blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Ammli

    Posted on April 19th, 2009 tinna 6 comments

    Hæ hæ,

    Við erum nú búin að vera frekar slöpp að blogga undanfarið, ástæðan! VEÐRIÐ það er búið að vera dásamlegt veður núna síðan löngu fyrir páska og því engin ástæða að leggjast í skriftir þegar maður getur sleikt sólina, en hérna kemur smá örfærsla.

    Jónatan á afmæli í dag big 34 strákurinn og við höfum haft það fínt, ég skellti í 3 kökur fyrir kallinn og við buðum nokkrum vinum heim í gær í kaffi og kökur. Þetta var svona svala afmælispartý, sátum út á svölum allan daginn, Einar meira að segja baðaði sig út á svölum áður en veislan byrjaði.

    Í dag eiga líka bræður okkar afmæli, já þið heyrið rétt! Bræður OKKAR eiga afmæli:) Jökull bróðir Tinnu er 24 ára í dag og Magnús 28 ára í dag. Skemmtileg tilviljun og við fögnum 19. apríl alltaf nokkuð vel á okkar heimili:)

    Ég skellti inn myndum á barnaland það er komið janúar, febrúar, mars og apríl albúm. Vona að þið njótið myndanna og skiljið eftir ykkur spor í gestabókinni.

    Afmæliskossar og knús frá okkur í Köben,

    Jónatan þakkar allar kveðjurnar í dag sem telja á nokkra tugi:)

  • Lítið punktablogg

    Posted on April 2nd, 2009 tinna 2 comments

    Hápunktar vikunnar

    • Jónatan er að fá megaflottann rass af öllum hjólaferðunum:)
    • Einar fór heim með  Simoni vini sínum eftir leikskóla og fékk að borða og all, það gekk mjög vel:)
    • Við fengum loksins þráðlaust samband hérna heima:)
    • Græddum heilar 7.000 íslenskar kr í barnabætur, það telur sko allt á krepputímum:)
    • Tinna tók sig til og framkvæmdi Extreme Makover á sjálfri sér hérna eitt kvöldið (hárlitun, plokk og litur á augu)
    • Jónatan gerði heimsins bestu Barbeque sósu
    • Gerðum grænmetissúpu án uppskriftar frá grunni og það lukkaðist svona ljómandi
    • Grænmetisgarðurinn sem deildin hans Einars græjaði á leikskólanum, melónur, paprikur, tómatar og fl. var sett niður í vikunni

    Ekki hápunktar vikunnar

    • Ég uppgvötaði það að ég verð bara í 50% starfi í apríl þar sem samningarnir hjá Íslensku og Dönsku skrifstofunni gengu ekki saman
    • Ég klippti topp á mig eftir nokkur rauðvínsglös…. það á maður ekki að gera……
    • Hreyfingin hefur verið alveg í lágmarki
    • Ég át næstum alla Barbeque sósuna sem Jónatan gerði
    • Batman plásturinn sem Einar vildi endilega setja yfir litla skurðinn á enninu, plásturinn er stærri en ennið á honum og er með stóru batman merki. Hef aldrei séð barninu líða svona TÖFF, hann var mjög ánægður.

    Orð vikunnar

    • Ég er bara að tala svona fullorðinsmál, Einar Jónatansson þegar hann segir orð sem mamma og pabbi nota oft
    • Ég er eiginlega bara Jói Fel, Einar Jónatansson að hjálpa pabba sínum að elda
    • Ég er nefninlega stóri bróðir hans Alberts… og Haukur líka….svo á innsoginu Já þannig er nú það bara
    • Pabbi við verðum að bíða eftir að tómatarnir verði sjúkir…. HA! …. já tilbúnir til að fara inn í ofn …..NEI SJÚKUR ER AÐ VERA VEIKUR…. já þá verðum við að fara til matarlæknisins….

    Heimsins best vikunnar

    • Heimsókn Hauks og Ömmu á morgun

    Knús og kossar þangað til næst

    Tinna, Jónatan og Einar (sem föndraði Indíána páskakjúkling…. ekki unga:))