-
Best að skella inn einni línu:)
Posted on September 11th, 2009 4 commentsVegna fjölda áskorana ákvað ég að henda inn bloggi, mamma er búin að panta meira en 1000 orð en þegar ég byrja þá er ekkert ákveðið sjáum hve langt munnræpan fer með mig.
Það eru næstum 20 dagar síðan ég bloggaði síðast og þar af leiðandi helling að frétta og helling sem þarf að segja frá, held ég stikli bara á stóru og svo getið þið giskað í eyðurnar:) Ég reyndar á í einhverju basli með að setja myndir inn í bloggið og því verður þetta bara að vera myndalaust blogg sorrý.
Sá dagur kom loksins að Magnús, Jóhanna og Guðmundur Elí komu til að knúsa okkur, við áttum saman þrjá alveg yndislega daga í knúsi, túristaleik, góðum mat og skemmtilegum samræðum. Jónatan var því miður að vinna á daginn en það var allt í lagi þar sem ég er alveg afbragðs félagsskapur þó svo að hinn helmingurinn minn fylgi ekki með. Þetta voru nokkuð ”hard core” túristadagar, held að við höfum gengið yfir 10 km hvorn daginn í yfir 20 stiga hita og sól. Ég dáðist alveg af nýbökuðu foreldrunum að dröslast út um allt með litla manninn en hann var nú bara eins og ljós þrátt fyrir rótið á honum og hitann. Stoppað hér og þar, skipt á kúk, gefinn sopi, ropað og svo aftur í kerruna og haldið áfram fram að næsta stoppi. Það var alveg æðislegt að fá að hitta þau þó að stutt hafi verið og Jónatan hafi verið bundinn í vinnu. Guðmundur Elí er einstaklega fallegur og fullkominn í alla staði og það er gaman að sjá Jóhönnu og Magnús í foreldrahlutverkinu. Það var líka soldið gott að fá útrás fyrir eggjahljóðin sem koma reglulega í mömmuna á heimilinu….
Einar var alveg dolfallinn yfir frænda sínum, týndi til allt dót í húsinu sem hann fann, bangsa, teppi og allt annað sem hann taldið að Guðmundur þyrfti að hafa sér til dægrastyttingar. Þegar Guðmundur átti að fá nýja bleyju eða var að drekka var Einar ótrúleg hjálparhella að sækja hitt og þetta. Einar spurði einn morguninn þegar við vorum tvö frami með Guðmund Elí,
”Mamma, hvenær kemur barnið úr maganum þínum”
”og ég svara Einar minn mamma er ekki með barn í maganum”
”Einar hneykslaður, hvað gerðiru við það mamma”
En það eru ekki allir sem vita það að sama dag og litla fjölskyldan kom í heimsókn millilenti Sunna í Köben á leið sinni til Lúxemborgar. Sunna stoppaði í rétt um klukkutíma og við fengum okkur pulsu og kók og spjölluðum aðeins, Sunnan mín var nú rétt að fatta að hún væri lögð í þessa ævintýraferð og hugsaði til tregabundinnar kveðjustundar sem hún hafði átt með fjölskyldunni um morguninn. Þrátt fyrir að það hafi verið erfitt að kveðja þá var hún ótrúlega spennt enda mikið ævintýri sem beið hennar og guð hvað það var gott að sjá hana og knúsa hana, hef ekki hitt þennan helming fjölskyldu minnar síðan í janúar. En Sunna mætti í Lúxlandið og rúntaði um helsta nágrenni og svo var hún bara farin af stað í heljarinnar ferðalag til Ítalíu með fjölskyldunni sinni þarna úti. Þau keyrðu frá lúxemborg til Italíu þannig að Sunna er búin að sjá rosalega mikið þessar fyrstu vikur sem hún er búin að vera þarna og ég efast ekki um að það bíði hennar fleiri ævintýri. En bara svona til að koma því að þá átti daman afmæli á mánudaginn 07.09.09 og varð 19 ára gömul, tíminn líður maður.
