-
Vikan í video… uppfært
Posted on March 29th, 2009 4 commentsGet the Flash Player to see this player.
Get the Flash Player to see this player.
Get the Flash Player to see this player.
Get the Flash Player to see this player.
-
….það er komin helgi aftur….
Posted on March 27th, 2009 3 comments
Hæ hæ,
Tíminn virðist líða hraðar hérna úti heldur en heima sem er ágætt þegar maður bíður eftir að fá stóra barnið í reglulegu heimsóknina sína, en Haukur kemur með ömmu sinni á næsta föstudag. Við erum nú að bíða eftir soldið miklu þessa dagana, Sif Huld fer að koma með litla frænda/frænku í heiminn á næstu dögum og við erum alveg óendanlega spennt yfir því og svo bíðum við auðvitað eftir alvöru vori/sumri… þá viljum við nú að tíminn hægi á sér:) Við pössum okkur samt á því að njóta hverrar viku og stöndum okkur svo sem ekki að því að sitja og bíða eftir næsta atburði.
Við höfum undanfarna viku haft hjól í láni þannig að við getum öll hjólað saman og höfum held ég hjólað hátt í 100 km á síðustu viku saman, Einar hefur verið dúðaður og pakkaður inn í teppi og svo er bara tekið á rás og hjólað og hjólað. Það er alveg ótrúlegt hvað maður nær að fara yfir mikið svæði á stuttum tíma á hjólinu og svo er þetta svo góð hreyfing.
Einar hefur tekið merkjanlegum framförum þessa vikuna, hleypur núna bara inn á leikskólann og byrjar að leika sér við krakkana. Bíður spenntur eftir næsta degi og segir okkur hvað hann var að gera og hvað er framundan. Þessi vika er búin að vera svolítið óhefðbundin hjá Einari, á mánudaginn fór öll deildin hans í afmæli hjá einum stráknum og þar voru grillaðir hamborgarar og fínerí. Á þriðjudaginn átti að grilla alvöru kúrekamat út á báli en því miður náði Einar að gata á sér hausinn áður en það kom að því. Var einmitt að tuða allan þriðjudaginn að hann hefði misst af kúrekamatnum, hann vældi ekki yfir gatinu heldur kúrekamatnum sem hann fékk ekki. Í gær fóru börnin í rosa göngutúr um skóginn og að vatninu. Á hverjum degi eru leikskólakennararnir búnir að prenta út myndir frá deginum og skrifa á stóra töflu hvað þau voru að gera þann daginn. Í gær voru ævintýramyndir úr skóginum og sagt frá deginum, þetta hlýtur bara að hafa verið skemmtilegt m.v. myndirnar, textann og frásögn Einars. Eftir leikskóla í gær var Einari svo boðið að koma í heimsókn til eins félagans einhvetíman í næstu viku, við þáðum það að sjálfsögðu og bíðum bara spennt eftir nánari dagsetningu.
Á síðustu helgi hittum við íslensku vinnufélaga mína og fjölskyldur í brunch heima hjá okkur, þetta var líka leikstefnumót fyrir Einar og Sindra sem eru á sama aldri og þeir smullu rosalega vel saman. Brunchinn var náttúrulega allt of veglegur, við slógum saman og allir komu með alltof mikið, held t.d. að það hafi verið einn ostur á mann, hálf skúffukaka á mann, 400 ml af jógúrti á mann og já allt í þeim dúr. Eftir brunchinn skelltum við okkur öll saman í góðan göngutúr um Valbygarðinn. Það voru allir saddir langt fram á kvöld eftir brunchinn, þannig að við verðum bara að segja að þetta hafi lukkast vel hjá okkur. Við ætlum pottþétt að gera eitthvað í þessum dúr aftur:)
Núna erum við farin að horfa til júní og júlíheimsóknar Hauksans. Haukur vill ekki fljúga einn þannig ef einhver er á ferðinni í byrjun júní og svo í kringum 15. júlí þá viljum við endilega fá að heyra af því.
