blogga frá lífinu í kaupmannahöfn
RSS icon Email icon Home icon
  • Svínalundir – innbakaðar svínalundir mmmmmm

    Posted on September 27th, 2009 tinna No comments

    Í danmörku er svínakjöt ódýrt, þegar það eru tilboð þá er svínakjötið hræódýrt. Við skelltum okkur á góð tilboð um daginn í Suber Best, 3 svínalundir á 75 kr, hver lund er um 600 gr þannig að við gerðum mjög góð kaup. Tilboðið var svo gott að við keyptum 2 pakka, s.s. 6 lundir og höfum verið að leika okkur aðeins með uppskriftir og útfærslur á lundunum.

    Ég er náttúrulega atvinnulaus um þessar mundir eins og flestir vita og gef mér tíma til að detta inn á hin og þessi blogg, dunda mér við að finna uppskriftir og pæla í næstu máltíð. Eftir að hafa slefað á tölvuna yfir gourme uppskriftum var ákveðið að leggja í eina slíka, nota ráð og hugmyndir frá hinum og þessum og reyna að gera súper góðan mat.

    Við ákváðum að gera fylltar innbakaðar svínalundir, til að fá sem mest út úr eldamennskunni elduðum við tvær og  fylltum þær með sitthvorri fyllingunni (tvær líka af því að við vorum með matargesti)

    Svínalund 1 – var fyllt með gorgonzola osti og steinselju, troðin út af hvoru tveggja. Okkur hefur alltaf þótt það góð blanda að beikonvefja svínalundirnar og því var ákveðið að loka þessari lund með því að vefja hana með beikoni. Við hugsuðum aðeins út í það að kaupa einhverja góða flotta skinku til að vefja lundina í en við áttum beikonið í ísskápnum og því óþarfi að spreða í skinkuna.

    IMG_4165

    Svínalund 2 – Var fyllt með fetaosti, litlum tómötum og steinselju, við kaupum alltaf hreinan fetaost í klumpum hann er langbestur þannig. Eins og með fyrri lundina þá tróðum við hana út af fyllingunni en við lokuðum þessari með pinnum. Okkur langaði alveg að loka þessari með beikoni líka, en einn matargesturinn er ekki beikon aðdáandi og því ákveðið að loka henni bara með pinnum.

    Við hituðum svo grillpönnuna okkar skelltum lundunum á hana til að loka þeim og pökkuðum þeim svo inn í deig, deigið var penslað með eggjum og mjólk og síðan var þetta eldað í ofninum við 200 gráður í 25 mínútur. Þegar sá tími var liðinn tókum við lundirnar út og létum þær hvíla í 15 mínútur.

    IMG_4167

    Meðlætið var í léttari kanntinum að þessu sinni, erum miklir sósuaðdáendur og eigum það til að hafa ógurlegar rjómasveppasósur með öllu.  Við ákváðum að hafa léttar kaldar sósur með að þessu sinni (partur af heilsa 2009 á heimilinu) og vorum með heimagerða hvílauksssósu og heimagerða piparsósu, ferskt salat með þessu helsta, jarðaberjum og góðum fetaosti og til að hafa þetta alvöru þá voru líka ofnbakaðar kartöflur.

    Það er óhætt að segja að lundirnar báðar voru algjört gourme og meðlætið passaði alveg perfect með, lundirnar voru virkilega safaríkar og næstum óþarfi að hafa sósuna með. Með þessu var svo drukkið ekta coca cola og danskt vatn úr krananum.

    Kvöldinu var svo varið í kana með vinunum og þegar leið á kvöldið var dregin fram marengs bomba sem var skolað niður með ískaldri mjólk og samræðum um síðustu slagi. Laugardagskvöldin gerast ekki mikið betri en þetta:)

    Það eru ennþá 2 lundir í frystinum sem verða teknar út þegar Íris systir og có koma í heimsókn eftir nákvæmlega viku. Það er spurning hvað við systur bröllum við lundirnar :)

    kossar og knús

  • Hafrakex fyrir systur mína

    Posted on August 13th, 2009 tinna 1 comment

    Þar sem heilsa 2009 var að hefjast hér á bænum þá gerði húsfrúin tilraun 2 í hafrakexi. Reyndi þetta fyrr í sumar en kexin sem komu út úr því nutu ekki vinsælda á mínu heimili, varð eins og bakaður hafragrautur með kanil…. Ég ákvað því eftir að hafa legið yfir allskonar uppskriftum að prufa mína eigin útgáfu og hún lukkaðist alveg ljómandi vel, að sjálfsögðu blastaði ég því á facebook að ég hefði verið að baka hafrakex og fékk þá spurningar um uppskrift og hérna kemur hún.

    1/2 dl hunang líka hægt að nota agave sýróp
    1/2 dl olía
    1/2 dl vatn
    4  matskeiðar eplamauk
    1 tsk lyftiduft
    1 dl spelt
    1 msk kanill
    3 dl blandað haframjöl, múslí, kókosmjöl  þangað til þetta er orðið frekar þykkt

    Mallaði þessu öllu saman og setti á bökunarpappír og pressaði hverja köku niður með gaffli  þannig að þær voru mjög þunnar, setti svo inn í blástursofn á 180 °C  í 18 mínútur. Þá voru þær orðnar gullinbrúnar, fallegar og stökkar. Út úr þessu fékk ég um 12 ágætlega stórar kökur:)

    Held að þetta sé alveg ágætlega hollt miðað við það hráefni sem er notað þannig að þetta verður á MÁ BORÐA LISTANUM:)

    Sweeden 096Sweeden 095