Ég hef nú aðeins talað um að ég sé komin í körfuna aftur og bara þannig að þið fylgist með þá er ég ennþá í körfunni og það er voðalega gaman. Á laugardeginum eftir að litla fjölskyldan fór þá var teem weekend hjá liðinu mínu. Þetta var hálfgerð óvissuferð, við mættum einhverstaðar upp í sveit snemma morguns á laugardegi með pakkað eftir lista sem við fengum í hendurnar. Við byrjuðum á því að vera settar saman tvær og tvær og það var hlaupið um skóginn í ratleik, það var mjög skemmtilegt og þetta er víst mjög vinsælt fjölskyldusport hérna. Eftir ratleikinn var nestað sig og gengið þangað sem við áttum að sofa, við komum að fallegum trjálundi með bálstæði og svefnskýli (Svefnskýli=undir berum himni) þar hófst heljarinnar dagskrá, strategy var spilað live, allskonar þrautir, púsl og fleira sem átti að efla liðsandann. Þegar leikjadaskránni var lokið fengu allir hlutverk í því að gera kvöldið og kvöldmatinn tilbúinn. Safna sprekum á eldinn, gera salat, deig fyrir brauð og fleira. Þegar allt var tilbúið grilluðum við pulsur og brauð yfir opnum eldi. Síðan var bara huggað sig fram að svefni, þar skriðum við hver á sinn stað, varla hægt að snúa sér og sofnuðum værum blundi. Allar svo ótrúlega þreyttar eftir æfingar vikunnar og að sjálfsögðu þennan dag í óbyggðunum. Það var skrítið og skemmtilegt að vakna út í skógi og hafa sig til fyrir átök dagsins, maður svaf alveg ótrúlega vel þrátt fyrir að vita af allskonar skriðkvikindum út um allt. Átök dagsins var fjallahjólatúr um skóginn og ég verð nú bara að segja að það er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Að sjálfsögðu kom smá frétt um þetta á heimasíðu liðsins http://falconbasket.dk/falcon/index.php?newspage=1242 og svo var pabbi einnar sem tók myndir af okkur í hjólatrúrnum og blastaði þeim hérna http://picasaweb.google.com/Sikkerhedsgruppen/FalconBasket?feat=directlink<br />#
Svo ég klári nú körfuboltann áður en ég segi eitthvað merkilegt af karlpeningi fjölskyldunar þá spiluðum við okkar fyrstu æfingaleiki á síðustu helgi. Spiluðum við Falcon junior herrer á laugardaginn, töpuðum fyrir þessum bráðefnilegu strákum en fengum rosa góða æfingu út úr því. Á sunnudaginn héldum við til Sviþjóðar n.t.t. Lund og spiluðum við kvennalið þar. Við byrjuðum rosalega sterkt 9-0 en svo var jafnt á öllum tölum fram til fjórða leikhluta þar sem þær sænsku hittu brjálæðislega mikið og enduðu á að taka okkur með um 20 stiga mun. Ég hef byrjað þessa tvo leiki og hleyp ásinn eins og vanalega fyrir þá sem skilja það mál. Stefnan er bara að halda áfram að byrja leikina og gera eitthvað að viti þegar maður er inná. Á næstu helgi er stefnan tekin til Hamborgar í þýskalandi þar sem við tökum þátt í þriggja daga móti. Við keyrum héðan á föstudagsmorgun og komum seint á sunnudegi, yfir helgina verða spilaðir fjórir leikir þannig að maður á eftir að vera nett búinn á því þegar maður kemur heim.