Bless í bili og ég vona að þið njótið myndanna af flotta símanum hans Jónatans
-
Einar fékk gat á hausinn í dag
Posted on March 24th, 2009 2 comments
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá fékk Einar gat á hausinn í dag. Einar ákvað að hjóla niður brekku á tvíhjóli án hjálpadekkja og það endaði með gati og spítalaferð á Hillerød spítalann þar sem gatið hans var límt saman.Þess ber að geta að Einar kann ekki að hjóla á tvíhjóli þannig að ég skil ekki hvernig honum datt þetta í hug.
-
Video Prufa
Posted on March 23rd, 2009 2 commentsGet the Flash Player to see this player.
-
Hann talar svo mikið að við þurfum að sussa á hann
Posted on March 20th, 2009 2 commentsÞetta fengum við að heyra í vikunni, að það gengi virkilega vel með Einar, hann væri mikill þátttakandi í leik og talaði yfirleitt svo mikið að það þyrfti að sussa á hann. Krakkarnir hænast mjög að honum sérstklega einn sem vill alltaf sitja hjá honum og hjálpa honum og tala við hann.
Þegar veðrið er svona fallegt og gott eins og það er búið að vera þessa viku þá upplifa börnin ótrúlega spennandi ævintýri á hverjum degi á leikskólanum.
Í vikunni grilluðu þau brauð á spítu inn í Indíánatjaldi á varðeldi. Þetta þótti Einari ótrúlega spennandi og sagði okkur frá með miklum ákafa. Sagði að brauðið hafði verið mjög gott og þau hefðu líka verið með einhverjar matjurtir og e-h, en ég fattaði það ekki alveg. Þau hafa farið í helling af göngutúrum og fræðast alltaf eitthvað í leiðinni, í gær voru þau að fræðast um hvað flýtur og hvað sekkur. Þau gerðu það með því að ganga niður að vatninu og henda mismunandi hlutum í vatnið og sjá hvað gerist hjá hverjum og einum hlut.
Á mánudaginn á eitt barnið á leikskólanum afmæli og þá er þeim öllum boðið heim þar sem þau fá hamborgara og verða þar lungan úr deginum. Við vitum ekkert hvernig þetta virkar, hvort við eigum að senda hann með pakka eða hvað, en það kemur nú í ljós.
Einar sagði við pabba sinn um daginn frekar þungt hugsi að það væri ein stelpa á leikskólanum sem væri vond. Og pabba hans leist nú ekki alveg á að heyra þetta og vildi vita meira, spurði svo afhverju hún væri vond. Þá kom upp úr Einari, hún er alltaf að knúsa mig og kyssa og ég segi alveg nei nei nei en hún bara hættir ekki og kyssir mig og kyssir og svo lék hann þetta með þvílíku látbragði. Pabbi hans gat nú ekki alveg tekið undir að stelpan væri vond. Og beindi talinu í aðrar áttir þar sem þetta var ótrúlega fyndið.
Á síðustu helgi var ótrúlega fallegt veður og við löbbuðum út um allt á laugardag og sunnudag, við kíktum m.a. í Valby garðinn (http://www.kk.dk/Borger/ByOgTrafik/GroenneOmraader/byensparker/valbyparken/faktahistorie.aspx ) og leifðum Einari að leika á leikskvæðinu sem er þar og gengum svo um þá fjölmörgu þemagarða sem eru þar. Garðurinn er algjört æði og við erum sko búin að plana lautarferðirnar þangað í sumar:)
Fyrir ykkur sem viljið fræðast um okkar nánasta umhverfi þá er þetta síða sem við kíkjum reglulega á http://www.valbyonline.dk/
En lífið er annars bara gott hjá okkur, undanfarna daga hefur veðrið verð betra og betra með hverjum deginum sem líður. Í dag er logn, heiðskýr himinn og sól, get alveg ímyndað mér að Einar eigi eftir að bralla eitthvað geggjað upp í sveit. Veit að ég á eftir að skella mér í fótbolta með vinnufélögnum í hádeginu til að „leika“ mér aðeins úti í góða veðrinu.
