-
Það er stundum erfitt að vera lítill leikskólastrákur…..
Posted on February 27th, 2009 1 commentHæ hæ,
Síðustu tveir dagar hafa tekið soldið á mömmuna á heimilinu þar sem hún hefur haft það hlutverk að fara með litla manninn á leikskólann. Eins og kom fram í fjölskyldublogginu í gær þá grét Einar af lífsins og sálarkröftum þegar upp í rútuna var komið í gær og í dag var engin munur á. Fyrir utan það að í dag var logn þannig að gráturinn heyrðist út úr rútunni. Það sem gladdi mig nú hinsvegar í dag er:
· Í gær hringdi ég í leikskólann og spurði hvernig drengurinn hefði það þar sem ég var með hjartasár eftir morguninn og það kom í ljós að hann hafði það bara alveg súper gott.
· Í morgun þegar hann byrjaði að gráta var Meud, sú sem hefur annast hann komin um leið og knústi hann og kyssti og hlúði að honum.
· Þegar rútan var í þann mund að keyra frá leikskólanum þá sagði hún mér það á „táknmáli“ að hún skyldi hringja í mig.
· Hún hringdi í mig rétt fyrir hádegi og þá var það sama sagan og deginum á undan, hann var leiður í smá stund í rútunni og tók svo gleði sína á ný.
Í dag var hann búinn að vera úti að leika, syngja og svo hafði hann fengið að baka bollur með þeim í eldhúsinu og var syngjandi glaður. Ég og Jónatan ræddum það í morgun að við skyldum stinga upp á því við Meud að við myndum koma fyrr með Einar og kveðja hann inn á leikskólanum. Höldum að það geti tekið tregan af kveðjustundinni hjá litla kút. Þegar ég talaði við Meud áðan og bar þetta undir hana þá var hún alveg sammála, þannig að á mánudaginn ætlum við að mæta með hann kl 07:30 og sjá hvort að honum líði ekki aðeins betur við aðskilnaðinn.
Talandi um leikskólann þá höfum við kynnst alveg nýju dæmi varðandi leikskóla og það eru þessir matarpakkar. Við erum mjög sátt við hvernig fyrsta vikan gekk í þessum matarpakkamálum og höldum að við séum að standa okkur rosalega vel. Það kom náttúrulega í ljós fyrsta daginn þar sem við vorum með honum að Einar var nestaður fyrir eina viku hann var með svooooo mikið nesti miðað við önnur börn. Mamman rannsakaði nesti annarra barna mjög vel og við höfum hagað nestinu í takt við það sem kom út úr þeirri rannskókn. Matarpakkinn þessa vikuna hefur verið svona:
· Þriðjudagur: Samlokur, gúrka, epli, gulrætur o.fl til að fæða allan leikskólann
· Miðvikudagur: 3 hálfir rúgbrauðshelmingar (lifrakæfa,ostur og skinka, ostur og gúrka) eplabitar, egg og vínber.
· Fimmtudagur: 2 hálfir rúgbrauðshelmingar (lifrakæfa, ostur og sulta) jarðaber, vínber, eplabitar, kjötbolla í bitum og egg.
· Föstudagur: 2 hálfir rúgbrauðshelmingar (lifrakæfa, ostur og sulta) ostastöng, jarðaber, eplabitar og egg.
Einar hefur staðið sig nokkuð vel að borða, kemur vanalega bara með annan brauðhelminginn heim. Þið sem þekkið hann þá er hann voðalega mikill ávaxtakall þannig að við leggjum ríka áherslu á að hann geti nánast borðað sig saddan af þeim ef að restin af nestinu er ekki nógu og „spennandi“ allavegna meðan við erum að læra inn á þetta.
Í mars mun Einar fara í tvo leiðangra með leikskólanum sínum, fyrst vara þau í National Musseum og svo fara þau í dýragarðinní lok mánaðarins. Við vorum að segja Einari frá þessu í gær og hann var ekki alveg að skilja afhverju leikskólinn ætlaði að fara í dýragarðinn en hann verður eflaust ánægður þegar dagurinn rennur upp.