Finnst ég soldið vera gamla konan í þessum hópi, það er ein sem er jafngömul mér, tvær sem eru fæddar 87 og svo er rest fædd 90-91. Þannig að halló gamla kona, ég er eina sem á börn og svo hef ég nú ekki viljað viðurkenna það en ég er búin að eiga við smá bakmeiðsli að stríða sem ég vil eiginlega ekki sýna því þá verð ég endanlega gömul:) En hrósið er það að kaninn okkar hélt að ég væri kannski bara svona 22 ára, hún vonaði nú samt að hún væri ekki að móðga mig en eins og hún sagði ”You look young” Og það tek ég sko með mér, vona bara að hún fari ekkert að botna setninguna ”But you move slow” ha ha ha ha…
Já karlarnir í fjölskyldunni, virðast bara ekki vera eins skemmtilegir og ég eða að það sé staðreynd að ég haldi á pennanum og leiðist aldrei að tala um sjálfa mig:)
Eins og alltaf þá er Jónatan á kafi í vinnu, það er stórt verkefni sem vonandi fer að klárast á næstu vikum og þá ætti hann að detta aftur í 8-4 gírinn. Hann er samt búinn að vera ótrúlega duglegur undanfarið, hjólar í vinnuna á hverjum degi og heim aftur og þrisvar í viku fer hann extra snemma og nýtir sér æfingarsalinn sem er þarna upp í Danske Spil. Þá lyftir hann eins og enginn sé morgundagurinn og mætir ferskur í vinnu eftir góða æfingu og ókeypis sturtu:)
Einar er náttúrulega bara æðislegur eins og alltaf, hann er alltaf jafn sáttur á leikskólanum og er ótrúlega góður hérna heima líka. Við erum aðeins farin að kenna honum að lesa, hann er farinn að mynda hljóðin með öllum stöfunum og farinn að reyna að setja þá saman. Pabbi hans er alveg ótrúlega þolinmóður og duglegur að gefa sér tíma þegar það er háttatími að lesa fyrir hann allskonar bækur. Magnús og Jóhanna komu færandi hendi með tvær bækur í safnið og það vakti aldeilis lukku. Við lesum fyrir Einar á hverju kvöldi þar sem við erum staðráðin í því að halda vel í íslenskuna og hann hefur ekki fengið nýja íslenska bók síðan ég veit ekki hvenær þannig að allar bækur hafa verið lesnar yfir 10 sinnum flestar yfir 20 sinnum. Um daginn voru þeir að lesa einhverja barna Atlas bók voru í kafla þar sem talað er um jörðina, sjóinn, fjöllin og allt það og þá byrjaði Einar að tala um forsetann og pabbi hans var ekkert að átta sig á þessu hjá honum. Svo vorum við að tala saman um kvöldið þ.e. ég og Jónatan og hann var að segja mér hvað Einar væri stundum steiktur hefði bara talað um forsetann þegar hann var að lesa barna Atlasinn. Þá sagði ég Jónatani frá því þegar ég og Einar áttum túristadag og fórum í grasagarðinn. Þá gengum við framhjá lítilli lækjarsprænu og þá æpir Einar, Mamma sjáðu sjáðu forsetinn, forsetinn og ég alveg HA hvar. Þá er hann náttúrulega bara að tala um foss þessi elska.
Einar fékk skemmtilega sendingu í vikunni, Ragga frænka sendi honum DVD – nýjustu Latabæjar diskana og þeir hittu sko beint í mark. Einar hefur notið góðs af því að Ragga frænka vinni í Latabæ og hefur verið dugleg að gauka að honum smá dóti. Latibær er að ná flugi hérna úti, er reyndar sýndur á áskriftarstöð þannig að það eru ekki öll börn sem þekkja hann. Einar er öfundaður af Henson latabæjargallanum, latarbæjarkallinum sem reyndar fótbrotnaði í sumar og fleiru. Við erum oft og iðulega spurð af foreldrum og starfsmönnum hvar við höfum fengið hitt og þetta latarbæjardót og þá getum við bent á gamla góða ísland.
Þegar ég var að keppa í svíþjóð skellti Jónatan sér í Tívolí með Einar. Það var frekar blautt þannig að það var ekki splæst í túrpassa heldur fékk einar að velja sér 3 tæki sem hann mátti fara í. Einar var mjög sáttur og ánægður með daginn enda endaði hann á vöffluboði hjá Árna og Ásdísi. En það var eitt sem hann náði ekki úr sér og það var að hann hafði ekki fengið að hoppa á hoppudýnu sem er á leiksvæði í Tívolí, það var rigning og Einar ekki í pollafötum og því ekki í stöðunni að skella sér á blauta hoppudýnu. Einar röflaði um þetta allan daginn og langt fram á kvöld, dæsti reglulega og svo kom, Ég er svo leiður af því ég fékk ekki að fara í hoppudýnuna. Afhverju setti pabbi mig ekki í pollagalla, ég er svo leiður mig langaði svo að prufa……oooo ég er svo leiður.
