pilsen
Posted on May 8th, 2009 1 commentHæ hæ,
Sit með litla sætasta í sófanum og ákvað að blogga. Hann kúrir sig upp við öxlina á mér horfir á danskt barnaefni og reglulega tekur hann í höfuðið á mér snýr því að sér og kyssir mig og segir du er min alle bedste ven:)
Byrjuðum helgina í gær þar sem það er frídagur í dag, ég og Einar áttum æðislegt kósýkvöld á meðan heimilisfaðirinn fór í golf og kíkti svo aðeins út á lífið með nýju golfvinum sínum. Golfararinn kom samt snemma heim þar sem það á að prufa að spila í Roskilde í dag, hann s.s. var farinn af stað fyrir klukkan níu í morgun.
En ég og Einar kúrðum saman yfir sjónvarpi og tölvu, ég með einn kaldann og hann með kókómjólk. Hann angaði eins og brennuvargur þar sem það hafði verið bál á leikskólanum, andlitið drulluskítugt og sandur í hárinu. Samt tímdi ég ekki að þrífa hann og skemma kúrið okkar þar sem lyktin er svo góð og tilhugsunin um daginn sem hann átti eitthvað svo lifandi þegar hann er með leifar af deginum á sér. Ákvað svo að við myndum fara snemma að sofa og að hann ætti að fá að kúra hjá mér þar sem pabbinn var úti á lífinu. Fórum upp í rúm með sitthvora fartölvuna, hann fékk að spila leikjanet og ég horfði á konuþátt. Sofnuðum svo saman og vöknuðum ekki fyrr en golfarinn fór á fætur og fór í sturtu.
Einar spurði “er pabbi að þrifa sig eftir golfið”
mamma svaraði “nei, pabbi var út á lífinu”
Einar spurði “var hann að slást”
mamma svaraði “nei nei, hann var að skemmta sér”
einar spurði ” já var hann í svona drullumold”
mamma ætlaði að svara en vissi ekki alveg hvað hún átti að segja
Á miðvikudaginn fengum við heimsókn, Símon vinur Einars kom með honum heim eftir leikskóla og þeir léku sér saman. Eins og góðir gestgjafar þá pössuðum við okkur á að tala bara dönsku saman þannig að Símoni myndi líða vel hjá okkur og það gekk allt rosalega vel. Einar og Símon fóru inn í herbergi og léku sér í LEGO og PLAYMO og það er ekki að heyra að það séu einhver samskiptavandamál í gangi. Ég eldaði svo lasagna og við borðuðum saman og svo léku þeir aðeins meir áður en pabbi Símons kom og sótti hann.
Það er eins og það sé einhver málflóðgátt að opna hjá Einari, hann slettir dönskunni hérna heima í öðruhverju orði. Það er aldrei “viltu hjálpa mér” það er altaf “skal du hjælpe mig”. Við vorum að baka nanbrauð í vikunni til að hafa með kjúkllingarétti og þá átti ég í mesta basli með að fatta hvað barnið var að segja. Kökukefli og deig eru orð sem er búið að skipta út með dönskum orðum, jarðaber, vínber, mjólk og vatn heyrist ekki lengur. Bara, jordber, druer, melk og vand og það er ekki að spurja að honum allt með fullkomnum hreim. Þegar mamman og pabbinn asnast til að endurtaka eitthvað og tala með sínum harða hreim þá er litli maðurinn fljótur að leiðrétta okkur. Hann er líka orðinn ófeimnari þegar við erum að skutla og sækja á leikskólann. Farinn að kveðja alla með nafni þegar við hjólum út götuna, hej hej Mia, hej hej Anton……
Við teljum núna dagana í Hauksann okkar það eru rétt um 20 dagar þangað til hann kemur til okkar en hann kemur 31. maí. Jónatan er búinn að taka frí og ætlar að vera með kappanum, ætlum að plata afann í Boló að leifa Hauki að taka nokkrar barnakylfur með sér úr Víkinni þegar hann fer í heimsókn á næstu helgi svo þeir feðgar geti leikið sér á golfvellinum.
Eftir sólríkan aprílmánuð þá er búið að rigna og blása það sem af er maí, spáin er nú eitthvað að segja okkur að það fari að draga úr þessu “óveðri” þannig að við getum farið að njóta lífsins í sandölum og ermalausum bol aftur:) Ég hef lítið komist út að hlaupa undanfarið þar sem Jónatan er heltekinn af golfi, gæti farið út að hlaupa með Einar á hjólinu en á meðan það blæs svona og rignir þá hefur litli kappinn minn ekki þrek í það. Þannig að við bíðum spennt eftir hvernig veðrið verður næstu daga.