Það er eitt búið að vera svoldið fyndið með þessa flutninga, en það er skráning okkar fjölskyldunar á íslandi. Eins og þið vitið flest þá fórum ég og einar í byrjun desember og skráðum okkur inn í landið til að koma Einari á leikskólabiðlista. Jónatan skráði sig svo þann 12. Janúar þegar hann kom. Hjá þjóðskrá var ég skráð út úr landinu með Einar 1. ágúst 2008 og Jónatan var ennþá skráður á íslandi. Við þessa skráningu höfðu þau tekið okkur úr sambúð, þannig að við vorum um tíma skilin á pappírunum. Við erum nú búin að láta leiðrétta þetta allt en þetta er alveg magnað. Í fyrsta lagi að ég hafi fengið að flytja með barnið án þess að maðurinn minn sem ég bý með, faðir drengsins sé spurður að nokkru. Og svo að við afskráumst bara sem par í kerfinu.
Haukur fer í heimsókn til ömmu Mæju í dag, ætlar að vera um helgina í Reykjavíkinni. Kristinn Gauti ætlar að taka hann með sér í vinnuna á morgun, en Kristinn er einmitt að vinna í Þjóðleikshúsinu á Kardimömmubænum. Frekar spennandi dagur framundan hjá Hauksa.
Annars líður tíminn einhvernvegin alveg ótrúlega hratt, okkur finnst alltaf vera helgi. Jónatan er gjörsamlega búin að vera á kafi í vinnu, er mættur um 6:30 á morgnana og sækir svo Einar 15:45 og vinnur þá heima til að verða 18:00. Það verður nú að segjast að sambýliskona hans er orðin frekar þreytt á þessu álagi á kallinn en það er vonandi að þetta fari að jafnast eitthvað út og hann geti farið að vinna eðililega vinnudaga. En hann er allavegana voðalega ánægður og það er fyrir öllu.
Ég sjálf er búin að vera að vinna í skemmtilegum gæðaverkefnum þessa vikuna og finn að áhuginn minn er soldið þar. Verklagsreglur og vinnuferlar er alveg eitthvað sem mér finnst skemmtilegt að setja niður á blað og sjá verða að veruleika í practík.
Núna teljum við dagana í Hauksann og Ömmuna en þau koma eftir nákvæmlega 14 daga.
Knús og kossar frá okkur í Köben
-
…..Vorið komið eeeer, og þá vaxa laufin á trjánum…
Posted on March 12th, 2009 3 commentsHæ hæ
Lífið gengur sinn vanagang hjá okkur á Ib Schønbergs Allé 6. Við vöknum á hverjum morgni klukkan 06:00 og höfum okkur til fyrir daginn, á kvöldin áður en við förum að sofa þá erum við búin að hafa til föt og morgunverðarskálarnar fyrir næsta dag (það sparar sko tíma á morgnana).
Við höfum verið að prófa okkur áfram í matarpakkamálum, þetta er nú alltaf það sama í grunninn en núna erum við farin að skera brauðið í 4 bita í staðin fyrir í hálft þannig að hann fær meiri fjölbreytni í áleggsvali á hverjum degi. Hann fær alltaf eitt grænmeti (paprika, gulrót, agúrka) og svo fær hann 1-2 ávexti (vínber, epli, peru, jarðaber) Það er mjög vinsælt hérna að hafa svona ostastangir í matarpakkanum og svo kjötbollur. Kjötbollur eru algjörlega hans uppáhald og er svo komið nú að við þurfum að neita honum um að borða kjötbollur á hverjum degi, hann s.s. biður um þær í kvöldmat og nestiJ
Það sem er helst að frétta er að við fjárfestum í barnastóli á hjólið okkar. Ég og Einar vígðum hann á þriðjudaginn með risa hjólatúr um hverfið. Við gleymdum okkur algjörlega það var svo gaman og spennandi að hjóla að við enduðum á að hjóla um 11 km. Við rétt náðum að borða áður en við lognuðumst útaf um átta, alveg búin á því.