Haukur er sem fyrr á Króknum og bara sáttur, hann er byrjaður í skólanum og finnst það bara ágætt hann er kominn með msn og þið megið endilega hafa samband ef þið viljið fá msn adressuna hans, ég ætla ekki að blasta henni á alheimsnetið. Hann kemur til okkar 14. október og þá er stefnan tekin á að fara í Tívolí en þá er opið þar sem það er Halloween. Á þeim tíma sem hann kemur er líka vetrarfrí hérna í DK þannig að það mun vera margt í boði fyrir börnin. Okkur langar soldið að sjá eitthvað leikrit eða söngleik en við sjáum til hverju við komum að.
En almennar fjölskyldufréttir, við höfum sagt upp íbúðinni okkar hérna og ætlum að leita okkur að íbúð á almennum markaði s.s. utan leigufélags. Við erum að borga frekar háa leigu hérna og höfum hugsað okkur að komast af með aðeins minna sérstaklega þar sem ég er án atvinnu. Við ætlum að halda okkur á þessu svæði, dettur ekki í hug að flytja Einar um leikskóla og svo er þetta bara æðisleg staðsetning.
Ég sæki og sæki um vinnur en fæ bara nei, segja allir að þeim lítist vel á mig, að ég sé samkeppnishæf, hafi allt sem til þarf utan reynslu, passi ekki akkúrat fyrir þetta en vilja halda mér inni ef eitthvað annað dúkki upp sem passi betur. Ég verð bara að trúa því að það rætist úr þessu hjá mér og ég fái eitthvað að gera. Það eru mjög strangar reglur til að ég haldi dagpeningunum sem ég er á. Ég er búin að sækja tvo fundi, annarsvegar hjá A-kassanum mínum og hinsvegar hjá Jobcenter. Ég þarf að fylla inn á ákveðið heimsvæði hjá A-kassanum mínum skema fyrir hverja vinnu sem ég sæki um og updaita stöðuna um leið og ég fæ svör. Ég er komin með einhver 15-20 störf þarna inn og búin að fá 4 nei ég bíð eftir svari frá hinu.
Við erum aðeins farin að sakna nokkurra hluta frá íslandi, kannski ekki alveg sakana en okkur er farið að langa í. Lýsi, flatkökur, harðfisk, súkkulaðirúsínur svo eitthvað sé nefnt. Vona að ástkær systir mín komi færandi hendi þegar hún kemur til mín.
Barnalandsáskriftin er útrunnin og ég þarf að endurnýja hana við tækifæri svo ég geti haldið áfram að skella inn myndum, ég læt vita þegar það kemur.
knús og kossar
-
Fréttaveitan
Posted on August 20th, 2009 4 commentsHæ hæ, best að koma með smá pistil.
Rútínan er að komast í gang á heimilinu eftir gott sumarfrí. Haukur fór á föstudaginn síðastliðinn og Einar spurði stanslaust um hann vel fram yfir helgi, saknaði bróður síns sárlega. Einar byrjaði á leikskólanum á mánudaginn og byrjaði á því að heilsa öllum með nafni hej hej Oliver Jeppsen, hje hej Simon A (segist í syngjandi tón). Kom að sækja hann þegar rútan kom og hann var ein fýla að fá ekki að fara aðeins inn í leikskóla og leika sér þar. Vildi sko ekki koma heim með mömmu sinni, alla vikuna hefur hann verið fúll að vera sóttur beint úr rútunni þannig að við ætlum að sækja hann síðar í dag þar sem það er sumarhátíð á leikskólanum sem hefst klukkan 5.
Pabbinn vinnur og vinnur, var t.d. að vinna alla helgina og útlit fyrir að hann vinni næstu helgi líka þannig að ég og Einar erum í því að dunda okkur bara tvö. Hann reyndar fór á golfmót í gær og hann vann ekki þar, alveg ömurleg frammistaða miðað við hvað hann hefur unnið mikið:)
Ég var að byrja í körfunni og hef farið á þrjár æfingar, ég er að æfa með liði sem heitir Falcon http://falconbasket.dk/falcon/ . Ég bjóst við að þetta yrði einhver körfubolti á á hærra leveli en heima og ég yrði örugglega lélegust og var búin að búa til heim í kringum þetta allt í kollinum á mér. Þetta er bara nákvæmlega eins og að hafa dottið inn i eitthvað lið heima á íslandi þar sem maður þekkir ekki neinn og spili körfubolta. Þægilegt að maður geti farið að hreyft sig, hitt stelpur og gert eitthvað sem maður gerir vel þegar maður hangir annars heima allan daginn.