Helsta sportið á heimilinu er að hjálpa til í eldhúsinu og þá helst að fara út með ruslið, Það er svona ruslalúga eins og í flestum fjölbýlishúsum og honum þykir alveg rosalega spennandi að fá að fara út með ruslið. Var í allan gær að koma með eitthvað og setja í ruslið, til að hann gæri farið með það í lúguna, útbrunnin sprittkerti, blöð og eitthvað fl.
Ég spurði Einar í gær hvort hann hefði talað eitthvað dönsku í leikskólanum í dag og þá sagði hann Já, og ég alveg já ok, hvað sagðiru ? … Þá svaraði Einar ég sagði bara Ja og það er sko Já á dönskuJ
Það er ekkert planað um helgina annað en að rölta einn göngutúr úr bókinni hans Guðlaugs Ara með Hilmari og Ebbu.
Annars biðjum við bara að heilsa í bili, takk fyrir kveðjurnarJ
-
Lítill leikskólastrákur
Posted on February 26th, 2009 4 commentsHæ hæ kæru lesendur,
Undanfarnir dagar hafa gengið glymrandi vel. Fyrsti dagurinn á leikskólanum gegg mjög vel, það vel að þær ákváðu að Einar skyldi koma einn dag tvö. Einar var sko ekki í vandræðum með að kveðja mömmu sína þann daginn, sagði henni bara að faraJ
Pabbi hans beið við rútuna þegar hún kom til baka og þá var litli maðurinn okkr nývaknaður eftir rútuferðina til baka. Hann hafði verið að leika úti og fingramála yfir daginn, leikskólakennararnir koma alltaf með töflu sem þær hafa fyllt út með dagskrá dagsins og oft sett inn myndir af krökkunum.
Í morgun var annað hljóð í kallinum, hann knústi mömmuna bless og mátti varla vera að því að gefa henni koss það var svo mikill ákafi að komast í rútuna. Þegar í rútuna var komið og hann horfði í gegnum gluggan á mömmu sína þá brustu allar gáttir hjá litla kút og hann grét og grét og kallaði á mig. Ég rétt náði að halda andlitinu á meðan hann keyrði í burtu hágrátandi.
Það er margt sem er nýtt í lífi okkar þessa dagana, við erum í nýju landi sem felur í sér miklar aðlaganir hjá öllum fjölskyldumeðlimum. Við þurfum að lifa eftir miklu skipulagi til að dagarnir gangi upp án vandræða. Dagskráin er c.a svona hjá okkur.
kl 06:00 vaknar Jónatan svo að hann geti verið mættur við rútuna þegar Einar kemur til baka og klárað fullan vinnudag
Kl 06:25 þá er klukkan mín að hringja, ég geri mig klára smyr matarpakkan hans Einars og vek hann svo í rólegheitunum með því að klæða hann úr náttfötunum og í fötin sín.
Kl 07:00 borðum við Einar morgunmat og höfum okkur svo til í útifötin
Kl 07:20 erum við Einar komin út og tökum strætó 18 tvær stoppustöðvar, þar skiptum við í strætó 10 sem stoppar við leikskólann.
Kl 08:15 fer rútan frá leikskólanum og ég reyni að komast á mettíma í vinnuna, er að detta þar inn um níu leitið.
Kl 15:45 tekur Jónatan á móti Einari úr rútunni og þeir labba saman heim
Svo er spurning hvort annað okkar fari í búð, hvort við sinnum þvotti og öðrum heimilisstörfum eða reynum að fara út að hlaupa eða hjóla. Matartíminn þarf að vera tímanlega þannig að lítill leikskólastrákur fái þá hvíld sem hann þarf fyrir langan og strembin dag. Við dettum útaf í kringum tíu og þá búin að gera föt og annað tilbúið fyrir næsta dag.