Á þriðjudaginn fór Einar í National Musseum for Kunst, það var ákveðið dansþema og mikil dagskrá, við spurðum Einar hvað hann hefði gert um daginn og hvort þetta hefði ekki verið skemmtilegt. Þá svaraði hann ánægður ég fór í þrjár lestar og tvo strætó, við reyndum að draga meira upp úr honum en það gekk ekki, hann talaði bara um lestina og strætó. Daginn eftir sagði Meud okkur frá þessari dagskrá og þá var það þannig að þau dönsuðu helling bæði með og án leiðbeininga og svo voru þau að mála í hliðarsal og leika og fleira. En okkar maður mundi bara að hann hefði farið í lestJ
Við spurðum Meud líka um hvernig hann væri að aðlagast, við finnum nefninlega heima að hann er glaður eftir daginn og kemur með nýtt orð á hverjum degi. Núna segir hann t.d. bara nei á dönsku og telur bara á dönsku. Meud sagði að hann tæki mikinn þátt í öllu, er duglegur að tjá sig og er farinn að tala við hina krakkana eins og hann getur. Við erum rosalega monntin af honum, enda er ekkert smá álag á lítinn strák að vera allt í einu skellt á danskan leikskóla 8 tíma á dag þar sem hann skilur ekki neitt. En hann er sko alveg að brillera, kveður okkur bara brosandi á morgnanna og hverfur í einhvern leik.
Fyrir ofan okkur býr svo fjögra ára strákur, hann á danskan pabba og enska mömmu og við erum að plana að koma þeim saman, fínt að eiga félaga á stigaganginum.
Einar hefur átt nokkur gullkorn undanfarna daga….
· Mamma viltu hjálpa mér að sofa lengur – frekar þreyttur einn morguninn og vildi plata mömmu sína í kúr
· Mamma ég er búinn – öskrað fram einn morguninn þegar hann heyrði umgang í foreldrunum, mamman spurði „ búinn að hverju?“ Nú að sofa!
· Mamma nefið mitt er bilað – Einar kom inn til okkar eina nóttina og mamma sagði „andaðu þá bara með munninum“ Einar skreið upp í rúm og sofnaði, þegar mamman vaknaði við vekjaraklukkuna þá sá hún að nefið hafði sko verið bilað. Barnið var allt í blóði, þá hafði vísifingur eitthvað villst um nóttina og valdið ógurlegum blóðnösum, Einar og rúmið hans þurfti þvott.
· Ég er bara alveg í ruglinu – þegar Einar er að sprella og við erum ekki alveg að skilja hann
· Einar hvað viltu margar kjötbollur – en, to, tre fire, fem …. otte! Ég vil átta kjötbollur – pabbi hans einars að gefa honum að borða
· Farð þú bara út að hlaupa… – mamman var að tuða í pabbanum um daginn þá sagði litli maðurinn þetta
· Ég er alveg uppgefinn eftir þennan hjólatúr (tveim dögum síðar)
Vorið heldur bara áfram að koma, mamman hefur aðeins fundið fyrir því á fötunum sínum að hún er ekki að æfa 5 sinnum í viku og keppa með Valsstelpunum því til viðbótar þannig að hún hefur remst við að hreyfa sig eitthvað daglega. Það er ótrúlega skemmtilegt umhverfið hérna í kring, ég og Einar tókum ógurlegan hjólatúr um daginn þar sem við skoðuðum Hvidovre og það umhverfi. Svo í gær þá hjólaði ég í Valby garðinn og hljóp þar um. Það er ótrúlega skemmtilegt að fá smá útrás í svona umhverfi sem er hérna í kringum okkur og eykur ánægjuna á líkamsræktinni. Erum sko alveg búin að plana lautarferðirnar í Valby garðinum í sumarJ
Við höfum ekkert verið að flagga því en Jónatan var rændur um daginn, tapaði veskinu sínu með verðmætum í og símanum því til viðbótar. Við lokuðum öllu klappinu, kortum, síma og tilkynntum þjófnað til TDC (símafyrirtækið) og Lögreglunar. Vinnuveitandi minn sagði að það kæmi stundum fyrir að þeir sem lentu í þessu fengju veskið sitt til baka í pósti, þá henda þjófarnir þessu bara þegar þeir eru búnir að hreinsa allt sem þeir telja sig geta notað. Það er nákvæmlega það sem gerðist hjá okkur. Í fyrradag kom veskið heim, með ökuskírteininu og sjúkrakortinu (CPR) hans, okkur þótti þetta mjög merkilegt. En það sem var merkilegra er að sama dag fengum við tilkynningu frá TDC að þeir hefðu opnað símanúmerið hans aftur, s.s. númerinu sem hann hafði lokað. Þá hafði þjófurinn náð að hringja og opna símanúmerið, alveg fáránlegt dæmi.