Á æfingunum finn ég týpurnar sem ég hef áður æft með, en ég finn samt enga Signý, hún er líka einstök:) Við erum með ungt og efnilegt lið og ég er að byrja að læra nöfnin, er aðeins feimin og hef þar af leiðandi ekki látið til mín taka með hörku í leikstjórn liðsins. Ég hleyp ásinn og stýri að því marki sem ég þori en eins og ég segi þá er ég soldið feimin og kann ekki öll nöfnin þannig að það kemur bara. Erum með eina unga stelpu sem er vel yfir 180, snögg, góð með boltann, hittinn og með góðar hreyfingar fyrir utan og innan þar af mjög góða fótavinnu. Er soldið spennt að sjá hvernig þetta á allt eftir að slípast hjá okkur, framundan eru æfingamót á Jótlandi og svo er talað um ferð til Þýskalands og óvissuferð og ég veit ekki hvað og hvað:)
Fékk skilaboð hjá múttu túttu í gær um að Hanna María og Erlendur væru í bænum og vildu endilega hitta mig. Ég gerandi ekki neitt allan liðlangann daginn fagnaði því og hitti þau á Hvides vinstue í gærkvöldi. Við áttum mjög skemmtilegt kvöld þar sem við ræddum heima og geyma, Hanna María lærði hérna á sínum tíma og elskar Kaupmannahöfn, Erlendur sagði hana það stolta af dönskunni sinni að hún talaði hana alltaf í útlöndum, líka þó þau væru í suður Afríku:) Hún Hanna hló nú bara að honum Erlendi og sagði dönskuna svooo praktíska. Það var ótrúlega gaman að hitta þau og spjalla og ég vona að ég eigi eftir að fá fréttir af fleiri vinum og ættingjum á ferðinni sem ég get hitt yfir bjórkrús eða kaffibollta og talað um heima og geyma.
Jökli bróðir og Bjargey, fengu afhenta íbúðina sem þau voru að kaupa á laugardaginn. Þau eru víst búin að vera ótrúlega dugleg að koma sér fyrir og spennt að fylla slottið af börnum…. djók, engar barneignir á dagskrá að mínu viti hjá þeim. En ég á eftir að bera út þá sögu og fleiri ef þau fara ekki að setja inn myndir fyrir forvitnu systu/mágkonu í útlandinu.
Svo styttist í Sunnu, Magnús og Jóhönnu. Koma öll 25. ágúst, Sunna millilendir í 2-3 klukkutíma á leið sinni til Lúxlandsins þar sem hún ætlar að gerast auper í einhvern tíma, læra nýtt tungumál og uppfyllast af Evrópskri menningu. Magnús og Jóhanna eru í raun líka að millilenda en þau millilenda í 3 daga á leið sinni til Parísar þar sem þau eru búsett. Ég er svoooo endalaust þakklát fyrir að þau kíki við hjá okkur og leyfi okkur að knúsa gullmolann hann Guðmund Elí, við getum ekki beðið eftir að sjá þau öll:)
Ég held svo áfram að sækja um vinnur, sinna heimilisstörfum og kíkja á tilboðsbæklinga. Ég er búin að lesa haug af bókum í sumar, fengum svo margar bækur í jólagjöf sem við vorum ekki búin að komast yfir og svo bættust tvö stykki við í maí í kringum afmæli okkar Jónatans. Ég hef notið þess að dreifa huganum með því að setjast niður með góða bók, hvort sem það er hérna heima eða í einhverjum garði. Ég ætti kannski að skrifa einn pistill sem er bókadómur, hver veit … .ég veit allavegana að ég hef tíma til þess
En ætli að þetta sé ekki gott í bili, word count segir 950 orð og mér þykir því líklegt að enginn eigi eftir að nenna að lesa niður svo langan pistil.
Við komum svo líklegast með blogg og myndir af sumarhátíð Einars um eða upp úr helgi og svo munum við halda áfram að blogga um matargerð okkar hjóna þegar við erum í stuði:)
knús og kossar