Við erum virkilega ánægt með hvernig hefur gengið hjá okkur hingað til, ég var reyndar aðeins ósátt í morgun í leikskólanum þar sem sú sem hefur verið að sinna honum var í fríi og það var ekki neinn sem tók hann upp á sína arma eins og hún hefur gert undanfarna daga. Hann spurði mikið um hana, þrátt fyrir að ég væri búin að undirbúa hann vel og láta vita að hún væri í fríi og hann þyrfti þá að tala við Ann Marie þá var hann ekki alveg að samþykkja það. Þegar hann byrjaði að gráta í rútunni, þá leið talsverður tími þangað til honum var sinnt og þegar það gerðist þá var það stelpa sem hefur ekki verið með honum áður. Hefði viljað sjá Ann Marie taka hann betur að sér. En ég veit nú samt að hann er sennilega í góðum gír núna, nýbúinn að borða rúgbrauðið sitt og á leiðinni út að leika með krökkunum.
Gullmolarnir halda áfram að detta út úr honum eins og vanalega, sagði í gær að hann yrði að fara í heimsókn til ömmu og afa í Bolungarvík þar sem þau söknuðu hans svo rosalega mikið.
Sagði svo líka þegar ég var að segja honum að fara í háttinn að hann hefði sko fengið að vaka lengur hjá Högna og Írisi og ég réði ekki yfir honum.
Knús og kossar frá okkur og takk fyrir kommentin,
gaman að sjá að einhver fylgist með okkur:)
-
Helgin og aðeins meir
Posted on February 24th, 2009 3 commentsHæ hæ kæru lesendur
Á fimmtudaginn síðastliðinn fengum við elsku strákana okkar til okkar og þeim fylgdu eitt stykki amma og afi. Það voru miklir fagnaðarfundir hjá okkur öllum, reyndar var Einar kátari að fara í lestina heldur en í fangið á foreldrunum. Eins og þið vitið þá er Einar mikill lestarkallJ
Við byrjuðum á því að skella okkur í Bilka og kaupa Legó fyrir hluta af afmælispeningum strákana, skelltum okkur svo heim og byrjuðum á að byggja huges Lego borg. Þeir fjárfestu í Löggustöðinni en hún var akkúrat á tilboði þannig að við gerðum góð kaup. Haukur keypti svo 3 notaða tölvuleiki á verði hálfs nýs og ætlar að geyma afganginn í hjól. Einar keypti sér þríhjólahlaupahjól og ætlar að geyma afganginn til að kaupa eitthvað annað spennandi eins og hann segir.
Við brölluðum ótrúlega mikið um helgina þrátt fyrir kalt veður og snjó, amma var reyndar hálf lasin en bar sig ótrúlega vel og lét það ekki hafa áhrif á skemmtun helgarinnar. Við fórum eftir óskum Hauksans og byrjuðum á því að heimsækja gamlar slóðir (s.s. eitthvað svipað og við gerðum í sumar) Við gengum um strikið og þar í kring og Haukur rifjaði upp sögu á hverju torgi og hverju götuhorni.
Þegar við vorum þreytt á því að labba þá laumuðum við okkur inn á veitingastað og fengum okkur smá í gogginn og hvíldum lúna fætur og kaldan búk.
Helgin gekk meira og minna svona, við löbbuðum um ýmsa staði í kuldanum. Skemmtilegasti göngutúrinn var án efa þegar við ákváðum að ganga „Leið Hestsins“. Okkur áskotnaðist bók eftir Guðlaug Arason stuttu áður en við fluttum sem ber heitið Kaupmannahöfn ekki bara strikið eða e-h álíka. Þar eru 10 gönguleiðir um kaupmannahöfn þar sem hann segir frá leiðinni í sögulegu samhengi. Ég gekk með bókina og las upphátt á meðan aðrir gengu með og hlustuðu og virtu fyrir sér umhverfið. Haukur las svo ítarlegri kafla þegar við komum heim til að fræðast en frekar.
Kvöldunum var varið í að hugga okkur eins og daninn segir, við elduðum góðan mat, sátum og kjöftuðum og spiluðum spil. Leirspilið og actionary var spilað og það tóku allir þátt og skemmtu sér vel.
Haukur, amma og afi voru svo kvödd við mikla sorg í gær. En það góða við að kveðja er að það styttist í næstu heimsókn. Það er rétt rúmlega mánuður í næstu heimsókn hjá Hauksanum en þá mun hann og amma Mæja leggja land undir fót og kíkja á okkur og dvelja í viku.