Póllands ferðinni hans Jónatans hefur verið frestað í bili þannig að við fáum að hafa hann heima þessa vikuna.
Núna eru bara 22 dagar í Hauk og ömmu og okkur er farið að hlakka tilJ
Knús og kossar í bili
Tinna og Co
-
Vorið, vorið komið er klapp klapp klapp
Posted on March 10th, 2009 3 commentsHæ hæ
Við höldum bara að vorðið sé komið hérna hjá okkur, það er búið að vera einstakelga milt og fallegt veður undanfarið og nokkuð notalegt að labba á milli staða.
Einari gengur afskaplega vel á leikskólanum, hefur ekki grátið síðan á miðvikudaginn í síðustu viku, núna segir hann bara bless og sjáumst. Það er alltaf bullandi dagsrká í gangi hjá honum á hverjum degi, á föstudaginn fóru þau í gönguferð um skóginn og veltu við steinum og trjám til þess að sjá lífið vakna undir þeim. Þetta þótti honum mjög merkilegt og sagði að hann hefði sko séð alveg ótrúlegar pöddur.
Í gær vorum við að spurja hann um leikskólann og samtalið var c.a. svona:
Ø Einar varstu að leika við einhvern í dag?
Ø Já ég lék við besta vin minn (við urðum rosa spennt og glöð að það væri besti vinur)
Ø Já ok, hvað heitir hann
Ø Það er hann Tígri minn en hann var ekki með mér í dag
Þetta var soldið svona grátbroslegt, Tígri er s.s. bangsinn hans, hann tekur Tígra vanalega með á leikskólann en þennan dag hafði hann tekið hvíta ísbjörninn sinn og þ.a.l. var Tígri ekki á staðnum, það lítur út fyrir að barnið sé alveg í eigin heimi með Tígra sínum, hvort sem hann er á staðnum eða ekki. Við ætlum nú aðeins að spurjast fyrir um hvernig hann er að tenjast hinum börnunum eða sé bara einn að leika við bangsana sína sem jafnvel eru ekki á staðnum.
Um helgina keyptum við rúm fyrir drengina í IKEA (heitir Hemnes) þegar við vorum búin að setja rúmið saman þá kláruðum við að gera barnaherbergið alveg tilbúið og það gæti ekki verið flottara. Það rúmast allt alveg ótrúlega vel og Einar er mjög ánægður með þetta. Við vorum tengd heima um helgina á skype með vefmyndavél og tókum nokkra sýningartúra um íbúðina með sérstaka áherslu á barnaherbergið fyrir vini og vandamennJ
Fyrstu nóttina sem Einar svaf í rúminu setti ég sæng og púða fyrir neðan hann, var eitthvað hrædd um að hann myndi detta úr rúminu. Hann hélst nú alveg alla nóttina, næstu nótt ákváðum við foreldrarnir að þetta væru nú óþarfa áhyggjur og settum ekki neitt fyrir neðan rúmið. Auðvitað vöknuðum við upp við þvílíkan skell, ég hljóp inn í herbergi til Einars og kíkti á hann þá hafði hann dottið úr rúminu en var búinn að skríða upp í það aftur en snéri þá öfugur og var alveg steinsofandi.