Litli prins Sifjar fékk nafnið Hermann Alexander, Hermann í höfuðið á föðurafa sínum og við samþykkjum það alveg:) Fallegt nafn á fallegum prinsi. Okkur er farið að hlakka til að næsti fjölskyldumeðlimur komi í heiminn en það styttist í Grísling hjá Magnúsi og Jóhönnu:)
Jæja kossar og knús
Kossar og knús
-
bloggedí blogg
Posted on May 3rd, 2009 3 comments
Best að kasta inn nokkrum línum á veraldarvefinn á þessum fallegu vordögum, það er ljóst að við erum búin að leggja vetrarúlpunum, hlýju skónum, húfum og vetlingum – sumarið er komið.
Höfum átt frábæra sumardaga í apríl, við höfum notað þá nokkuð vel. Hjólaferðir, lautarferðir, garðaferðir, hlaup og almenn ánægja er eitthvað sem hefur verið hátt skrifað hjá okkur.
Ég er búin að taka fram hlaupaskóna og hleyp núna c.a annan hvern dag og er búin að fara mína fyrstu 10 km. Ég hef aldrei stundað það að hlaupa áður og því er þetta soldið nýtt fyrir mér þrátt fyrir að hafa æft íþróttir alla ævi. Reglulegi hringurinn minn er 7,3 km hringur og svo reyni ég að taka langan túr einusinni í viku.
Einn laugardaginn ákvað ég að taka Einar með mér í 7,3 km þar sem Jónatan fékk að sofa út. Barnið á jú fínt hjól og þarf að æfa sig, ég fattaði að litli fjögra ára var kannski ekki alveg að fara að meika það að hlaupa á fullu blasti 7 km leið. Gullmolarnir gjörsamlega duttu út úr honum allan tímann, hann var alltaf að reyna að finna afsökun fyrir því að við ættum að hvíla okkur eða bara drífa okkur heim. Þetta gekk nú allt hjá okkur Einari með smá pásu þar sem Einar henti steinum í ána og ég gerði æfingar.
Jónatan er genginn í golfklúbb (Albertslund Golklubb) og er búinn að vera nokkuð duglegur að golfast, núna vantar honum bara golfsettið sitt þannig að þetta verði að alvöru:) Hann er nú samt búinn að fá lánað golfsett þangað til að hann fær sitt sent að heiman og ætlar að taka þátt í sínu fyrsta golfmóti á eftir.
Núna erum við búin að búa hérna í 3 mánuði og það er nokkuð merkilegt að það sem við bjuggumst við að yrði mesta baslið eða gæti orðið erfiðast hefur gengið eins og í sögu og eiginlega allt hefur gengið eins og í sögu.
Fyrst ber náttúrulega að nefna litla snillinginn okkar sem er að blómstra í leikskólanum, við bjuggum okkur undir eitthvað drama þar en það hefur gengið ótrúlega vel. Hann er búinn að fara í heimsókn til vinar síns eftir leikskóla, hann fær þá umsögn að hann sé vinmargur og vinsæll og þær þurfi að sussa á hann til að komast að. Við tökum eftir því í samræðum við hann að hann er farinn að sletta inn dönskunni og svo stundum kann hann ekki orðin á íslensku og mamma og pabbi ekki heldur og þá þarf hann að útskýra hvað hann er að segja, það er ekkert smá sætt.
Heimsóknir Hauks, enn sem komið er höfum við fengið ömmurnar og afana til að fylgja Hauknum fram og til baka þannig að það hefur gengið ótrúlega vel. Haukur er orðinn ótrúlega sjóaður í að ferðast og hjálpaði ömmu mæju í gegnum flugstöðina þegar hann kom síðast. Haukur er líka ótrúlega ákveðinn, hann á hjól hérna og þegar hann kom síðast var farið af stað í hjólatúr. Haukur hjólaði náttúrulega bara eins og innfæddur, ekki til hræðsla eða hik þrátt fyrir að maður hjóli algjörlega í traffík. Haukur kemur til okkar fyrstu 10 dagana í júní, við getum ekki beðið eftir að hann komi.
Ef það er eitthvað sem hefur verið erfitt þá er það að vakna og þurfa að fara í vinnuna þegar góða veðrið er en ekki í næsta garð, en það er nú eitthvað sem við þurfum að venja okkur við…. he he
Við söknum náttúrulega alltaf allra, Hauksins náttúrulega mest. En við erum dugleg að tala saman í gegnum skype og það færir okkur nær hvort öðru. Svo er náttúrulega almennur saknaður til mömmu, pabba, ömmu, afa og allur sá pakki. En ef það er einhver sem við værum til í að knúsa þá er það elsku sif og fjölskylda en þau voru að eignast ”lítinn gaur” (hann fæddist 19 merkur) okkur langar svo að knúsa hann og kyssa live. Litli kúturinn fær nafn í dag, við getum ekki beðið eftir að fá að heyra það.
við vorum að setja inn myndir á barnaland, bættum inn í apríl.
kossar og knús frá okkur til ykkar:)