Einar unir sér ótrúlega vel í nýja umhverfinu, hann var virkilega glaður að sjá dótið sitt og gengur nú um allt eins og hann hafi aldrei búið annarsstaðar. Það er greinilegt að vistin hjá Högna og Írisi hefur gert honum gott, okkur finnst hann hafa þroskast heilmikið og svo er hann uppfullur af skemmtilegu bulliJ
Í dag er stór dagur í lífi Einars en hann er að byrja í leikskólanum. Við lýstum leikskólanum í bloggi um daginn og núna erum við komin hingað og það gengur eins og í sögu.
Við mættum í morgun á leikskólann í Valby og þar var vel tekið á móti okkur. Búið að hengja upp tilkynningu um nýja strákinn á leikskólanum og hann boðinn velkominn. Svo fórum við öll saman í rútunni upp í sveit, Einar byrjaði strax að grína í strákunum sem sátu fyrir framan hann og virðist passa vel inn í fjörugan og frískan hóp krakka.
Núna erum við í leikskólanum með honum, hann er úti á leiksvæði og hefur verið þar í c.a. 2 klst núna og ekkert spurt um okkur. Hann unir sér virkilega vel og sú sem sér um hann reiknar með að dagurinn dugi til að koma honum inn í hlutina og þess gerist ekki þörf að við komum með á morgun, en við sjáum nú til.
Við erum bæði með honum og sitjum með sitthvora fartölvuna og vinnum (smá bloggpása núna). Það er bjartur og fallegur dagur, frábær dagur til að byrja í skógarleikskólaJ
Látum ykkur vita hvernig gengur þegar líður á vikuna og förum að koma inn alminnilegum myndum
Kveðja Tinna, Jónatan og Einar.
-
Nákvæmlega 7 dagar í drengina okkar
Posted on February 12th, 2009 3 commentsVið erum að springa okkur hlakkar svo til að fá þá.

-
Haukur 10 ára og leikskólinn hans Einars skoðaður
Posted on February 10th, 2009 3 commentsHauksi bauksi er 10 ára í dag, stórmerkilegur áfangi í lífi okkar allra, til hamingju elsku Haukur.
Í dag fórum við að skoða leikskólann hans Einars. Einar er í það sem kallast udflyttebørnehave (skógarleikskóli) sem þýðir það að hann keyrir með rútu upp í sveit á hverjum degi. Það er nákvæmlega það sem foreldrarnir gerðu í dag við mættum á leikskólann klukkan átta og keyrðum upp í sveit.
Við verðum nú að viðurkenna að við vorum dálítið smeyk við þetta fyrirkomulag maður er alltaf svolítið hræddur við það sem maður þekkir ekki. En við erum á annarri skoðun eftir að hafa skoðað þetta alltsaman og hitt konurnar sem vinna þarna.
Við s.s. byrjuðum daginn á því að labba út á leikskóla (30) mínútna ganga, við vorum mætt þar um átta og fengum smá skoðun um leikskólann. Leikskólinn er fimm deilda leikskóli þar sem ein deildin er alltaf út í skógi (Einars deild) hinar deildirnar skiptast á að koma með og eru þá 14 daga í einu. Það eru 22 börn í hverri deild og c.a 4-6 konur með hvern hóp. Leikskólinn opnar 06:30 á morgnanna og börnin fá morgunmat fram til átta, kl 08:15 leggur rútan af stað og keyrir eins og leið liggur út í sveit. Sveitin þar sem Einar er í Lynge og heitir Mørdrupgården.
Við sáum það þegar við settumst inn í rútuna að börnin þekkja alveg rútínuna og það er voða gaman hjá þeim að keyra upp eftir, þau eru öll í beltum og bílstjórinn keyrir mjög varlega. Það tekur alveg um 40 mínútur að keyra þessa leið.
Það var mjög yndæl kona sem tók á móti okkur og fór með okkur í gegnum hvernig dagarnir og árstíðarnar ganga fyrir sig. Þegar börnin koma á leikskólann þá fá þau rúgbrauð og mjólk, svo fara þau í ævintýraleiðangur eða út á leiksvæði sem er alveg æðislegt (komum að því seinna) þegar þau koma inn fá þau middagsmad, svo fara þau aftur út og rútan leggur svo af stað heim upp úr 3 þannig að þau eru komin “heim” á leikskóla um 4.