Í dag er Einar í vettvangsferð með leikskólanum en þau fara í dag í Statens Musseum for Kunst (http://www.smk.dk/smk.nsf/docs/forside!opendocument ) í morgun var ég að vekja hann og spurði svona í spenntum tón hvort honum hlakkaði ekki til að fara á safnið niðr í bæ í dag. Og hann alveg já með Alberti, ég sagði honum að Albert væri ekki í danmörku núna og það tók aðeins gleðina af því að vakna. En þeir félagar töluðu saman á skypinu í gær og voru eins og ég veit ekki hvað, Einar opnaði það samtal á því að segja „Albert, ég sakna þín“ og svo byrjuðu þeir bara að leika á skjánum. Að sjálfsögðu vildi hann bara taka Albert sinn með á safniðJ
Haukur var að keppa um helgina, að eigin sögn þá gekk honum rosalega vel, glaður með að hafa hæfileikana frá foreldrunum (þá meinar hann körfubotlahæfileikana) Haukur er komin í samband með webcam sem við gáfum honum í jólagjöf og núna getum við spjallað live alla daga. Töluðum saman í einhverjar 30 mínútur í gær, Haukur er svo mikill grínari og hélt okkur alveg í hláturskrampa með því að þykjast vera að labba upp og niður stigann og koma svo upp með lyftunni (s.s. brella á skjánum)
Ég var á mínum fyrsta alvöru fundi í gær, fór og hitti kommúnu/sveitafélag hérna rétt hjá Kaupmannahöfn, ég fór ekki ein, var með Gert með mér. Það var mjög áhugavert að fara og hitta viðskiptavin, það sem mér þótti merkilegast var að þetta eru allt sömu týpurnar og maður hittir heima, það voru 7 manns á fundinum og ég hef hitt allar þessar týpur á fundum heima. Sömu brandararnir, sömu spurningarnar og allt það.
Það lítur út fyrir að Jónatan fari til Póllands á workshop á fimmtudaginn og verði til föstudags, þá verðum ég og Einar home alone í fyrsta skiptið í Kaupmannahöfn. He he við erum búin að hlæja mikið að þessu, síðustu vikurnar á íslandi var allt í síðasta sinn í bili og núna er allt svo nýttJ
En við höldum bara áfram að njóta þess að sjá vorið koma og fylgjast með framförum Einars í dönskunni og samskiptum á leikskólanum. Hann er aðeins búinn að bæta í orðaforðann og telur núna upp að 10 á dönskuJ
Knús og kossar
Tinna og co
-
Prinsinn byrjaður að sletta fram dönskunni
Posted on March 4th, 2009 3 commentsHæ hæ
Leikskólaganga Einars gengur vel, hann grætur í morgunsárið þegar við kveðjum en unir sér vel yfir daginn og er glaður þegar við sækjum hann og segir okkur frá merkilegum dögum.
Á mánudaginn var mikil rigning og þá lék hann sér við það að hlaupa í polla og sulla og þótti það sko ekki leiðinlegt, í gær, þriðjudag var fallegt vorveður og það var kveikt bál og svo var föndrað úr pappamassa.
Kveðjustundirnar á morgnana hafa verið svoldið erfiðar en í morgun prufuðum við að senda pabban með hann til að gá hvort það væri þessi almenna móðursýki í drengnum sem verður til þess að hann gráti þessum sára gráti þegar mamman fer á morgnana. Það breytti engu í morgun Einar hágrét og ríghélt í pabba sinn þegar það kom að því að kveðja þannig að það er greinilega ekki móðursýkin. Við höfum prufað að fara með hann snemma á morgnana þessa þrjá daga sem liðnir eru af vikunni. Við höfum þá farið með honum inn á leikskólann og sest með honum inn og reynt að hjálpa honum að líða betur með krökkunum og í umhverfinu sem hann er í en það hefur ekki verið að ganga hingað til. Hann gleymir sér kannski í leik í smá stund en ef við svo mikið sem hreyfum okkur þá hrekkur hann við og grípur um okkur og segist vera einmanna þegar við förum og biður okkur um að vera hjá sér.
En það sem við huggum okkur við er að þetta er bara 10-15 mínútur yfir daginn sem eru honum erfiðar, við fáum þau skilaboð að hann syngi mikið þegar hann er að dunda sér og hann tekur þátt í öllum leik og endurtekur orðin þegar þau eru að æfa sig og allt í þeim dúr.
Það er nú samt margt sem vellur uppúr honum í þessum nýju aðstæðum, á mánudaginn vorum við að labba í leikskólann og hann byrjar alltaf að vera leiður þegar við nálgumst leikskólann. Svo kom alveg,
EJ„mamma ég nenni ekki á leikskólann ég er svo þreyttur“
TBS„en þú ert búinn að sofa alla nóttina, þú ert ekkert svo þreyttur er það?“
EJ„Jú mamma, ég er sko alveg fimmtán þreyttur“
Í gær vorum við að klára að borða þegar einar skellir fram dönsku „taler du dansk?“ og við náttúrulega svörum og fyrst hann var kominn í þennan gír þá létum við nokkrar æfingar fylgja og hann taldi upp að þremur á dönsku. Og svo spurðum við hann nokkrar spurningar til að gera okkur grein fyrir skilningi, og hann svaraði öllu rétt t.d..
Du er meget dygtig dreng – það þýðir að ég er duglegurJ
Einar skal du tisse – og þá fór hann og pissaði
Við erum búin að koma okkur ágætlega fyrir, ætluðum að gera nokkra hluti til viðbótar við það sem við höfum gert í þessum mánuði en þá kom rukkun fyrir 3 mánuði á leikskólanum. Við þurfum nefninlega að greiða jan, feb og mars þó svo að hann hafi bara byrjað á leikskólanum 24. Feb. Við urðum að taka plássið frá 5. Jan á sínum tíma, annars hefðum við ekki haft neitt leikskólapláss. Þannig að þessi litlu hlutir á heimilinu bíða bara betri tímaJ
Við erum komin með net og heimasíma og númerið heima er +45 36 30 35 30 svo getum við fengið okkur íslenskt heimanúmer í framhaldinu þannig að við förum að vera betur tengd.
Haukur Sindri er bara hress og kátur á króknum, ánægður með að við erum að komast í betra samband þannig að við getum farið að spjalla betur saman. Hann er að fara að keppa á samkaupsmótinu þann 6-7 mars. Það er hans fyrsta körfuboltamót ever þannig að það er mikil spenna í kappanumJ Mótið er í keflavík ef þið eigið leið um.
Annars er bara vor í lofti hérna í kaupmannahöfn annað en vonskuveðrið sem er heima. En við erum s.s. búin að fá okkar skamt af kulda, í dag er t.d. fyrsti dagurinn sem ég er ekki í ullarsokkum síðan ég kom til DKJ
Kveðja Tinna
-
Mitt fyrsta blogg…. ever
Posted on March 3rd, 2009 2 commentsÞá er loksins kominn tími á mig að blogga. Þótt að ótrúlegt megi virðast, þá held ég að þetta sé fyrsta blogg færslan mín.
Dagarnir hjá mér gjörsamlega fljúga áfram. Mér líður vel í vinnuni og ég held að það henti mér bara vel að vera á lítilli skrifstofu og svona nálægt kúnnanum. Ég er búinn að kynnast flestum sem að ég vinn með hérna hjá Danske Spil alveg ágætlega og það er alltaf nóg að gera. Fyrsta daginn sem að ég mætti á skrifstofuna var reyndar reynt að kveikja í húsinu en þar var á ferð ólukkumaður sem var ekki sáttur við að Danske Spil væru að loka einum af sport börunum sem þeir reka, en sá bar var í hans hverfi og greinilega í miklu uppáhaldi hjá honum. Hann henti bensínsprengju inn um kjallaraglugga en sem betur fer kveiknaði ekki í bensíninu og hann náðist að lokum.
Fyrstu vikurnar voru erfiðar þar sem að ég var einn hérna úti og ég var alltaf að bíða. Svo kom Tinna en þá tók næsta bið við eftir strákunum. Nú er allt að komast í fast horf og síðasta vika gefur góða mynd af því sem koma skal. Einar er bara sáttur með leikskólann þótt að það sé stundum erfitt að kveðja mömmu og við feðgarnir eigum alltaf góða stund saman þegar ég næ í hann og við tökum strætó heim.
Ég er annars bara mjög sáttur við lífið hérna úti. Nú fer bráðum að vora og okkur skilst að það sé alveg frábær tími. Það er reyndar búið að vera mjög kalt hérna síðan ég kom, mun kaldara en ég bjóst við. Ég hugsa að -2°C hérna virki eins og -12°C á Íslandi út af rakanum í loftinu.
En fyrsta færslan komin og kanski að ég geri þetta að reglu héðan af.
Kveðja frá Köben,
Jónatan