Það er alveg rosalega fallegt þarna uppfrá, leiksvæðið er afgirt svona almennt leikskólaleiksvæði, rólur, rennibraut, mörk, sandkassi og fl venjulegt.
- Þar sem þetta er skógarleikskóli þá eru þau með 6 tvíhjólahjól og 2 fullorðinshjól en þau fara oft í hjólatúra um sveitina.
- Þarna er líka bálstæði, það þekkir maður ekki frá hinum almenna leikskóla og svo er indjánatjald og allskonar kofar, klifur og fleira.
- Rétt fyrir utan afgirta svæðið er svo matjurtargarður, en þar rækta þau grænmeti á sumrin, s.s. gróðursetja og taka upp.
- Það er gróðurhús tengt við leikskólann þar sem þau rækta jarðaber og tómmata á sumrin (þau mála þar á veturnar)
- Þarna eru allskonar dýr, hænur, kýr og hestar
- Rétt hjá er vatn, þar eiga þau bát og á sumrin fara þau oft út á bátin. Þá eru þau 2 fullorðin með 6 börn og öllum reglum fylgt til hins ýtrasta.
- Á sumrin þegar heitt er í veðri þá baða þau sig stundum í vatninu – það er víst alveg geggjað
- Skógurinn liggur við leikskólann þannig að þetta er algjör ævintýraheimur.
Eftir að hafa gengið þarna út um allt og skoðað og spurt og verið sagt frá þá getum við ekki beðið eftir því að Einar fái að upplifa þetta:)
Við spurðum sennilega mest um þennan ógurlega matarpakka, s.s. middagsmad. Hann fær allan mat í leikskólanum, en við eigum að útbúa matarpakkann. Við vorum búin að heyra einhverjar sögur um svona matarpakka en eftir að hafa rætt við hana Maud þá sjáum við að þetta er ekki flókið eða eitthvað til að óttast.
Hann á þarna sitt hólf sem verður merkt honum og þar mun hann geyma aukaföt og annað sem hann þarf. Þær eru bara nokkuð spenntar að taka á móti honum og eru með ákveðið plan til að hjálpa honum að aðlagast, við verðum með honum fyrstu dagana bara svona eins og þarf.
Það sem gerir aðlögun soldið erfiða þegar maður er með barn á skógarleikskóla eru fjarlægðirnar, við fórum með leikskólarútunni í morgun. En við fórum á tveimur jafnfjótum, með strætó og lest til baka. Fyrst löbbuðum við í c.a. 40 mínútur að næstu strætóstöð, tókum strætó heillengi og svo lestina heillengi. Þetta er c.a. 2 tíma ferðalag, þess vegna verðum við með honum heila daga fyrstu dagana….. í raun bara eins lengi og hann þarf okkur með.
Af okkur er annars allt gott að frétta. Okkur er farið að hundleiðast svona einum, viljum fara að fá elsku strákana til okkar. Þeir koma í næstu viku með ömmu og afa í Boló.
En yfir og út í bili, ætlum að hringja í Hauksa bauksa og syngja hann á afmæli í dag
-
Loksins bloggsíða
Posted on February 5th, 2009 2 commentsHæ hæ
Þá er bloggsíðan loksins komin í loftið, við höfum sent frá okkur regluleg fréttabréf til nánustu fjölskyldu hingað til. En núna verður öllu kastað fram á alnetið:)
Við höfum komið okkur ágætlega fyrir á Ib Schønbergs Allé 6,
Við erum í ágætlega stórri 2 herbergja leiguíbúð í Valby sem við leigjum af leigufélagi, http://lejdinbolig.nu/Held að þetta sé fínt fyrsta blogg, þarf að læra betur á þetta kerfi.
Næstu dagar munu fara í að lappa upp á lúkkið á síðunni og svona… og svo er bara að blogga eins og vindurinn.kv








